Maður afhöfðaður í hryðjuverkaárás í Frakklandi

Hryðju­verka­lög­regla í Frakk­landi hefur hand­tekið einn mann grun­aðan um hryðju­verk í verk­smiðju í frönsku borg­inni Lyon. Einn maður fannst lát­inn í verk­smiðj­unni, og hafði hann verið afhöfð­aður. Franskir fjöl­miðlar greina frá því að fáni Íslamska rík­is­ins hafi fund­ist á staðnum, og að búið hafi verið að skrifa skila­boð á arab­ísku á höfuð manns­ins.

Fregnir herma að margar litlar spreng­ingar hafi orðið í verk­smiðj­unni um klukkan tíu að stað­ar­tíma. Þá var sagt að tveir árás­ar­menn hefðu sést keyra inn í verk­smiðj­una. Aðeins einn hefur þó verið hand­tek­inn, sem fyrr segir.

Francois Hollande Frakk­lands­for­seti hélt stuttan blaða­manna­fund rétt í þessu þar sem hann er staddur á leið­toga­fundi í Brussel. Hann greindi frá því að tveir til við­bótar við hinn látna væru slas­aðir, en greindi ekki nánar frá því. Hann sagði einnig að búið sé að bera kennsl á mann­inn sem hefur verið hand­tek­inn, en fjöl­miðlar höfðu greint frá því í morgun að hann hefði ekki verið með nein skil­ríki á sér og hafi neitað að tala við lög­reglu. Hollande hélt aftur til Frakk­lands um leið og hann hafði rætt við fjöl­miðla í Brussel. „Þetta er hryðju­verka­árás, það er eng­inn vafi um það,“ sagði hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár