Jeremy Corbyn hlaut yfirburðakosningu og er nýr leiðtogi Verkamannaflokksins

Jeremy Corbyn hefur verið kjör­inn for­maður breska Verka­manna­flokks­ins með yfir­burðum. Tom Watson er nýr vara­for­maður flokks­ins. Greint var frá úrslitum kosn­ing­anna rétt fyrir klukkan ell­efu. Corbyn ávarpar nú fund flokks­ins. Hann þakk­aði hinum fram­bjóð­end­unum fyrir bar­átt­una og sagði flokk­inn hafa breyst á þeim þremur mán­uðum sem kosn­inga­bar­áttan hefur varað.

Hann sagði jafn­framt að eitt fyrsta verk hans sem leið­toga yrði að mæta á sam­stöðu­fund með flótta­fólki síðar í dag, en slíkir við­burðir eru haldnir um alla Evrópu, meðal ann­ars í Reykja­vík.


Congratulations to @jeremycorbyn - elected Leader of the Labour Party


— Labour Press Team (@labourpress) Sept­em­ber 12, 2015

Guardian greinir frá því að kjör­sókn hafi verið 76,3 pró­sent, sem þýðir að yfir 422 þús­und manns hafi greitt atkvæði. Til sam­an­burðar voru tæp­lega 199 þús­und atkvæði greidd í síð­ustu for­manns­kosn­ingum hjá Íhalds­flokknum og tæp­lega 34 þús­und hjá Frjáls­lyndum demókrötum. Jeremy Corbyn hlaut 59,5 pró­sent atkvæða strax í fyrstu umferð, eða ríf­lega 251 þús­und atkvæði. Næst á eftir honum var Andy Burnham með 19% atkvæða. Yvette Cooper hlaut 17% atkvæða og Liz Kendall 4,5 pró­sent.

Results of Labour leaders­hip election - won in first round by Jeremy Corbyn pic.twitter.com/BVFL2D69eg

— BBC News Graphics (@BBCNewsGraphics) Sept­em­ber 12, 2015

Hér má sjá Corbyn mæta til fund­ar­ins í morgun. Hann nýtur mik­illa vin­sælda, eins og sjá má.

The favourite arri­ves to a chorus of The Red Flag. Will they still be sing­ing in a couple of hours? pic.twitter.com/lqqZkNY4Ws — Joe Churcher (@JoeChurcher) Sept­em­ber 12, 2015


Jeremy Corbyn arri­ves for leaders­hip announcement to supp­orters' chants of "Jez We Can" pic.twitter.com/V2tQimVIdn


— Joe Churcher (@JoeChurcher) Sept­em­ber 12, 2015

Fréttin verður upp­færð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár