Minnihlutastjórn Lars Løkke Rasmussen tekur við völdum í Danmörku

Lars Løkke Rasmus­sen for­maður Venstre flokks­ins kynnti fyrir stundu nýja rík­is­stjórn Dan­merkur. Stjórnin er minni­hluta­stjórn, minni minni­hluta­stjórn eins og nýi for­sæt­is­ráð­herr­ann komst að orði. Í nýju stjórn­inni sitja sautján ráð­herrar, fimm konur og tólf karlar.

Það tekur stundum á sig ein­kenni­lega mynd lýð­ræðið. Í nýaf­stöðnum þing­kosn­ingum í Danmörku tap­aði Venstre flokk­ur­inn mestu fylgi, missti 13 þing­menn og hefur nú 34 full­trúa af þeim 179 sem sitja á danska þing­inu. Sós­í­alde­mókratar sem voru í for­ystu frá­far­andi stjórnar eru stærsti flokkur lands­ins, hefur 47 þing­menn, þremur fleiri en á nýliðnu kjör­tíma­bili. Tap ann­arra stjórn­ar­flokka olli hin­vegar því að rík­is­stjórnin féll. Naumlega.

Lars Løkke fékk umboðið


Þegar ljóst var að stjórn Helle Thorning-Schmidt væri fallin kall­aði Margrét Þór­hildur drottn­ing for­menn flokk­anna á sinn fund. Þar bentu full­trúar flokk­anna sem til­heyra bláu blokk­inni svoköll­uðu, sem áður voru í stjórn­ar­and­stöðu, á Lars Løkke Rasmus­sen og drottn­ing fól honum myndun meiri­hluta­stjórnar. Lars Løkke var í þeirri ein­kenni­legu stöðu að flokkur hans var ekki lengur stærsti flokk­ur­inn á hægri væng danskra stjórn­mála, þann sess hafði nú Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn hreppt eftir geysi­mikla fylg­is­aukn­ingu í kosn­ing­unum, flokk­ur­inn bætti við sig 15 þing­mönnum og hefur nú 37 full­trúa á þingi.

[quote font="0" align="right"]Lars Løkke var í þeirri ein­kenni­legu stöðu að flokkur hans var ekki lengur stærsti flokk­ur­inn á hægri væng danskra stjórn­mála, þann sess hafði nú Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn hreppt eftir geysi­mikla fylg­is­aukn­ingu í kosn­ing­unum, flokk­ur­inn bætti við sig 15 þing­mönnum og hefur nú 37 full­trúa á þingi[/quote]

Formaður Danska Þjóð­ar­flokks­ins hafði lýst því yfir fyrir kosn­ingar að flokkur sinn stefndi ekki að stjórn­ar­setu hver sem kosn­inga­úr­slitin yrðu. Lars Løkke til­kynnti drottn­ingu, eftir að hafa rætt við for­ystu­menn ann­arra flokka bláu blokk­ar­innar að hann gæti ekki myndað meiri­hluta­stjórn hægri og miðju­flokka, til þess væri allt of margt sem flokk­ana greindi á um og mörg lyk­il­at­riði sem flokk­arnir gætu ekki sam­mælst um.

Þá veitti Margrét Þór­hildur honum nýtt umboð til stjórn­ar­mynd­unar, svo­nefnt alls­herj­ar­um­boð. Það umboð tak­mark­að­ist semsé ekki við meiri­hluta­stjórn. Eftir að hafa rætt aftur og aftur við for­ystu­menn Danska Þjóð­ar­flokks­ins, Frjáls­ræð­is­banda­lags­ins og Íhalds­flokks­ins var eini mögu­leiki Lars Løkke sá að mynda minni­hluta­stjórn Venstre flokks­ins. Það var stjórnin sem hann kynnti Margréti Þórhildi drottn­ingu í gær og hún lagði blessun sína yfir. Lars Løkke Rasmus­sen kynnti ráð­herra sína í morgun, eins og venjan býður þegar ný stjórn tekur við.

Sautján ráðherrar


Ráð­herr­arnir verða sam­tals sautján. Tíu þeirra hafa áður gegnt ráð­herra­emb­ættum. Reynd­asti mað­ur­inn í hópnum er Bertel Haarder sem fyrsta var kjör­inn á þing árið 1975. Hann verður menn­ingar-og kirkju­mála­ráð­herra. Claus Hjort Frederik­sen verður fjár­mála­ráð­herra, hann gegndi sama emb­ætti í stjórn Lars Løkke frá 2009-2011 en hafði þá verið atvinnu­mála­ráð­herra frá 2001. Kristian Jensen vara­for­maður Venstre verður utan­rík­is­ráð­herra, Søren Pind, einn nán­asti sam­starfs­maður Lars Løkke verður dóms­mála­ráð­herra og Inger Stöjberg, sem einnig er í innsta valda­hring flokks­ins verður ráð­herra útlend­inga-inn­flytj­enda og hús­næð­is­mála.

Í stjórn­inni verður sér­stakur ráð­herra mál­efna aldr­aðra, því emb­ætti gegnir Sophie Løhde sem jafn­framt verður heil­brigð­is­ráð­herra. Nokkra athygli vekur að ekki verður í nýju stjórn­inni sér­stakur Evr­ópu­mála­ráð­herra en Lars Løkke hefur margoft lýst yfir nauð­syn þess að Danmörk eigi sterkan málsvara til vinna að málum Dana innan Evr­ópu­sam­bands­ins. Einn nýju ráð­herr­anna á ekki sæti á þingi, það er atvinnu­mála­ráð­herr­ann Jørn Neergaard Larsen, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri sam­taka danskra atvinnu­rek­enda.

Danskir stjórn­mála­skýrendur eru sam­mála um að þessi nýja rík­is­stjórn sé afar veik, hefur aðeins 34 þing­menn af 179 og verður því að reiða sig á stuðn­ing ann­arra flokka í hverju ein­asta máli sem hún vill koma í gegnum þingið. "Lars Løkke verður að sitja við sikk sakk sauma­vél­ina dag og nótt til koma málum áfram og semja út og suður um nán­ast hvað sem er” sagði blaða­maður Berl­ingske. Danskar minni­hluta­stjórnir hafa sjaldn­ast orðið lang­lífar og stjórn­mála­skýrendur dönsku fjöl­miðl­anna spá því að þessi nýja stjórn lifi í hæsta lagi tvö ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár