Evruhópurinn hafnar tillögum Grikkja, frestur til að borga AGS runninn út

Evru­hóp­ur­inn, sem sam­anstendur af fjár­mála­ráð­herrum evru­ríkj­anna, hafn­aði í kvöld til­lögum Grikkja um að fá fram­leng­ingu á núver­andi sam­komu­lagi um neyð­ar­lán, sem rennur út á mið­nætti. Grikkir höfðu lagt fram til­lögu að nýjum tveggja ára samn­ingi en einnig ósk­uðu þeir eftir því að samn­ing­ur­inn sem rennur út á mið­nætti yrði fram­lengdur um nokkra daga á meðan hægt væri að ganga frá nýjum samn­ingi.

Fjár­mála­ráð­herr­arnir héldu síma­fund í kvöld þar sem ákveðið var að hafna til­lögum Grikkja. Forseti hóps­ins, Jeroen Dijs­sel­bloem, sagði að það væri brjál­æði að fram­lengja núver­andi sam­komu­lag þar sem stjórn­völd í Aþenu neit­uðu að taka til­lög­unum sem Evr­ópu­sam­bandið hafði lagt fram. Hann sagði jafn­framt að til­lögur Grikkja að nýjum neyð­ar­lána­samn­ingum yrðu skoð­aðar seinna. Samkvæmt til­lögum Grikkja myndu þeir fá 29,1 millj­arð evra í neyð­ar­lán á næstu tveimur árum.

Nú klukkan 22 að íslenskum tíma rennur út frestur Grikkja til þess að borga til baka 1,5 millj­arð evra til Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins. Ekkert bendir til þess að þeir muni end­ur­greiða fjár­hæð­ina, og þá mun Christine Lagarde, fram­kvæmda­stjóri sjóðs­ins, upp­lýsa stjórn hans um að greiðslan hafi ekki borist. Samkvæmt lána­samn­ingum geta evru­ríkin við þessar aðstæður kraf­ist þess að Grikkir borgi til baka strax þá 180 millj­arða evra sem þau hafa þegar lánað Grikkjum, auk vaxta.

Samkvæmt samn­ing­unum telst það að missa af greiðslu til AGS sem greiðslu­fall gríska rík­is­ins.

Þrátt fyrir þetta munu evru­ríkin ekki krefj­ast þess­arar fjár­hæðar til baka enda vita þau að Grikk­land getur ekki með nokkru móti borgað til baka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár