Árið 2015 stefnir í að verða hlýjasta ár sögunnar

Árið 2015 stefnir í að verða hlýjasta ár síðan mæl­ingar hófust. Nú þegar hafa þrír mán­uðir bætt mán­að­ar­með­al­töl hita­stigs í heim­inum. Hlýjasta ár sög­unnar hingað til var í fyrra.

Nýliðinn júní­mán­uður er meðal þeirra mán­uða þar sem með­al­hiti var hærri en fyrra hita­met, sam­kvæmt stærstu veð­ur­stofum í heimi. Það eru veð­ur­stofa Geim­ferð­ar­stofn­unar Banda­ríkj­anna, Lofts­lags­stofnun Japan og sjávar- og lofts­lags­stofnun Banda­ríkj­anna.

Fyrstu sex mán­uðir árs­ins eru sam­an­lagt þeir hlýj­ustu sem mældir hafa verið, sem eykur lík­urnar á því að árið 2015 muni bæta hita­metið sem sett var í fyrra. Júní, til að mynda, var ekki aðeins hlýjasti júní­mán­uð­ur­inn, heldur fjórði hlýjasti mán­uður fyrir hvaða mánuð árs­ins, síðan mæl­ingar hófust.

Loftslag árið 2014 og valin tilfelli


Smelltu á pinn­ana til að lesa um hvert afbrigði. Bláu blett­irnir á kort­inu sýna með­alköld­ustu bletti jarðar árið 2014. Kortið byggir á gögnum Veð­ur­stof­unnar, NOAA og AFP.


Að ein­hverju leyti má kenna veð­ur­af­brigð­inu El Niño sem nú er að mynd­ast í Kyrra­hafi. Veð­ur­af­brigðið verður til annað hvert ár og á það til að auka með­al­hita á allri plánet­unni. Áhrif El Niño geta hins vegar ekki ein skýrt þessar miklu hita­breyt­ingar sem nú eiga sér stað.

Til dæmis hafa 14 af 15 hlýj­ustu árum síðan mæl­ingar hófust á seinni hluta 19. aldar verið á þess­ari öld; eftir árið 2000. Kjarninn fjall­aði um það í febr­úar, þegar árs­með­al­tal árs­ins 2014 lá fyrir, að öll ár 21. ald­ar­innar hafi nú raðað sér á lista fimmtán hlýj­ustu ára sög­unnar. Aðeins árið 1998 kemst einnig á þann lista.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár