Þjóðaröryggisráðgjafinn leysir frá skjóðunni

John Bolton sem starf­aði sem þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafi Donalds Trumps lýsir honum sem spilltum, fávísum og kæru­lausum í nýrri bók sinni, The Room Where it Happened sem kemur út á þriðju­dag.

John Bolton starfaði sem þjóðaröryggisráðgjafi Donalds Trumps í 17 mánuði.
John Bolton starf­aði sem þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafi Donalds Trumps í 17 mán­uði. Mynd: EPA

Mikill styr hefur staðið um vænt­an­lega bók John Boltons, The Room Where it Happened, en bókin kemur út í Banda­ríkj­unum á þriðju­dag­inn næst­kom­andi. Í leitan sinni við að stöðva útgáfu bók­ar­innar hefur dóms­mála­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna til að mynda höfðað mál gegn Bolton. Ráðu­neytið hefur kraf­ist þess að útgáfan verði stöðvuð þar sem í bók­inni megi finna leyni­legar upp­lýs­ingar sem stefnt geti þjóðar­ör­yggi Banda­ríkj­anna í hættu. Þá sakar ráðu­neytið hann um að hafa ekki staðið við skuld­bind­ingar sínar um yfir­lestur sem hefði komið í veg fyrir að við­kvæmar upp­lýs­ingar röt­uðu í bók­ina.

Umfjöll­un­ar­efni bók­ar­innar er fyrst og fremst mán­uð­irnir 17 sem Bolton starf­aði við hlið Trumps sem þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafi hans. Í bók­inni er Bolton sagður lýsa Donald Trump sem spilltum, fávísum og kæru­lausum leið­toga sem mis­beitir valdi emb­ættis síns sér í hag og lætur jafn­vel hag þjóð­ar­innar mæta afgangi í emb­ætt­is­færslum sínum.

Töluvert hefur verið fjallað um bók­ina í erlendum miðlum og hafa ýmis atriði í bók­inni verið dregin saman á vef­síðum þeirra. Sumar sög­urnar eru grát­bros­legar en aðrar segja frá afglöpum sem Bolton segir að hefðu átt að vera rann­sökuð betur í tengslum við ákæru á hendur for­set­ans fyrir emb­ætt­is­brot sem hann var að lokum sýkn­aður af.

Það sem mesta athygli hefur vakið eru full­yrð­ingar Boltons um aðgerðir for­set­ans sem hefðu átt að vera rann­sak­aðar í tengslum við ákæru á hendur for­set­ans fyrir emb­ætt­is­brot sem hann var að lokum sýkn­aður af. Trump var þá sak­aður um að hafa beitt þrýst­ingi til þess að reyna að fá úkra­ínsk yfir­völd til að hefja rann­sókn á demókrötum. Í bók­inni full­yrðir Bolton að Trump hafi verið fús til þess að hlut­ast til um rann­sóknir dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins til þess að vinna sér inn greiða hjá erlendum stjórn­mála­leið­togum og ein­ræð­is­herrum. Þetta eru meðal atriða úr bók Boltons sem New York Times hefur tekið saman.

Greiði fyrir greiða

Fyrsta málið sem tekið er fyrir í umfjöllun New York Times snerta ásak­an­irnar sem voru í for­grunni ákærunnar fyrir emb­ætt­is­brot for­set­ans, þrýst­ingur sem hann á að hafa beitt úkra­ínsk stjórn­völd. Málið lýsir sér þannig að Trump á að hafa farið fram á að í skiptum fyrir hern­að­ar­að­stoð til Úkraínu myndu stjórn­völd þar í landi til­kynna það að hafin væri rann­sókn á meintum mis­gjörðum nokk­urra demókrata, þar á meðal Joe Bidens, en Biden er vita­skuld helsti and­stæð­ingur Trumps á póli­tíska svið­inu í Banda­ríkj­unum.

Trump hafi þar með notað hern­að­ar­að­stoð­ina, sem nemur alls 391 milljón banda­ríkja­dala af opin­beru fé, til þess að reyna að kría út aðstoð frá erlendu ríki sem myndi svo hjálpa honum í sinni póli­tísku bar­áttu. Það eru þessi skipti á fjár­munum og afskiptum úkra­ínskra yfir­valda sem ákæran um emb­ætt­is­brot sner­ist um, sem sagt greiði fyrir greiða (e. quid pro quo). Í rétt­ar­höld­unum sjálfum var mál­flutn­ingur vitna sleg­inn út af borð­inu vegna þess að sönn­un­ar­gögn þeirra voru fengin í gegnum milli­liði. Bolton var hins vegar við­staddur og því getur hann gefið raunsanna mynd af því hvernig Trump hafi reynt að hrinda rann­sókn yfir­valda Úkraínu af stað.

Bolton segir að hann ásamt utan­rík­is­ráð­herr­anum Mike Pompeo og varn­ar­mála­ráð­herr­anum Mark Esper hafi ítrekað reynt að sann­færa for­set­ann um að láta hern­að­ar­að­stoð­ina af hendi. Úkraínsk yfir­völd hafi nauð­syn­lega þurft á henni að halda vegna átaka sem úkra­ínski her­inn stæði í. Að sögn Boltons hafi Trump sagst ekki vilja láta úkra­ínsk stjórn­völd hafa eitt né neitt fyrr en þau hefðu látið öll gögn sem snúa að rann­sókn á Hillary Clinton og Biden af hendi.

Í bók­inni segir Bolton sig hafa efast um að Trump hafi verið réttum megin við lögin í mál­inu og að hátt­semi hans hafi alls ekki sæmt for­seta Banda­ríkj­anna. Málið hafi auk þess haft nokkur áhrif á það að Bolton hafi á end­anum ákveðið að hætta sem þjóðar­ör­ygg­is­full­trúi Trumps.

En hvers vegna bar hann ekki vitni?

Þingmenn demókrata hafa gagn­rýnt Bolton fyrir það að hafa ekki borið vitni gegn Trump. Hvers vegna leiddi hann ekki hið sanna í ljós í stað þess að sitja á upp­lýs­ing­unum og hafa svo vel upp úr þeim með því að gefa þetta allt út á bók?

Útskýr­ingu Bolton á þess­ari hlið máls­ins má finna í eft­ir­mála bókar hans. Eftir að þingið hafi sam­þykkt að ákæra Trump fyrir mis­beit­ingu valds hafi Bolton ætlað að bera vitni fyrir öld­unga­deild­inni ef gefin hefði verið út kvaðn­ing þess efnis. Svo fór á end­anum að repúblikanar í öld­unga­deild­inni komu í veg fyrir að hann bæri vitni. Það gerðu öld­unga­deild­ar­þing­menn­irnir eftir að fréttir fóru að ber­ast af því að í óbirtu hand­riti Boltons, sem nú er rétt óút­komið, hefði hann full­yrt að Trump hefði gerst sekur um að bjóða úkra­ínskum yfir­völdum hern­að­ar­að­stoð­ina í skiptum fyrir þeirra aðstoð.

Bolton kennir demókrötum um að svo fór sem fór. Að hans mati hafi demókratar verið á of mik­illi hrað­ferð við að koma mál­inu í gegnum þingið. Málið hafi því ein­ungis snúið að sam­skiptum Trumps við Úkraínu en ekki höfðað á breið­ari grunni.

Staðið í vegi fyrir réttlætinu

Á meðal þeirra atriða sem Bolton telur að þingið hefði átt að rann­saka eru meðal ann­ars vilji Trumps til þess að hlut­ast til um rann­sóknir dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins. Það geri Trump sem per­sónu­lega greiða fyrir erlenda ein­ræð­is­herra sem honum fellur vel við.

Í áður­nefndri umfjöllun New York Times um bók­ina er til dæmis sagt frá því að Trump hafi heitið Racep Tayyip Erdogan Tyrk­lands­for­seta að hann myndi redda mál­unum fyrir Halkbank, tyrk­nesks banka sem lá undir rann­sókn dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins vegna gruns um að bank­inn hefði staðið í millj­arða dala ráða­bruggi sem sneri að því að kom­ast hjá við­skipta­þving­unum sem Banda­ríkin hafa beitt gegn Íran. Sömu sögu er að segja af kín­verska fjar­skipta­fyr­ir­tæk­inu ZTE en Bolton segir Trump hafa lofað Xi Jinping, for­seta Kína, því að ZTE myndi ekki hljóta alltaf harða refs­ingu fyrir að snið­ganga sam­bæri­legar við­skipta­þving­anir.

Það hefur vænt­an­lega verið Trump afar mik­il­vægt að halda góðu sam­bandi við Xi ef marka má ásak­anir Bolton í garð Trumps. Í bók­inni er full­yrt að Trump hafi biðlað til Xi Jinping um aðstoð við að ná end­ur­kjöri. Sú aðstoð myndi fela í sér kaup Kínverja á banda­rískum land­bún­að­ar­af­urðum, sem myndi þá hjálpa Trump að afla sér, eða halda, fylgi í þeim ríkjum Banda­ríkj­anna þar sem land­bún­aður er mik­il­væg atvinnu­grein.

Fávís forseti

Líkt og áður segir snú­ast ekki allar sög­urnar í bók­inni um mis­beit­ingu valds eða afglöp for­set­ans. Þar má einnig lesa sögur sem ef til vill eiga að sýna fram á hve fávís for­set­inn er. Til dæmis er sagt frá því í umfjöllun BBC að Trump hafi ekki vitað að Bretar réðu yfir kjarn­orku­vopnum. Á fundi með Theresu May á emb­ætt­is­maður að hafa vísað til Bret­lands sem kjarn­orku­veldis. Trump svarar þá „Ó, svo þið eruð kjarn­orku­veldi?“ Bolton tekur það skýrt fram að ekki hafi verið um grín að ræða.

En það voru fleiri gloppur í vit­neskju for­set­ans. Skömmu fyrir fund með Vladimir Pútín Rúss­lands­for­seta sem hald­inn var í Helsinki, höf­uð­borg Finn­lands, á Trump að hafa spurt hvort Finnland væri í raun og veru lepp­ríki Rúss­lands.

Litli eldflaugamaðurinn

Svo er það ef til vill furðu­leg­asta sagan af þeim öllum: sagan af sam­skiptum Trumps við Kim Jong-un, ein­ræð­is­herra Norður-Kóreu, sem gerð eru skil í umfjöllun The New Yorker. Baksagan er sú að árið 2017 hóf Trump að upp­nefna Kim á Twitter í kjöl­far eld­flauga­til­rauna Norður-Kóreu og til­rauna þeirra með kjarna­vopn. Kallaði Trump þá Kim ýmist Eld­flauga­mann­inn (e. Rocket Man) eða Litla eld­flauga­mann­inn (e. Little Rocket Man).

Þegar sam­band leið­tog­anna fór að skána varð Trump svo mjög upp­tek­inn af því að koma höndum yfir áritað ein­tak af Rocket Man, lagi Elton John, á geisla­diski. Diskinn átti svo að færa Kim Jong-un sem eins konar sátta­gjöf. Trump vildi enda meina að hann hefði ekki upp­nefnt Kim, hann hafi öllu heldur gefið honum gælu­nafn — svona eins og vinir gera.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár