Anonymous ræðst aftur á íslenskar vefsíður - tók niður allar ráðuneytissíður

Meðlimir í Anonymous gerðu árás á vef­síður stjórn­ar­ráðs­ins í dag og tókst að loka heima­síðum allra ráðu­neyta um stund. Enn eru trufl­anir á síð­unum. For­sæt­is­ráðu­neytið hefur stað­fest við Kjarnann að árás var gerð og á Twitter kemur fram að árásin var hluti af svo­kall­aði #OpWhales her­ferð, sem með­limir í Anonymous standa á bak við. Her­ferðin gengur út á að mót­mæla hval­veiðum Íslend­inga.

Árásin er sams­konar og tvær tölvu­árásir sem gerðar voru í nóv­em­ber. Í annarri þeirra var vef­síðum fimm ráðu­neyta lokað og í hinni var ráð­ist á vef­síðu for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins, Símans og Morg­un­blaðsins, meðal ann­ars. 

Á Twitter-reikn­ingnum fyrir aðgerð­ina er í dag mikið fjallað um Ísland og hval­veiðar. Þar má meðal ann­ars sjá mynd af Krist­jáni Lofts­syni, eig­anda Hvals ehf., og hann sagður and­lit skammar­innar á Íslandi. Þá eru birtar upp­lýs­ingar um fyr­ir­tækið Hval og fólk er hvatt til að senda því línu.

Einnig má sjá mynd frá HB Granda þar sem meðal ann­arra má sjá Kristján og Sigurð Inga Jóhanns­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra.

Fyrsta atlagan hjá Anonymous olli miklum töfum á net­þjón­ustu og þjón­ustu­að­ilar til­kynntu við­skipta­vinum sínum um þær. Á meðal þeirra síðna sem með­limir tengdir Anonymous hreyktu sér af á Twitter að hafa náð að loka tíma­bundið fyrir erlendri umferð voru síða for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins, Mbl.is, Símans, Menn.is, Iceland.is og Visiticeland.is. Í annað skiptið var aðeins ráð­ist að fimm vef­síðum stjórn­ar­ráðs­ins. Þá sendu stjórn­völd frá sér yfir­lýs­ingu til að taka fram að engin gögn hafi verið í hættu. Vefirnir voru lok­aðir fyrir umferð og heim­sóknum þar til ljóst var að ástandið var komið aftur í eðli­legt horf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár