165 látnir eftir hryðjuverkaárásirnar í Bagdad

Þriggja daga þjóð­ar­sorg hefur verið lýst yfir í Írak eftir hryðju­verka­árás í Bagdad um helg­ina.

165 manns eru látnir eftir sjálfs­morðs­sprengju­árás í höf­uð­borg Íraks, Bagdad, í gær. Búið er að lýsa yfir þriggja daga þjóð­ar­sorg í rík­inu vegna dauðs­fall­anna. 225 til við­bótar særð­ust í árásinni.

Sprengi­efnum hafði verið komið fyrir í vöru­bíl sem var sprengdur í loft upp í Karrada-hverf­inu í Bagdad, þar sem fólk var að versla fyrir Eid al-Fitr, hátíð­ina sem markar enda­lok Ramadan. Heilu fjöl­skyld­urnar eru sagðar hafa lát­ist.

Árásin er talin sú mann­skæð­asta í Írak frá árinu 2007. Hryðju­verka­sam­tökin Íslamska ríkið hafa lýst yfir ábyrgð á árásinni.

Aðeins er vika liðin frá því að stjórn­ar­her­inn í Írak náði borg­inni Fallujah aftur á sitt vald, en borgin var eitt helsta vígi hryðju­verka­sam­tak­anna.

Segjast bera ábyrgð á árás í Bangladess líka

Hryðju­verka­sam­tökin hafa einnig sagst bera ábyrgð á árás á kaffi­hús í Dhaka, höf­uð­borg Bangla­dess, um helg­ina. Þar réð­ust vopn­aðir menn inn og héldu fjölda fólks föngnum þar. Yfir tutt­ugu gísl­anna voru myrtir, en margir voru erlendir rík­is­borg­arar.

Stjórn­völd í Bangla­dess hafa neitað því að menn­irnir hafi verið tengdir Íslamska rík­inu. Þeir hafi verið með­limir í Jama­eytul Mujahdeen Bangla­desh (JMB) hryðju­verka­sam­tökum sem hafi engin tengsl við Íslamska ríkið.

Menn­irnir sem gerðu árás­ina í Dhaka voru ungir, til­heyrðu vel stæðum fjöl­skyldum og voru vel mennt­aðir, segja yfir­völd. Sex voru drepnir þegar lög­reglan réð­ist inn á kaffi­húsið en tveir eru í haldi lög­regl­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár