Ólöf Helga býður sig fram til forseta ASÍ gegn Ragnari Þór

Ólöf Helga Adolfs­dóttir, rit­ari stjórnar Eflingar, hefur til­kynnt um fram­boð sitt til for­seta Alþýðu­sam­bands Íslands. Hún vill leggja sitt að mörkum til að hreyf­ingin þjóni öllu félags­fólki, óháð póli­tískum skoð­unum þess.

Ólöf Helga Adolfsdóttir
Ólöf Helga Adolfs­dóttir Mynd: Þórunn Hafstað

Ólöf Helga Adolfs­dóttir, rit­ari stjórnar Eflingar, hefur til­kynnt um fram­boð sitt til for­seta Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ). Þar með er komið fram mót­fram­boð gegn Ragnari Þór Ing­ólfs­syni, for­manni VR, sem hafði áður til­kynnt að hann sækt­ist eftir því að verða næsti for­seti ASÍ á þingi sam­bands­ins sem hefst á mánu­dag. Drífa Snædal hætti sem for­seti ASÍ í ágúst.

Í til­kynn­ingu frá Ólöfu Helgu segir að Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, vilji nú í valda­banda­lagi við Ragnar Þór Ing­ólfs­son og Vilhjálm Birg­is­son, taka yfir ASÍ. Í gegnum hóp­upp­sagnir á skrif­stofu Eflingar fórn­uðu þau trú­verð­ug­leika verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og félags­fólki fyrir eigin valda­hags­muni. Óljóst er hvað þrí­eykið vill með sam­bandið. En það hefur komið skýrt fram að þau munu ekki hafa rúm fyrir aðrar skoð­anir en sínar eigin og vilja stjórna í krafti meiri­hlutaræðis. Allir sem mót­mæla þeim fá yfir sig fúk­yrða­flaum – og þegar önnur sjón­ar­mið eru sett fram er þeim mætt með hót­unum og offorsi.“

[adspot]Hún hafi sjálf verið virk í verka­lýðs­bar­átt­unni und­an­farin ár og setið í stjórn Eflingar frá árinu 2019. „Ég hef unnið lág­launa­störf alla mína starfsævi, að frá­töldum þeim mán­uðum sem ég gegndi emb­ætti vara­for­manns Eflingar. Sem for­seti ASÍ hef ég áhuga á að að leiða fólk saman og starfa með öllum aðild­ar­fé­lögum innan hreyf­ing­ar­innar. Ég vil leggja mitt af mörkum til að hreyf­ingin þjóni áfram öllu sínu félags­fólki, óháð póli­tískum skoð­unum þess. Ég trúi að lýð­ræðið snúst ekki aðeins um atkvæða­greiðslu eða hausa­taln­ingu, heldur ferli og umræðu þar sem öll sjón­ar­mið skipta máli. Ég trúi á ASÍ sem breið­fylk­ingu. Framundan er þungur vetur kjara­við­ræðna þar sem við verðum að snúa bökum saman og ná fram raun­veru­legum kjara­bótum. Ég tel mik­il­vægt að verka­lýðs­hreyf­ingin sé bæði sam­einuð og sterk og býð fram mína krafta til að vinna að því.“

Ragnar Þór sá eini sem hafði tilkynnt framboð

Ragnar Þór greindi frá fram­boði sínu um miðjan sept­em­ber. Í sam­tali við Kjarnann sagði hann að í aðdrag­and­anum hafi hann átt fundi með for­ystu­fólki úr aðild­ar­fé­lögum innan ASÍ til að kanna hvort stuðn­ingur væri við þær hug­myndir sem hann hefði um fram­tíð sam­bands­ins og áherslu­breyt­ingar í störfum þess næðu út fyrir þann hóp stétt­ar­fé­laga sem staðið hefðu „dá­lítið þétt sam­an“ og átti hann þar við stétt­ar­fé­lög í Grinda­vík, Akra­nesi og svo Efl­ingu stétt­ar­fé­lag.

Drífa Snæ­dal sagði af sér emb­ætti for­seta 10. ágúst og sagði hún sam­skipti við ýmsa kjörna full­trúa innan sam­bands­ins og sú blokka­myndun sem þar hefði átt sér stað gera sér ókleift að starfa áfram sem for­seti.

Í yfir­lýs­ingu sem hún birti er hún til­kynnti um brott­hvarf sitt gagn­rýndi hún for­ystu bæði Efl­ingar og VR og sagð­ist hafa þurft að „bregð­­ast við linn­u­­lausri, en óljósri gagn­rýni for­­manns VR“ á sín störf.

Átök í lengri tíma

Ólöf Helga og Sólveig Anna, for­maður Eflingar, hafa átt í deilum á und­an­förnum mán­uðum. Þær leiddu sitt hvorn list­ann í stjórn­ar­kjöri Eflingar í febr­úar. Þar bar listi Sól­veigar Önnu sigur úr býtum, fékk 52 pró­sent greiddra atkvæða, en listi Ólafar Helgu fékk 37 pró­sent. Alls greiddu 3.900 af þeim 25.842 sem voru á kjör­skrá atkvæði.

Sólveig Anna hafði sagt af sér sem for­maður haustið 2021 og tók Agnieszka Ewa Ziólkowska við kefl­inu. Við það varð Ólöf Helga vara­for­maður Eflingar.

[links]Kjarninn greindi frá því í gær að Agnieszka hefði fengið aðgang að tölvu­póst­hólfum Sól­veigar Önnu og Viðars Þor­steins­sonar, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Eflingar, frá því í jan­úar á þessu ári og fram í apríl. Aðgang­ur­inn var virkur eftir að Sólveig Anna var end­ur­kjörin sem for­maður Eflingar og eftir að hún tók aftur við því emb­ætti. Í álits­gerð lög­manns segir að athæfið sé brot á per­sónu­vernd­ar­lögum og Sólveig Anna ætlar að til­kynna málið til Per­sónu­verndar.

Hópur úr ell­efu verka­lýðs­fé­lögum sem til­heyra ASÍ birtu aðsenda grein á Vísi í gær þar sem þeir lýstu yfir áhyggjum af stjórn­ar­háttum Sól­veigar Önnu og Ragnars Þórs. Á meðal þeirra sem skrif­uðu undir þá grein var Ólöf Helga.

Kallaði Ólöfu Helgu „persónuverndar-glæponinn“

Sólveig Anna brást við aðsendu grein­inni og því að farið hafi verið inn í tölvu­póst­hólf hennar í færslu á Facebook í gær. Þar kall­aði hún hóp­inn sem stóð að grein­inni „smá­menni verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar“ sem þori aldrei að taka slag­inn um mál­efnin. „Þau treysta sér aldrei í raun­veru­legt debatt um aðferðir, mark­mið, sýn, sig­ur­mögu­leika. Þess vegna ljúga þau því stöðugt að eng­inn mál­efna­legur ágrein­gingur sé til staðar (ég bendi á ný á greina­flokk minn á Kjarn­anum sem að fer vel yfir allan mál­efna­lega ágrein­ing­inn), þrátt fyrir að hann sé það svo sann­ar­lega. Eða finnst ykkur, svo að dæmi sé tekið, að verka­lýðs­bar­átta verka og lág­launa­fólks sé nákvæm­lega sú sama núna og hún var áður en að ég og félagar mínir komumst til valda í Eflingu? Smámenni verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar þora ekki einu sinni sjálf að bjóða sig fram. Þau bíða bara eftir því að fram stígi ein­hver sem að þau geta hugsað sér að kjósa. Þetta væri hlægi­legt ef að þetta væri ekki svona aumk­un­ar­vert.“

Hún von­aði þó að hóp­ur­inn fyndi kjarkinn til að bjóða sig fram. „Ég vona að Finnbogi eða Þórarinn eða frama­potar­inn og per­sónu­verndar-glæpon­inn Ólöf Helga gefi kost á sér til að leiða ASÍ, og þing­full­trúar fái að velja á milli þess gamla og hins nýja. Fái að velja á milli bar­áttu­þreks og ein­beittrar löng­unar til að ná árangri fyrir vinn­andi fólk, og aum­ingja­skapar og sið­leysis. Ég trúi nefni­lega á leik­reglur lýð­ræð­is­ins. Og það er alltaf gaman þegar að við fáum að kjósa að val­kost­irnir séu eins skýrir og hægt er að hugsa sér.“

Nú hefur Ólöf Helga orðið við þeirri áskorun.

Stuðningur var háður því að það þjónaði pólitískum hagsmunum formannsins

Í til­kynn­ingu Ólafar Helgu segir einnig að ASÍ sé eitt það dýr­mætasta sem launa­fólk á Íslandi eigi. „Að setja það bar­áttu­laust í hendur fólks sem lætur eigin valda­hags­muni ganga fyrir hags­munum almenns félags­fólks væri ámæl­is­vert. Ég hef því tekið þá ákvörðun að bjóða mig fram til for­seta ASÍ á þingi sam­bands­ins sem hefst nú á mánu­dag.“

[adspot]Hún hafi kynnst af eigin raun hversu mik­il­vægt það er fyrir vinn­andi fólk að eiga skjól í sínu stétt­ar­fé­lagi. „En ég hef líka séð hveru illa það fer með fólk að eiga ekki slíkt skjól. Fyrir rúmu ári síðan var mér sagt upp störfum sem hlaðmaður á Reykja­vík­ur­flug­velli af þeirri ástæðu einni að ég vildi sinna starfi mínu sem trún­að­ar­maður á vinnu­staðnum. Stétt­ar­fé­lag mitt, Efling, tók málið föstum tökum og höfð­aði mál fyrir Félags­dómi. Samhliða var ráðiðst í fjöl­miðla­her­ferð og ég – sem hafði aldrei birst í fjöl­miðlum nema sem barn að halda tombólu – var til við­tals í öllum helstu miðlum lands­ins. Formaður og fram­kvæmda­stjóri Eflingar, Sólveig Anna Jóns­dóttir og Viðar Þor­steins­son, stilltu sér upp mér við hlið. Fram­leidd voru mynd­bönd, skrif­aðar fréttir og greinar og fólk kallað saman til mót­mæla.“

Þegar aðal­með­ferð hafi farið fram í máli hennar fyrir Félags­dómi hafi lög­maður Eflingar fylgt mál­inu eftir. „ En nú brá svo við að for­mað­ur­inn kom hvergi nærri og þagði þunnu hljóði. Engin frétt var birt á síðu Eflingar, hvað þá myndefni og ekki var kallað til mót­mæla eða sett fram ákall um sam­stöðu. Ástæða þess­ara sinna­skipta var ein­fald­lega sú að ég hafði hreyft öðrum skoð­unum á starfi og fram­tíð Eflingar en Sólveig Anna Jóns­dóttir. Ég gat því ekki annað en dregið þann lær­dóm að opin­ber stuðn­ingur félags­ins míns væri háður því að það þjón­aði póli­tískum hags­munum for­manns­ins. Þetta var ekki aðeins sárt og óþægi­legt fyrir mig, heldur ógnar svona fram­koma rétt­indum og hags­munum allra þeirra tug­þús­unda ein­stak­linga sem eru félagar í Eflingu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár