OPUS hyggst kæra til Mannréttindadómstóls

OPUS lög­menn hyggj­ast leggja fram mál sein­færra for­eldra til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu, en Hæsti­réttur svipti þá for­ræði yfir dóttur sinni í jan­úar.

Mannréttindadómstóll Evrópu
Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu Mynd: EPA

Sein­færir for­eldrar sem sviptir voru for­ræði dóttur sinnar af Hæsta­rétti í jan­úar hyggj­ast kæra nið­ur­stöð­una til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá OPUS lög­mönnum, sem birt var í dag.

Samkvæmt OPUS telja for­eldr­arnir, sem báðir telj­ast sein­færir, að brotið hafi verið í bága við rétt­indi þeirra til frið­helgis einka­lífs í nýlegum dómi Hæsta­réttar þar sem þeir voru sviptir for­ræði dóttur sinnar. Hjá Mann­rétt­inda­dóm­stólnum sé til staðar ítar­leg dóma­fram­kvæmd sem útlistar hver rétt­indi sein­færra for­eldra skuli vera þegar áhyggjur eru til staðar af upp­eld­is­að­stæðum á heim­il­inu.

Samkvæmt for­eldr­unum hafði Barna­vernd­ar­nefnd farið offari í kröfu­gerð gagn­vart þeim og litið fram hjá rétt­indum þeirra og gert kröfu um svipt­ingu for­sjár að ósekju.

For­eldr­arnir telja ljóst að aðrir sein­færir for­eldrar muni búa við mun lak­ari rétt­ar­stöðu á Íslandi miðað við í öðrum Evr­ópu­ríkjum. Þeir vona að mál þeirra verði til þess að barna­vernd­ar­yf­ir­völd og dóm­stólar breyti máls­með­ferð gagn­vart sein­færum for­eldrum, þeim sjálfum og börnum þeirra til hags­bóta.

Flosi H. Sig­urðs­son hdl., einn eig­anda OPUS lög­manna fer með málið fyrir hönd for­eldr­anna hjá Mann­rétt­inda­dóm­stóli Evrópu. Sjóður í eigu Þroska­hjálpar mun styrkja mál for­eldr­anna fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stólnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mannréttindadómstóll

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár