Ríkissjóður bætir Íbúðalánasjóði tjón vegna leiðréttingarinnar

Hermann Jónasson, forstjóri Íbúðalánasjóðs.
Hermann Jónasson, for­stjóri Íbúða­lána­sjóðs. Mynd: Haraldur Gudjonsson/hag

Rík­is­sjóður Íslands greiddi á síð­asta ári upp 33,8 millj­arða króna af lánum hjá Íbúða­lána­sjóði vegna leið­rétt­ing­ar­innar, aðgerð­ar­á­ætl­unar rík­is­stjórn­ar­innar til handa hluta þeirra heim­ila sem voru með verð­tryggð hús­næð­is­lán á árunum 2008 og 2009. Þessar upp­greiðslur höfðu nei­kvæð áhrif á vaxta­tekjur Íbúða­lána­sjóðs, sem er að fullu í eigu íslenska rík­is­ins og á ábyrgð þess. Rík­is­stjórnin hafði þegar tekið ákvörðun um að bæta sjóðnum upp þessar töp­uðu vaxta­tekjur. Það fram­lag átti að nema mis­muni þeirrar ávöxt­unar sem Íbúða­lána­sjóður gat vænst að ná á lánin sem rík­is­sjóður greiddi upp með leið­rétt­ing­unni og vaxta sömu lána. Í árs­reikn­ingi Íbúða­lána­sjóðs segir að „Fyrir liggur ákvörðun um að bæta sjóðnum nei­kvæð áhrif á vaxta­mun sem nemur 1.240 millj.kr. á árinu 2015. Er það gert með afhend­ingu verð­tryggðrar kröfu á ríkið sem bókast meðal krafna á rík­is­sjóð. Sjóðnum hefur ekki verið bætt það tap sem mynd­að­ist við upp­greiðslu á lána­safn­inu og hefur það tap verið fært yfir virð­is­rýrnun á árunum 2013 til 2015 og er áætlað að fjár­hæð 1.362 millj.kr.“

Því er ljóst að Íbúða­lána­sjóður ber umtals­verðan kostnað vegna leið­rétt­ing­ar­innar. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Íbúða­lána­sjóðs sem birtur var á föstu­dags­kvöld.

For­svars­menn sjóðs­ins hafa lengi gert sér grein fyrir að staða hans myndi laskast vegna leið­rétt­ing­ar­innar. Í árs­reikn­ingi hans 2014 sagði að „tjón vegna úrræða stjórn­valda mun að óbreyttu hafa mikil áhrif á grunnafkomu sjóðs­ins og valda því að sjóð­ur­inn verður hér eftir rek­inn með tapi sem á end­anum fellur á rík­is­sjóð. Ljóst er að slík umgjörð rekstrar kann að valda því að ýmsir aðrir áhættu­þættir sjóðs­ins, svo sem upp­greiðslu­vandi, geta magn­ast upp og vafi kann að leika á rekstr­ar­hæfi sjóðs­ins. Við þessar aðstæður er það mark­mið stjórn­enda að lág­marka tjón sjóðs­ins.“.

Minnkandi virðisrýrnun skilar hagnaði

Afkoma Íbúða­lána­sjóðs var um margt jákvæð á síð­asta ári. Sjóð­ur­inn skil­aði 1,8 millj­arða króna rekstr­ar­hagn­aði á árinu 2015, og er það annað árið í röð sem hann skil­aði hagn­aði eftir að hafa grætt 3,2 millj­arða króna árið 2014. Árin þar á undan höfðu hins vegar verið afar slæm. Alls tap­aði sjóð­ur­inn tæpum 58 millj­örðum króna frá árs­lokum 2008 og út árið 2013. Rík­is­sjóður þurfti að leggja honum til 53,5 millj­arða króna á árinu 2009 til að halda sjóðnum gagn­andi.

Á árinu 2014 var þorri þess hagn­aðar sem Íbúða­lána­sjóður sýndi vegna breyt­inga á virð­is­rýrnun útlána. Þ.e. inn­heimt­an­leiki lána hans jókst um 2,5 millj­arða króna. Sama var upp á ten­ingnum í fyrra. Virð­is­rýrnun útlána lækk­aði um 4,4 millj­arða króna og útskýrir því vel rúm­lega allan hagnað Íbúða­lána­sjóðs á síð­asta ári líka. Í til­kynn­ingu vegna árs­reikn­ings sjóðs­ins segir: „Breyting virð­is­rýrn­unar teng­ist umtals­verðri lækkun van­skila heim­ila og sterk­ari trygg­ing­ar­stöðu lána­safns­ins vegna hækk­ana á fast­eigna­mark­aði.“

Útlán sjóðs­ins héldu hins vegar árfram að lækka á síð­asta ári líkt og árin á undan. Þau lækk­uðu um tæpa 80 millj­arða króna í fyrra. Þar af voru, líkt og áður sagði, 33,8 millj­arðar króna vegna leið­rétt­ing­ar­innar. Íbúða­lána­sjóður er samt sem áður langstærsti íbúða­lána­veit­andi á land­inu, þrátt fyrir litla útlána­veit­ingu og miklar upp­greiðslur árum saman. Mark­aðs­hlut­deild hans, sam­kvæmt útreikn­ingum Kjarnans, er rúm­lega 40 pró­sent á íbúða­lánum til ein­stak­linga.

Framtíðarhlutverkið í óvissu

Íbúða­lána­sjóður náði líka þeim árangri, í fyrsta sinn frá árinu 2007, að eig­in­fjár­hlut­fall hans er yfir lög­bundnu lág­marki. Það lág­mark er 5,0 pró­sent og eig­in­fjár­hlut­fall fé sjóðs­ins um síð­ustu ára­mót var 5,5 pró­sent.

Fram­tíð­ar­hlut­verk Íbúða­lána­sjóðs er þó enn óljóst. Í árs­reikn­ingi sjóðs­ins segir að vaxta­munur sjóðs­ins, sem er ein­ungis 0,28 pró­sentm dugi ekki fyrir virð­is­rýrnun sam­bæri­legri þeirri sem átti sér stað við efna­hags­hrunið. Slíkt hefði legið fyrir lengi. „. Nokkurar óvissu gætir um fram­tíð­ar­hlut­verk Íbúða­lána­sjóðs. Fyrir vikið hefur stefnu­mót­andi ákvörð­un­ar­taka í nán­asta umhverfi sjóðs­ins verið sett á bið en slíkt hefur nei­kvæð áhrif á rekstur sjóðs­ins. Upp­lýs­ingar um mik­il­væg atriði, þar sem óvissa í mati hefur mest áhrif á skráðar fjár­hæðir í reikn­ings­skil­unum, er að finna í eft­ir­far­andi skýr­ingum: Lítil útlána­aukn­ing og auknar upp­greiðslur við­skipta­vina hafa nei­kvæð áhrif á vaxta­mun sjóðs­ins þar sem sjóðnum er óheim­ilt að greiða skuldir sínar fyrir gjald­daga þeirra. Því er stærra hlut­fall fjár­muna í ávöxtun utan hefð­bund­inna veð­lána til heim­ila og leigu­fé­laga. Því getur dregið út jöfn­uði milli eigna og skulda sjóðs­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár