Starfsmenn Sameinuðu þjóðanna segja frá kynferðislegri áreitni og ofbeldi

Margir núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­menn Sam­ein­uðu þjóð­anna lýsa þögg­un­ar­menn­ingu og að ferlar til að taka á slíkum málum séu gall­aðir og komi niður á þolendum.

Aðsetur Öryggisráðs í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York.
Aðsetur Örygg­is­ráðs í höf­uð­stöðvum Sam­ein­uðu þjóð­anna í New York.

Sam­ein­uðu þjóð­irnar hafa leyft kyn­ferð­is­legri áreitni og ofbeldi að grass­era á starf­stöðvum stofn­un­ar­innar víða um heim, ekki hefur verið tekið mark á frá­sögnum þolenda og ger­endur fengið að athafna sig óáreittir. Þetta kemur fram í frétt Guaridan.

Margir núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­menn Sam­ein­uðu þjóð­anna lýsa þögg­un­ar­menn­ingu og að ferlar til að taka á slíkum málum séu gall­aðir og komi niður á þolendum.

Fimmtán starfs­menn sem teknir voru í við­tal sögð­ust hafa kvartað yfir áreitni eða ofbeldi á síð­ustu fimm árum, allt frá munn­legri áreitni til nauð­gana. Sjö konur lögðu fram form­lega kvörtun, en slíkt gera fáir af ótta við að missa starf sitt eða í þeirri trú að það skili engu.

Sam­ein­uðu þjóð­irnar hafa við­ur­kennt að það sé vanda­mál hversu lítið af atvikum eru til­kynnt, en aðal­rit­ari stofn­un­ar­innar, Antonio Guterres, hafi for­gangs­raðað við­brögðum við kyn­ferð­is­legu ofbeldi og áreitni.

Starfs­menn SÞ í meira en tíu löndum ræddu við Guardian að fengnu lof­orði um nafn­leysi, að hluta til vegna þess að þeir eru bundnir þagn­ar­skyldu en einnig þar sem þeir ótt­uð­ust um fram­tíð sinna innan stofn­un­ar­innar.

Þrjár konur sem til­kynntu kyn­ferð­is­lega áreitni eða ofbeldi á síð­asta árinu sögð­ust hafa verið neyddar til að hætta eða að þeim hótað upp­sögn. Hinir meintu ger­endur í málum þess­ara kvenna, þar á meðal einn hátt­settur aðili innan SÞ, eru enn í sínum stöðum.

Ein kona sem mun hafa verið var nauðgað af hátt­settum aðila hjá stofn­un­inni sagði að þrátt fyrir sönn­un­ar­gögn frá læknum, vitnum og innri rann­sókn hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum hafi stofn­unin ekki fundið nægan grund­völl til að styðja við frá­sögn hennar.

Fjórir núver­andi eða fyrr­ver­andi starfs­menn, þar á meðal aðilar sem lögðu ekki fram form­legar kvart­anir, sögðu að þeim hafi ekki verið útveguð full­nægj­andi læknis- eða sál­fræði­að­stoð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár