Skjótar ákvarðanir teknar - Öryggi sjúklings vikið til hliðar

Rann­sókn­ar­nefnd sem for­stjóri Land­spít­ala og rektor Háskóla Íslands skip­uðu í fyrra til að rann­saka svo­kallað plast­barka­mál birti skýrslu sína í dag og kynnti á fundi í Norræna hús­inu.

Nefnd - María Sigurjónsdóttir og Páll Hreinsson.
Nefnd - María Sig­ur­jóns­dóttir og Páll Hreins­son. Mynd: Bára Huld Beck

Miklar vænt­ingar voru um skjótan árangur og fljót­færn­is­legar ákvarð­anir voru teknar varð­andi barka­ígræðslu ítalska skurð­lækn­is­ins Paolo Macchiarini, sem gerðar voru á Kar­ólínska sjúkra­hús­inu í Svíþjóð, meðal ann­ars á sjúk­lingi frá Íslandi. Öryggi sjúk­lings var vikið til hliðar.

Þetta kom fram í kynn­ingu, sem haldin var síð­degis í Norræna hús­inu, á nýrri skýrslu rann­sókn­ar­nefndar sem for­seti Land­spít­ala og rektor Háskóla Íslands skip­uðu í fyrra til að rann­saka plast­barka­málið. Þrír óháðir utan­að­kom­andi sér­fræð­ingar voru fengnir til að rann­saka aðkomu Háskól­ans, Land­spít­ala og starfs­manna þeirra að plast­barka­mál­inu. Nefndin átti líka að meta hvort ákvarð­anir íslensku lækn­anna á Land­spít­ala sem komu að mál­inu hafi verið í sam­ræmi við lög, reglur og verk­ferla.

Í nið­ur­stöðum skýrsl­unnar segir m.a. að ekk­ert í gögnum plast­barka­máls­ins bendi til þess að Tómas Guð­bjarts­son hafi mátt vera ljóst að hin mögu­lega plast­barka­að­gerð skorti öll nauð­syn­leg opin­ber leyfi og yrði því í and­stöðu við sænsk lög og við­teknar siða­reglur á þessu sviði.

Aðgæslu­sömum lækni hefði aftur á móti átt að vera ljóst, sam­kvæmt nefnd­ar­mönnum, af lestri bréfa sem Tómasi höfðu borist frá læknum á Karol­inska háskóla­sjúkra­hús­inu að verið var að ræða um óhefð­bundna og óvenju­lega aðgerð á bark­anum.

Af þeim sökum telur nefndin að eðli­leg við­brögð hefðu verið í fram­hald­inu að óska frek­ari upp­lýs­inga sér­stak­lega varð­andi það sem var ill­skilj­an­legt í bréf­unum.

[links]

Páll Hreins­son, dóm­ari við EFTA-dóm­stól­inn, er for­maður nefnd­ar­innar. Hann kynnti nið­ur­stöð­urnar á fundi síð­degis í dag. Með honum í nefnd­inni sat María Sig­ur­jóns­dóttir, sér­fræð­ingur í geð­lækn­ingum við rétt­ar­geð­deild­ina í Dikemark í Noregi, en Georg Bjarna­son, krabba­meins­læknir og vís­inda­maður við Sunnybrook-stofn­un­ina í Toronto í Kanada komst ekki á fund­inn vegna anna.

Skýrslan er viða­mikil og mun Kjarninn fjalla um nið­ur­stöður nefnd­ar­innar í ýtar­legu máli næstu daga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár