Öll ár 21. aldarinnar á lista 15 hlýjustu áranna

Árið 2014 var hlýjasta ár að með­al­tali á Jörðinni síðan mæl­ingar hófust árið 1880. Það þýðir að öll ár 21. ald­ar­innar raða sér á lista fimmtán hlýj­ustu ára sög­unnar. Aðeins árið 1998 kemst einnig á þann lista.

Árs­með­al­hiti árs­ins 2014 var 0,69°c yfir með­al­hita­stigi 20. ald­ar­innar sem er 13,9°c. Síðustu hita­met á árs­grund­velli voru sett árin 2005 og 2010. Síðasta ár sló þau met mynd­ar­lega með 0,04°c mun. Árið 2014 er jafn­framt 38. árið í röð þar sem með­al­hit­inn er yfir með­al­hita 20. aldar.

Jafn­framt þykir merki­legt að hita­metið hafi fallið árið sem ekk­ert El Niño eykur hita­stigið í and­rúms­loft­inu. El Niño er veð­ur­af­brigði í Kyrra­haf­inu sem verður fjórða eða sjötta hvert ár og veldur hlýnun á áhrifa­svæði sínu um eina til þrjár gráður. Fyrri hita­met hafa flest fallið á El Niño-ári.

Þetta kemur veður- og lofts­lags­fræð­ingum þó ekk­ert ofboðs­lega á óvart því, eins og Kjarninn greindi frá í nóv­em­ber, var með­al­loft­hiti Jarðar í októ­ber sá mesti í sög­unni ásamt októ­ber 2005. Ef árs­metið átti ekki að falla hefðu nóv­em­ber og des­em­ber þurft að verða einkar kaldir.

Úrkoma á árinu 2014 var nærri með­al­tali síð­ustu ára en undir með­al­tali lengra tíma­bils. Lofts­lags­stof­unun Banda­ríkj­anna segir þetta vera þriðja árið í röð þar sem úrkoma sé nærri með­al­tölum í mæl­ingum á landi. Eðlilegt sé þó að úrkomu­magn sé mis­mun­andi milli svæða eins og raunin var í fyrra.

Í þessu til­liti er, til dæmis, hægt að minn­ast á mikla gróð­ur­elda sem geisuðu í Kali­forníu allt árið. Þar var útkoma eins lítil og hún hefur nokkurn tíma verið þannig að for­sendur fyrir gróð­ur­elda voru veru­lega góðar.

[caption id="attachment_18882" align="alignnone" width="1000"] Gríð­ar­miklir gróð­ur­eldar geisuðu í Kali­forníu í Banda­ríkj­unum á síð­asta ári vegna þurrka. Rúmlega 2,5 fer­kíló­metra stórt land­svæði brann. Tveir lét­ust vegna eld­anna á síð­asta ári.[/caption]

Undirbúa sáttmála í París


Hinn 9. febr­úar næst­kom­andi munu samn­inga­við­ræður fyrir lofts­lags­ráð­stefn­una í París halda áfram í Genf í Sviss. Í París eru vonir bundnar við að hægt verði að skrifa undir lofts­lags­sátt­mála allra þjóða. Þar er ætl­unin að sam­ein­ast um nauð­syn­leg skref til að hægja á og á end­anum stöðva hlýnun Jarðar.

Ráð­stefnan í París verður haldin í des­em­ber. Ekki hafa verið bundnar jafn miklar vænt­ingar við árlega lofts­lags­ráð­stefnu síðan Kaupa­manna­höfn tók á móti ráð­stefnu­gestum árið 2009. Undir lok ráð­stefn­unnar það árið hrundu allar áætl­anir um sam­komu­lag vegna ósættis milli rík­ari og fátæk­ari þjóða.

Dönskum stjórn­endum fund­ar­ins var að mestu kennt um hvernig fór enda þótti þeim farn­ast illa að stýra umræð­unum frá sprengju­svæði stétta­skipt­ingar í heim­inum. Alþjóða­sam­fé­lag­inu þykja Frakkar öllu lipr­ari í þessu hlut­verki og þess vegna er gert ráð fyrir að betur gangi í sam­komu­lags­átt í ár.

Nánar verður fjallað um hlýnun Jarðar í Þætti um kúl hluti í Hlað­varpi Kjarnans á þriðju­dag 3. febr­úar.

[caption id="attachment_18883" align="alignnone" width="1000"] Danir stjórn­uðu lofslags­ráð­stefn­unni í Kaupa­manna­höfn 2009 en þótti alls ekki hafa tek­ist nógu vel til. Lars Løkke Rasmus­sen var þá for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur og tók sjálfur að sér fund­ar­stjórn þegar allt hafði silgt í strand.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár