Segir Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknarflokkinn gegnsýrða af sérhagsmunagæslu

Þing­maður Við­reisnar segir að ítök Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins í grunn­kerfum sam­fé­lags­ins séu mikil og í gegnum lýð­veld­is­sög­una hafi mynd­ast sterk hags­muna­tengsl á milli flokk­anna og helstu hags­muna­að­ila íslensks sam­fé­lags.

Jón Steindór Valdimarsson, þingmaður Viðreisnar.
Jón Steindór Valdi­mars­son, þing­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Jón Steindór Valdi­mars­son þing­maður Við­reisnar segir að Sam­herj­a­málið hafi gefið almenn­ingi inn­sýn í það hversu gegn­sýrðir Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn séu af sér­hags­muna­gæslu. Vonast hann til að almenn­ingur sé reiðu­bú­inn að opna augun fyrir því og velji frekar stjórn­mála­flokka sem hafi almanna­hags­muni framar sér­hags­munum. „Það er mikið í húfi fyrir fram­tíð lands og lýðs.“

Þetta kom fram í máli þing­manns­ins undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

„Á lýð­veld­is­tím­anum hafa Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur að mestu haldið um stjórn­ar­taumana. Yfir­leitt saman, stundum í sitt hvoru lagi. Sú sam­fé­lags­gerð sem við búum við í dag er á ábyrgð þeirra. Auðvitað eru þær í þeirri sögu bjartar hliðar en því miður eru þær ansi margar myrkar,“ sagði hann.

Engin tilviljun að þessir flokkar vildu helst engu hagga

Þá sagði Jón Steindór að allir vissu sem vildu vita að ítök þess­ara flokka í grunn­kerfum sam­fé­lags­ins væru mikil og í gegnum lýð­veld­is­sög­una hefðu mynd­ast sterk hags­muna­tengsl á milli flokk­anna og helstu hags­muna­að­ila íslensks sam­fé­lags. „Þú klappar mér, ég klappa þér.“

Það væri engin til­viljun að þessir flokkar vildu helst engu hagga þegar kæmi að sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­kerf­unum.

„Það er ekki vegna þeirra ríku almanna­hags­muna sem þeir verja. Nei, það er vegna sér­hags­muna flokk­anna sjálfra og fyr­ir­tækj­anna sem þeir þjóna. Og það er heldur engin til­viljun þegar umræða um krón­una og Evr­ópu­sam­bandið er opnuð þá fari þessir sömu flokkar á lím­ing­unum. Það er ekki vegna þeirra ríku almanna­hags­muna sem fælust í auknum geng­is­stöð­ug­leika fyrir heim­ilin og fyr­ir­tækin í land­inu. Nei, það er vegna þess að þeir sem telja sig tapa eru vörslu­menn sér­hags­muna sem flokk­arnir verja,“ sagði þing­mað­ur­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár