Kristjanía á tímamótum

Íbúar Krist­janíu í Kaup­manna­höfn ótt­ast um fram­tíð svæð­is­ins eftir að fíkni­efna­sali skaut og særði tvo lög­reglu­menn sem voru þar á eft­ir­lits­ferð sl. mið­viku­dags­kvöld. Annar þeirra liggur milli heims og helju á sjúkra­húsi. Enn­fremur varð erlendur ferða­maður fyrir skoti. Fíkni­efna­sal­inn særð­ist lífs­hættu­lega þegar hann reyndi að flýja, eftir að lög­regla hafði umkringt hús þar sem hann hélt sig, og lést síðar af sárum sínum.

26. sept­em­ber næst­kom­andi verða 45 ár síðan hópur fólks lagði undir sig fyrr­ver­andi umráða­svæði hers­ins á Krist­jáns­höfn. Hópurinn lýsti yfir stofnun frí­ríkis á svæð­inu, Krist­janíu. Svæðið sem um ræðir er 34 hekt­arar á stærð og Krist­janitt­arnir (eins og þeir eru kall­aðir) lögðu þegar undir sig fjöl­margar bygg­ingar hers­ins. Á þessum tíma var ekki hlaupið að því fyrir ungt fólk að kom­ast yfir hús­næði og því voru margir til­búnir að setj­ast að í „frí­rík­inu“. Margir þeirra sem fluttu í Krist­janíu í upp­hafi búa þar enn en íbú­arnir eru í kringum eitt þús­und.

Þótt segja megi að Krist­janía sé eins­konar ríki í rík­inu og þar sé margt með öðrum hætti en víð­ast hvar þýðir það ekki að íbú­arnir hafi algjör­lega frjálsar hendur um alla hluti. Margir stjórn­mála­menn hafa iðu­lega haft horn í síðu Krist­janíu og íbú­anna. Fyrir nokkrum árum náð­ist hins­vegar sam­komu­lag um fram­tíð svæð­is­ins, hluti þess sam­komu­lags var að íbú­arnir myndu kaupa hluta lands­ins og hafa sam­vinnu við borg­ar­yf­ir­völd, nokkuð sem þeir höfðu lítt kært sig um fram að því.

Pusher Street og hassið

Fljót­lega eftir að Krist­janía varð til varð svæðið að eins konar mið­stöð versl­unar með hass. Þótt salan væri ólög­leg aðhafð­ist lög­reglan lítið framan af og sá að mestu leyti „í gegnum fingur sér“. Krist­janía var frá upp­hafi vin­sæll við­komu­staður ferða­manna sem flykkt­ust þangað til að sjá þetta „fyr­ir­bæri“ þar sem lífstakt­ur­inn var, og er á ýmsan hátt öðru­vísi en fólk á að venj­ast. Hassneysla var á þessum árum, eftir 1970, orðin tals­vert útbreidd og bæði ferða­menn og heima­fólk vissu að í Krist­janíu var hægur vandi að verða sér úti um „grasið“. Salan á hass­inu hefur alla tíð verið að mestu tak­mörkuð við til­tekna götu sem gengur undir nafn­inu Pusher Street. Talið er að árleg velta á „hass­mark­aðnum“ í Krist­janíu sé allt að millj­arði danskra króna, 17 – 18 millj­örðum íslenskum. Það er mikið fé og þess vegna margir sem gjarna vilja fá bita af kök­unni.

Mót­or­hjóla­gengin sölsa undir sig mark­að­inn

Á 40 ára afmæli Krist­janíu, 2011, ræddi skrif­ari þessa pistils við fjöl­miðla­full­trúa íbú­anna. Þegar spurt var hvað það væri sem helst gæti ógnað fram­tíð svæð­is­ins stóð ekki á svar­inu: „við höfum mestar áhyggjur af rokk­ur­unum (mót­or­hjóla­gengj­unum) sem reyna með góðu og illu að sölsa undir sig hass­mark­að­inn. Þeir svífast einskis, beita ofbeldi og gera út sölu­menn sem lifa við stöðugar hót­anir“. Svo mörg voru þau orð árið 2011 og síðan þá hafa rokk­ar­arnir barist hart til að ná undir sig hass­mark­aðnum og ráða nú stórum hluta hans. Danskir fjöl­miðlar full­yrða að ungi mað­ur­inn sem særði lög­reglu­menn­ina og var síðar skot­inn til bana hafi verið hlaupa­drengur hjá bak­mönn­unum svoköll­uðu, þeim sem stjórna hass­söl­unni.

Hörð viðbrögð stjórnmálamanna

Danskir stjórn­mála­menn hafa brugð­ist hart við. Segja að nú sé mælir­inn fullur og Krist­janitt­arnir verði að bregð­ast við. Tónninn er harð­ari en áður og engin leið sé að una því að lög­reglu­menn fái ekki að sinna störfum sínum.

Íbúarnir rifu hassbúðirnar

Á fjöl­mennum fundi sl. fimmtu­dags­kvöld, sól­ar­hring eftir að skotið var á lög­regl­una héldu íbúar Krist­janíu fjöl­mennan íbúa­fund. Ekkert spurð­ist út hvað fram fór á fund­inum en morg­un­inn eftir (föstu­dag) létu tugir Krist­jan­íu­búa til skarar skríða og hófu nið­ur­rif hass­básanna í Pusher Street. Lög­reglan hefur nokkrum sinnum á und­an­förnum árum látið rífa bás­ana í tengslum við svo­nefndar rass­íur en þetta er í fyrsta sinn sem íbú­arnir sjálfir rífa þá niður. Þeir hafa líka skorað á almenn­ing að leggja sér lið með því að versla ekki við sölu­menn á svæð­inu. „Við Krist­jan­íu­búar getum ekki einir sigr­ast á has­s­kóng­unum“ sagði fjöl­miðla­full­trúi íbú­anna í við­tali við danska útvarpið.

Hvað gera sölumennirnir nú?

Þessari spurn­ingu er ekki auðsvarað. Það er vitað mál að þeir gef­ast ekki upp og tak­ist þeim ekki að koma sér fyrir á nýjan leik inni í Krist­janíu má búast við að þeir reyni fyrir sér í nágrenn­inu. Krist­jan­íu­búi sem pistla­skrif­ari hafði tal af sagð­ist búast við hinu versta og byssu­skotin í fyrra­kvöld yrðu ekki þau síð­ustu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár