Fjórðu hverri konu á Íslandi hefur verið nauðgað eða það reynt

Fyrstu nið­ur­stöður í rann­sókn­ar­verk­efn­inu Áfalla­saga kvenna sýna að fjórð­ungur kvenna hefur orðið fyrir nauðgun eða nauðg­un­ar­til­raun á lífs­leið­inni og sama hlut­fall hefur verið beitt lík­am­legu ofbeldi.

Fjórð­ungur kvenna hefur orðið fyrir nauðgun eða nauðg­un­ar­til­raun á lífs­leið­inni og sama hlut­fall hefur verið beitt lík­am­legu ofbeldi. Þetta sýna fyrstu nið­ur­stöður í rann­sókn­ar­verk­efn­inu Áfalla­saga kvenna en Háskóli Íslands sendi til­kynn­ingu varð­andi verk­efnið í morgun.

[links]Þær leiða enn fremur í ljós að ríf­lega 40 pró­sent þátt­tak­enda í rann­sókn­inni eiga sögu um fram­hjá­hald eða höfnun af hendi maka og svipað hlut­fall hefur orðið fyrir and­legu ofbeldi eða ein­elti í barn­æsku eða á full­orð­ins­árum. Einn af hverjum sex þátt­tak­endum í rann­sókn­inni á að baki lífs­hættu­leg veik­indi eða meiðsl og um það bil þriðj­ungur erf­iða fæð­ing­ar­reynslu.

Nið­ur­stöð­urnar eru þær fyrstu sem gerðar hafa verið opin­berar úr rann­sókn­inni.

Vís­inda­menn við Háskóla Íslands hófu á vor­mán­uðum 2018 afar metn­að­ar­fullt rann­sókn­ar­verk­efni undir yfir­skrift­inni Áfalla­saga kvenna. Rann­sóknin miðar að því að skapa þekk­ingu um umfang, áhættu­þætti og heilsu­fars­legar afleið­ingar áfalla og ofbeldis sem konur verða fyrir en sam­fé­lags­leg umræða síð­asta árs sýnir að mik­il­vægt er að varpa ljósi á áhrif þess­ara þátta á heilsu­far kvenna hér á landi.

Öllum konum á Íslandi, 18 ára og eldri, býðst að taka þátt í rann­sókn­inni með því að svara raf­rænum spurn­inga­lista um áfalla­sögu sína og heilsu­far á vefnum afalla­saga.is. Viðtökur hafa verið góðar en á vor­mán­uðum fengu um 50 þús­und konur boð um þátt­töku og um 23 þús­und þeirra hafa þegar svarað spurn­inga­lista sem finna má á vef rann­sókn­ar­innar.

Hlutfallið hærra en mælst hefur í fyrri rannsóknum

For­sprakkar rann­sókn­ar­innar, Unnur Valdi­mars­dóttir og Arna Hauks­dóttir, pró­fess­orar við Lækna­deild Háskóla Íslands, eru ánægðar með við­tökur rann­sókn­ar­innar og telja nokkrar mögu­legar skýr­ingar vera á þessu háa hlut­falli svar­enda með áfalla­sögu.

Unnur segir að hlut­fallið sé ívið hærra en mælst hefur í fyrri rann­sóknum hér á landi. Svörun sé nokkuð jöfn yfir ald­urs­hópa, búsetu og mennt­un­ar­stig og end­ur­spegli rann­sókn­ar­hóp­ur­inn því kven­þjóð­ina nokkuð vel.

„Það er hugs­an­legt að konur með áfalla­sögu kjósi frekar að taka þátt í rann­sókn­inni en hins vegar verður að hafa í huga að í kjöl­far auk­innar opinnar sam­fé­lags­um­ræðu um kyn­bundið ofbeldi, sem birt­ist okkur m.a. í #metoo bylt­ing­unni, verður ákveðið end­ur­mat meðal kvenna á upp­lif­unum sínum. Það er því einnig hugs­an­legt að þetta háa hlut­fall end­ur­spegli raun­veru­lega tíðni þess­ara áfalla meðal kvenna á Íslandi. Frekari gagna­söfnun frá fleiri konum og gagna­grein­ing á kom­andi mán­uðum mun leiða það í ljós,“ segir hún.

Góð þátttaka kvenna í rannsókninni skiptir sköpum

Í nóv­em­ber munu um 60 þús­und konur um allt land fá boð um þátt­töku í rann­sókn­inni en vonir rann­sak­enda standa til að fá alls um 40 til 50.000 konur til þátt­töku. Rann­sókn­ar­verk­efnið er fjár­magnað af Evrópska rann­sókn­ar­ráð­inu og Rannís og er ein stærsta vís­inda­rann­sókn sem unnin hefur verið á þessu sviði á heims­vísu.

Arna segir að góð þátt­taka kvenna í rann­sókn­inni skipti sköpum fyrir vís­inda­legt gildi hennar og svör hverrar ein­ustu konu skiptir máli, óháð því hvort hún eigi mikla, litla eða enga sögu um áföll. „Það er afar mik­il­vægt að skapa örugga vís­inda­lega þekk­ingu á þess­ari skugga­hlið kven­legrar til­veru,“ segir hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár