Ekki hægt að fá upplýsingar um hvernig sérstakur persónuafsláttur skiptist

Ekki liggja fyrir upp­lýs­ingar um hvernig þeir 5,8 millj­arðar króna sem greiða á út sem sér­stakan per­sónu­af­slátt vegna leið­rétt­ing­ar­innar skipt­ast á milli ald­urs- og tekju­hópa eða lands­svæða. Það fólk sem sótti um og fékk sam­þykkta leið­rétt­ingu, en það kall­ast aðgerð rík­is­stjórn­ar­innar um að greiða niður verð­tryggð hús­næð­is­lán þeirra sem voru með slík árin 2008 og 2009, sem er ekki lengur með hús­næð­is­lán til að láta greiða inn á fær greitt í gegnum sér­stakan per­sónu­af­slátt.

Auk þess liggur ekki fyrir að nákvæm­lega 5,8 millj­arðar króna verði greiddir út í gegnum sér­stakan per­sónu­af­slátt, enda dreif­ist aðgerðin á fjögur ár. Þetta kemur fram í svörum emb­ættis rík­is­skatt­stjóra við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

Búið að óska eftir nýrri leiðréttingarskýrslu


Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, skil­aði skýrslu um aðgerð­ina í upp­hafi lið­innar viku. Skýrslan átti að vera svar við fyr­ir­spurn sem Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, hafði lagt fyrir á Alþingi átta mán­uðum áður. Katrín, og full­trúar ann­arra flokka í stjórn­ar­and­stöð­unni, voru ekki sátt með umfang þeirra upp­lýs­inga sem veittar voru í skýrsl­unni og hafa lagt fram beiðni um nýja skýrslu sem svari fleiri spurn­ingum.

I kjöl­farið lagði Vigdís Hauks­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­maður fjár­laga­nefndar, fram fyr­ir­spurn til fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um nið­ur­færslu hús­næð­is­lána sam­kvæmt 110 pró­sent leið­inni svoköll­uðu, sem fram­kvæmd var í tíð rík­is­stjórnar Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna.

Í skýrslu Bjarna er greint frá því hvernig tæp­lega 70 millj­arðar króna af þeim 80,4 millj­örðum króna sem greiddir verða út vegna leið­rétt­ing­ar­innar skipt­ast á milli ald­urs- og tekju­hópa og lands­svæða þeirra sem þiggja greiðsl­una. Í skýrsl­unni er hins vegar ekki greint frá því hvernig þeir 5,8 millj­arðar króna sem greiddir eru sem sér­stakur per­sónu­af­sláttur skipt­ist á milli ald­urs- og tekju­hópa og lands­svæða. Kjarninn beindi fyr­ir­spurn til emb­ættis rík­is­katt­stjóra vegna máls­ins.

Í svari Skúla Eggerts Þórð­ar­sonar rík­is­skatt­stjóra segir að greiðslur sér­staka per­sónu­af­slátt­ar­ins skipt­ist á fjögur ár. „Sér­stakur per­sónu­af­sláttur sem færður var á móti álagn­ingu opin­berra gjalda var kr. 1.304.876.781. Af þeirri fjár­hæð var nýttur kr. 1.174.796.054. Mis­mun­ur­inn fær­ist til næsta árs og síðan koll af kolli þar til fjögur ár eru liðin. Það sem þá er enn ónýtt fellur niður.

Því miður er vöru­hús gagna ekki til­búið vegna álagn­ingar 2015 og ekki unnt að svara spurn­ing­unni eftir tekju­bilum. Það kallar einnig á sér­keyrslu.“

Hluti fer til fólks sem borgar ekki skatta né skuldar á Íslandi


Í skýrslu fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um lækkun höf­uð­stóls verð­tryggðra lána, sem birt var á mánu­dag, voru birtar ýmsar skýr­ing­ar­myndir sem sýndu skipt­ingu þess fjár sem rík­is­sjóður greiðir í aðgerð­ina milli ald­urs- og tekju­hópa og lands­svæða.

Kjarninn kall­aði eftir frek­ari upp­lýs­ingum um töl­urnar að baki skýr­ing­ar­mynd­unum og fékk þær afhentar síð­degis á mánu­dag. Samkvæmt þeim er heild­ar­upp­hæð þess sem ráð­stafað var inn á höf­uð­stólslækk­anir ein­ungis 69,7 millj­arðar króna, ekki 80,4 millj­arðar króna líkt og sagt var að heild­ar­upp­hæðin sé í skýrsl­unni. Því vant­aði útskýr­ingar á 10,7 millj­arða króna útgjöldum í skýr­ing­ar­mynd­unum.

Kjarninn óskaði eftir skýr­ingum á þessu frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu. Samkvæmt þeim skýrist þetta mis­ræmi á því að um 5,8 millj­örðum króna á að ráð­stafa í sér­stakan per­sónu­af­slátt í gegnum skatt­kerfið, líkt og segir hér að ofan.

Í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans segir að það sem út af stendur, um 4,8 millj­arðar króna, teng­ist meðal ann­ars því að aðilar sem hafi ekki fengið birt­ingu á leið­rétt­ingu sinni og aðilar sem sam­þykktu ekki ráð­stöfun lækk­unar innan settra tíma­marka, séu ekki teknir með í grein­ing­unni. Það sem út af standi, að teknu til­liti til þess hóps, teng­ist því að„í grein­ing­ar­kafla skýrsl­unnar eru umsækj­endur sem ekki voru fram­tals­skyldir á Íslandi 2013 utan við úrtakið og því stemma ekki ráð­staf­aðar fjár­hæðir við upp­reikn­aðar heild­ar­fjár­hæðir á bak­við grein­ing­arnar.“ Því er hluti þeirra sem fær greitt úr leið­rétt­ing­unni, ein­stak­lingar sem borga ekki skatta né skulda nokkuð á Íslandi, og skila því ekki skatt­fram­tali hér­lendis. Þessi hópur getur hvorki fengið greitt inn á höf­uð­stól, þar sem hann hvorki á né skuldar af fast­eign, né sér­stakan per­sónu­af­slátt, þar sem hann greiðir ekki skatta á Íslandi.

[caption id="attachment_11688" align="alignnone" width="639"] Bjarni Bene­dikts­son og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son kynna útfærslu og umfang leið­rétt­ing­ar­innar í nóv­em­ber 2014.[/caption]

Tölurnar ekki brotnar niður


Í svari ráðu­neyt­is­ins kemur ekki fram hvernig þessir 4,8 millj­arðar króna skipt­ast á milli ofan­greindra hópa en í skýrsl­unni er til­greint að 91,9 pró­sent af heild­ar­upp­hæð­inni, 80,4 millj­örðum króna, eigi að renna inn á höf­uð­stól lána, eða alls 73,9 millj­arðar króna. Það þýðir að um fjórir millj­arðar króna til við­bótar eigi eftir að greið­ast inn á lán þeirra sem hafa ekki fengið birt­ingu á leið­rétt­ingu sinni eða hafa ekki sam­þykkt hana innan settra tíma­marka. Raunar er því fólki í sjálf­vald sett hvort það sam­þykki greiðsl­una. Miðað við þessar for­sendur, sem til­greindar eru í skýrsl­unni, fara um 700 millj­ónir króna til ein­stak­linga sem voru ekki fram­tals­skyldir á Íslandi árið 2013.

Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson kynna útfærslu og umfang leiðréttingarinnar í nóvember 2014.
Bjarni Bene­dikts­son og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son kynna útfærslu og umfang leið­rétt­ing­ar­innar í nóv­em­ber 2014.

Kjarninn hefur fjallað ítar­lega um skýrslu Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, frá því að hún kom út á mánu­dag. Hægt er að sjá hvernig þeir 69,7 millj­arðar króna sem greiddir voru inn á höf­uð­stól lána eftir ald­urs- og tekju­hópum og lands­svæðum hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár