Sýnir fram á tengsl áfallastreituröskunar og hjartasjúkdóma

Íslenskur læknir segir að áfalla- og streiturask­anir séu ein helsta áskorun lýð­heilsu­vís­inda þess­arar aldar. Ný rann­sókn sýnir að fólk með áfalla- og streitu­tengdar rask­anir er í 30 til 60 pró­sent auk­inni áhættu á hjarta- og æða­sjúk­dómum.

Unnur Valdi­mars­dóttir, far­alds­fræð­ingur og pró­fessor við lækna­deild Háskóla Íslands‚ segir að sterk rök séu fyrir því að ein mik­il­væg­asta lýð­heilsu­á­skorun 21. aldar sé heilsu­fars­legar afleið­ingar af áföllum og lang­vinnri streitu. Því sé mik­il­vægt að auka for­varnir og með­ferðir á því sviði.

Þetta er á meðal þess sem kemur fram í rit­stjórn­ar­grein Unnar í nýjasta tölu­blaði Lækna­blaðs­ins.

Þriðjungur kvenna verða fyrir kynferðislegu eða líkamlegu ofbeldi

[links]Í grein­inni kemur fram að alls mun tæp­lega þriðj­ungur manna þróa með sér geð­röskun af ein­hverju tagi ein­hvern tím­ann á lífs­leið­inni en lík­urnar á því aukast veru­lega í kjöl­far áfalla og þung­bærrar lífs­reynslu á borð við ofbeldi, nátt­úru­ham­farir, tekju- eða atvinnu­missi, grein­ingu lífs­hættu­legra sjúk­dóma innan fjöl­skyldu og ást­vina­missi.

Unnur bendir á að slíkir atburðir séu algengir í okkar sam­fé­lagi en til dæmis megi gera ráð fyrir því að þriðj­ungur kvenna verði fyrir kyn­ferð­is­legu eða lík­am­legu ofbeldi og flest okkar upp­lifa alvar­leg veik­indi og/eða ást­vina­missi ein­hvern tím­ann á lífs­leið­inni. [adspot]

Þá hafi rann­sóknar á síð­ustu árum rennt styrkum stoðum áfalla og áfalla­tengdra rask­ana við þróun lík­am­legra sjúk­dóma en Unnur vinnur um þessar mundir að rann­sóknum sem varpa ljósi á breyti­leika í heilsu­fars­þróun í kjöl­far áfalla. Þar á meðal vinnur rann­sókn­ar­hóp­ur­inn hennar að rann­sókn­inni Áfalla­saga kvenna í sam­starfi við Íslenska erfða­grein­ingu. 

Aukin hættu á hjarta- og æðasjúkdómum

Fyrstu nið­ur­stöðum úr sænska hluta þeirrar rann­sókn­ar­innar sýna ótví­rætt að fólk með áfalla- og streitu­tengdar rask­anir, þar á meðal áfallastreituröskun, áfallastreitu­við­brögð, aðlög­un­ar­röskun og önnur streitu­tengd við­brögð, er í um 30 pró­sent auk­inni áhættu á fjöl­mörgum sjálfsof­næm­is­sjúk­dómum.

Enn fremur er fólk með slíkar rask­anir í 30 til 60 pró­sent auk­inni áhættu á hjarta- og æða­sjúk­dómum og um 50 pró­sent auk­inni áhættu á ýmsum lífs­hættu­legum sýk­ingum á borð við heila­himnu­bólgu, hjarta­þels­bólgu og blóð­sýk­ingum.

Í grein­inni segir að yngri ein­stak­lingar með áfalla­tengdar rask­anir séu í meiri áhættu á ofan­greindum sjúk­dómum sem og ein­stak­lingar með svæsnari áfalla­tengdar rask­anir. Á hinn bóg­inn virt­ist áhætta á þessum ill­vígu sjúk­dómum vera minni meðal fólks sem tók SSRI-lyf fyrsta árið eftir grein­ingu áfalla­tengdu rösk­un­ar­innar, sem gefi ákveðna vís­bend­ingu um gagn­semi slíkra íhlut­ana.

Aukið eftirlit og fræðsla geti skipt máli

Unnur telur að þessi nýja þekk­ingi eigi brýnt erindi við lækna og annað heil­brigð­is­starfs­fólk með skjól­stæð­inga og aðstand­endur þeirra sem séu að ganga í gegnum mjög þung­bæra lífs­reynslu. „Hér getur fræðsla, aukið eft­ir­lit, skimun og, eftir atvikum, til­vísun í geð­heil­brigð­is­þjón­ustu skipt máli til að minnka líkur á frek­ari heilsu­bresti hjá þessum við­kvæmu hópum,“ segir í grein­inni.

Að lokum segir Unnur að starfi þeirra sé hvergi nærri lokið og að í deigl­unni séu meðal ann­ars rann­sóknir á áhrifum slíkra rask­ana á þróun tauga­sjúk­dóma og krabba­meina, og erfða­rann­sóknir á breyti­leika heilsu­fars í kjöl­far áfalla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár