Fóru inn í tölvupósta Sólveigar Önnu og Viðars

Þá starf­andi for­maður Eflingar hafði aðgang að tölvu­póst­hólfum fyr­ir­renn­ara síns, Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur, og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Eflingar, Viðars Þor­steins­sonar, frá því í jan­úar á þessu ári og fram í apríl.

Agnieszka Ewa Ziólkowska, þá starf­andi for­maður Eflingar, óskaði þann 11. jan­úar 2022 eftir því að fá aðgang að tölvu­póst­hólfum Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur, sem hafði hætt sem for­maður stétt­ar­fé­lags­ins í nóv­em­ber 2021, og Viðars Þor­steins­sonar, sem hafði hætt sem fram­kvæmda­stjóri Eflingar á sama tíma. Í tölvu­pósti sem hún sendi til upp­lýs­inga­tækni­þjón­ustu­að­ila Eflingar stóð: „Can you setup for með the access to Sólveig and Viðar email? It should be connected to my outlook account.“

Til stuðn­ings beiðn­inni var vísað í álit lög­manns sem var dag­sett sama daga. Í álit­inu hafði umræddur lög­maður svarað spurn­ingu Ólafar Helgu Adolfs­dóttur, þáver­andi vara­for­manns Eflingar, um hvort stjórn­endur félags­ins hefðu „leyfi til að fara inn í tölvu­póstana þeirra eða þurfum við að fá leyfi frá þeim til þess?“. Svar lög­manns­ins var að þau hefðu „til þess leyfi, þ.e. til þess að nálg­ast tölvu­pósta sem til­heyra félag­inu.“

Sá sem með­tók beiðn­ina hjá upp­lýs­inga­tækni­þjón­ustu­að­ila Eflingar hafn­aði beiðn­inni. Hún var hins vegar end­ur­nýjuð degi síðar og þá með vísun í álit lög­manns Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ) sem jafn­framt er per­sónu­vernd­ar­full­trúi Eflingar.

Í kjöl­far þessa var tölvu­póst­hólf bæði Sól­veigar Önnu og Viðars hjá Eflingu tengt við tölvu­póst­kerfi Agniezku. Tölvu­póstur þeirra var því opinn til vinnslu fyrir hana að minnsta kosti frá 12. jan­úar til 13. apríl 2022, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá upp­lýs­inga­tækni­þjón­ustu­að­il­anum, án þess að nokkrar hömlur væru á aðgengi Agniezku að póst­hólf­unum og án þess að Sólveig Anna og Viðar vissu að því að aðgengið hefði verið veitt.

Á þessu tíma­bili, nánar til­tekið 15. febr­úar, var Sólveig Anna end­ur­kjörin sem for­maður Eflingar eftir bar­áttu við lista sem Ólöf Helga leiddi. Hún tók aftur við stjórn­ar­taumunum 8. apríl 2022. Því var tölvu­póst­hólf hennar opið Agniezku í tæp­lega tvo mán­uði eftir að Sólveig Anna var end­ur­kjörin og í að minnsta kosti fimm daga eftir að hún tók við sem for­maður Eflingar á ný þann 8. apríl síð­ast­lið­inn.

Þetta kemur fram í álits­gerð sem lög­maður vann fyrir Eflingu og er dag­sett í gær, 5. októ­ber. Kjarninn hefur álits­gerð­ina undir höndum.

Í nið­ur­stöðu álits­gerð­ar­innar segir lög­mað­ur­inn það vera skoðun sína að brotið hafi verið gegn rétti Sól­veigar Önnu og Viðars „við vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga úr tölvu­póst­hólfi þeirra, þegar starf­andi for­manni Eflingar var veitt óheft aðgengi að póst­hólfi fyrr­ver­andi starfs­manna Eflingar.“ Hann gerir líka sér­staka athuga­semd við ákvörðun per­sónu­vernd­ar­full­trúa Eflingar þar sem hann úrskurðar um lög­mæti þeirrar vinnslu sem farið var fram á, enda hafi hann aukið líkur á hags­muna­á­rekstrum með því að taka beina ákvörðun um vinnsl­una án þess að rann­saka hvort vinnslan væri lög­mæt. „Þannig hafi hann úti­lokað að hann gæti tekið ákvörðun síðar um lög­mæti vinnsl­unnar ef hinn skráði myndi kvarta til hans vegna vinnsl­unnar.“

Viðar Þorsteinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Eflingar, var endurráðinn til félagsins fyrr á þessu ári sem fræðslu- og félagsmálastjóri.
Viðar Þor­steins­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Eflingar, var end­ur­ráð­inn til félags­ins fyrr á þessu ári sem fræðslu- og félags­mála­stjóri.

Það sé því mat lög­manns­ins að til­kynna eigi málið til Per­sónu­verndar. Þá sé rétt að Efling yfir­fari verk­lag sitt vegna með­ferðar tölvu­pósts starfs­manna og setji upp skýrt og og upp­lýsandi verk­lag í sam­ræmi við lög og reglur um per­sónu­vernd.

Komust að málinu fyrir tilviljun

Í tölvu­póst­unum voru ýmsar per­sónu- og trún­að­ar­upp­lýs­ingar um bæði Sólveigu Önnu og Viðar og ekki síður um ýmsa ein­stak­linga sem sett höfðu sig í sam­band við þau frá vor­inu 2018, þegar þau hófu störf hjá Eflingu.

Sólveig Anna segir að hún hafi kom­ist að því að farið hafi verið inn í tölvu­póst­inn hennar fyrir til­viljun. „Á stjórn­ar­fundi í Eflingu 22. sept­em­ber vitn­aði Ólöf Helga í tölvu­póst­sam­skipti milli mín og Drífu Snædal. Ég og aðrir urðum hálf undr­andi og spurðum hvernig hún vissi hvað ég hefði verið að skrifa í tölvu­póst­sam­skiptum við Drífu? Það kemur á hana og Ólöf Helga seg­ist ekk­ert þurfa að segja okkur það.“

Sólveig Anna segir að hún hafi ekki hugsað meira um málið á þessum tíma­punkti heldur ein­fald­lega dregið þá ályktun að Ólöf Helga og Drífa hefðu verið í miklum sam­skiptum í fyrra­vetur.

Fyrir viku síðan hafi hún, ásamt starfs­manni Eflingar, þurft að nálg­ast gögn á skrif­stofu vara­for­manns Eflingar, Agnieszku Ewu. Þar hafi meðal ann­ars verið öll frum­rit af kjara­samn­ingum, ráðn­ing­ar­samn­ingar við starfs­fólk og fleira. Þegar verið var að fara í gegnum vinnu­tengd skjöl hafi Sólveig Anna fundið útprent­aða tölvu­pósta frá sér sem sendir voru frá 20 til 25. októ­ber 2020. „Þetta voru tölvu­póstar milli mín og tveggja starfs­manna sem hvor­ugir eru Agnieszka. Þetta var útprentað og ég verð mjög undr­andi.“

Degi síðar hafði hún sam­band við umsjón­ar­að­ila upp­lýs­inga­tækni­mála hjá Eflingu og spurði hvort það gæti verið að Agnieszka hefði fengið aðgang að tölvu­pósti sínum. Á end­anum fékk hún þau svör að svo hafi verið og að einnig hafi verið veittur aðgangur að tölvu­pósti Viðars Þor­steins­sonar.

Sent á alla meðlimi miðstjórnar ASÍ

Sólveig Anna segir að eftir að hún sagði af sér í fyrra­haust hafi bæði hún og Viðar afhent öll gögn sem til­heyrðu Eflingu. Þar á meðal voru vinnu­tengd gögn á USB-lyklum. Samhliða fengu þau tæki­færi til að sækja per­sónu­lega muni á starfs­stöð Eflingar. Samhliða hafi hún látið loka aðgangi sínum að ýmsum kerfum og spurt sér­stak­lega hvað myndi ger­ast ef ein­hver myndi reyna að kom­ast inn í tölvu­póst­hólfið hennar. „Ég fékk þau svör að það myndi ekki ger­ast, og ef það gerð­ist væri um grafal­var­legt per­sónu­vernd­ar­mál að ræða.“

Agnieszka Ewa Ziólkowska var formaður Eflingar um skeið og er enn varaformaður félagins.
Agnieszka Ewa Ziólkowska var for­maður Eflingar um skeið og er enn vara­for­maður félag­ins.

Að sögn Sól­veigar Önnu hefur verið tekin ákvörðun um að til­kynna málið til Per­sónu­verndar á næstu dögum. Hún seg­ist ekki vera viss um hvað annað hún ætli að gera vegna þessa. „Ég er ekki komin þangað.“

Málið var rætt á mið­stjórn­ar­fundi í ASÍ í gær að frum­kvæði Sól­veigar Önnu. Á meðal þeirra sem sitja í mið­stjórn er Agnieszka, en hún mætti ekki á fund­inn.

Eftir að fund­inum lauk sendi Kristján Þórður Snæ­bjarn­ar­son, for­maður ASÍ, tölvu­póst á alla mið­stjórn­ar­með­limi sem inni­hélt svar sem lög­fræð­ingur ASÍ hafði sent 12. jan­úar til Ólafar Helgu þegar hún óskaði eftir áliti um hvort fara mætti inn í tölvu­pósta Sól­veigar Önnu og Viðars.

Í þeim tölvu­pósti segir lög­fræð­ing­ur­inn að sitt álit sé „eftir að búið er að gefa þeim færi á að fara yfir póst­hólfið (sem og þau gerðu) þá er restin eign félags­ins og ber félag­inu í raun skylda til þess að passa upp á þau gögn svo að mál ónýt­ist ekki o.s.frv. Að sjálf­sögðu gilda ennþá reglur per­sónu­verndar og frið­helgis um þær per­sónu­grein­an­legu upp­lýs­ingar sem þar er að finna, hvort sem um er að ræða upp­lýs­ingar er varðar þau sjálf eða ein­hverja aðra. Með vísan í allt fram­an­greint tel ég enga þörf með vísan í við­eig­andi rétt­ar­heim­ildir að fá leyfi frá fyrr­ver­andi for­manni og fram­kvæmda­stjóra um aðgang að gögnum sem eru eign félags­ins. Það er mitt álit sem bæði lög­maður hjá ASÍ og sem per­sónu­vernd­ar­full­trúi Eflingar-stétt­ar­fé­lags.“

Segist bundin trúnaði

Kjarninn hafði sam­band við Ólöfu Helgu vegna máls­ins en hún er í dag rit­ari stjórnar Eflingar. Hún sagð­ist lítið geta sagt um málið þar sem hún væri ekki búin að kynna sér það í þaula og væri auk þess bundin trún­aði. „Þetta er mál sem ég get ekki talað um, ég er bundin trún­aði um það sem ég geri sem vara­for­maður þannig ég get hvorki talað um hvort þetta sé rétt eða ekki.“

Ólöf Helga Adolfsdóttir.
Ólöf Helga Adolfs­dóttir.

Ólöf Helga var vara­for­maður Eflingar á umræddu tíma­bili, frá jan­úar fram í apríl á þessu ári. Þegar henni var sagt að Sólveig Anna ætl­aði að leita til Per­sónu­verndar vegna máls­ins sagði Ólöf Helga það vera gott hjá henni. „Það er bara frá­bært. Það er mjög eðli­legt að hún leiti til þess bærra aðila ef hún telur að eitt­hvað brot hafi átt sér stað, ég held að það sé bara mjög gott hjá henni, mjög mik­il­vægt skref.“

Kjarninn reyndi að ná tali af Agnieszku í morgun en hún gat ekki rætt við blaða­mann á þeim tíma og sagð­ist ætla að hringja til baka. Hún hafði ekki haft sam­band þegar frétta­skýr­ingin var birt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið undanfarið ár