Landeyðing eykst með loftslagsbreytingum

Lofts­lags­breyt­ingar auka land­eyð­ingu sam­kvæmt nýrri skýrslu IPCC en sam­hliða þeim eykst land­notkun hratt. Þær hafa nú þegar áhrif á fæðu­ör­yggi í heim­inum.

Lofts­lags­breyt­ingar auka land­eyð­ingu með meiri ákafa í úrkomu og flóðum, tíð­ari og umfangs­meiri þurrkum, meira álagi vegna hita, vinds og ölduróts auk hærri sjáv­ar­stöðu. Samhliða áhrifum lofts­lags­breyt­inga eykst land­notkun hratt og hafa lofts­lags­breyt­ingar nú þegar áhrif á fæðu­ör­yggi. Hlýnun á heim­skauta­svæðum mun hraða bráðnun sífrera og raska enn frekar norð­lægum skógum, bæði vegna meiri þurrka og skóg­ar­elda auk skor­dýra­plága og gróð­ur­sjúk­dóma.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu á vegum IPCC, milli­ríkja­nefndar um lofts­lags­breyt­ingar, sem kom út í dag.

Í henni er greint frá því að lofts­lags­breyt­ingar auki land­eyð­ingu með meiri ákafa í úrkomu og flóðum, tíð­ari og umfangs­meiri þurrkum, meira álagi vegna hita, vinds og ölduróts auk hærri sjáv­ar­stöðu. Frá því síðla á 19. öld hafi hlýnun yfir íslausu landi að jafn­aði verið 1,41 gráður, sem er mun meira en 0,87 gráðu hnatt­ræn hlýnun á sama tíma.

Hlýnunin hefur hliðrað lofts­lag­svæðum, og gert sum búsvæða­belti útsett­ari fyrir breyti­leika í veðri og veð­ur­fari. Samhliða áhrifum lofts­lags­breyt­inga eykst land­notkun hratt. Síðan 1961 hafa 5,3 milljón fer­kíló­metrar lands verið lagðir undir land­búnað, álíka og um tveir þriðju af flat­ar­máli Ástralíu og hefur land­notkun aldrei auk­ist hraðar í sögu mann­kyns, sam­kvæmt skýrsl­unni. Að jafn­aði verða 72 pró­sent af íslausu landi fyrir áhrifum af manna­völdum

Losun metans frá búpeningi hefur aukist nærri tvöfalt síðan 1961

Aukin mat­væla­eft­ir­spurn hefur leitt hratt til ákaf­ari land­nýt­ingar. Samfara fólks­fjölgun og neyslu­breyt­ingum hefur fram­leiðsla á jurta­trefjum, mat­vælum og viði verið drif­kraftur breyt­inga á land­notkun. Notkun ólíf­ræns áburðar hefur nífald­ast frá 1961 og notkun áveitu­vatns tvö­fald­ast. Breyt­ingar á land­notkun hafa stuðlað að land­eyð­ingu og eyði­merk­ur­myndun. Útbreiðsla vot­lendis hefur minnkað um 70 pró­sent frá 1970 og fjöldi íbúa þurrka­svæða hefur auk­ist um næstum 300 pró­sent frá 1961.

Um 24 pró­sent af heild­ar­losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, á árunum 2003 til 2012, er vegna land­notk­unar. Losun met­ans frá jórtr­andi búpen­ingi hefur auk­ist nærri tvö­falt síðan 1961 og N2O losun vegna áburð­ar­notk­unar meira en tvö­fald­ast. Losun CO2 vegna breyt­inga á land­notkun, aðal­lega skóg­areyð­ingar, dróst saman snemma á 7. ára­tugnum en hefur verið stöðug og mikil síðan.

Hlýnun jarðar hliðrar loftslagssvæðum

Á síð­ustu þremur ára­tugum hefur aukin ljóstil­lífun leitt til grænk­unar gróð­urs á hnatt­ræna vísu. Þetta má rekja til sam­þættra áhrifa breyttrar land­nýt­ingar, til að mynda áveitna, skóg­ar­nýt­ingar, auk breyt­inga á umhverf­is­þáttum s.s. lengri vaxt­ar­tíma, auk­inni upp­töku CO2 og nit­urs. Lík­an­reikn­ingar rekja aukna grænkun á heim­skauta­svæðum til áburðar­á­hrifa CO2 og lengri vaxt­ar­tíma en minni grænkun og ljóstil­lífun á öðrum breidd­argráðum til aukn­ingar á þurrkum og hita­bylgjum. Aukin styrkur CO2 hefur aukið vatns­nýtni plantna og fram­leiðni gróð­urs á þurrum svæðum. Heild­ar­á­hrifin ráð­ast hins­vegar af nær­ing­ar­efnum í jarð­vegi og vatns­fram­boði.

Hlýnunin hefur gert sum búsvæða­belti útsett­ari fyrir breyti­leika í veðri og veð­ur­fari, það með talið aftaka­at­burðum, sem liggja utan þess sem þau ráða við. Í heild­ina hliðr­ast lofts­lag­svæði til pól­svæða á mið­lægum breidd­argráðum og ofar í hálendi. Líklegt er að þessi hliðrun haldi áfram meðan hlýnun jarðar stöðvast ekki. Í hita­belt­inu mun hlýn­unin leiða til nýrra og heit­ari lofts­lags­svæða.

Lofts­lags­breyt­ingar auka land­eyð­ingu en afleið­ingar mót­ast einnig af nýt­ingu lands. Strandrofs gætir á nýjum svæðum vegna breyt­inga á nýt­ingu strand­svæða og áhrifum lofts­lags­breyt­inga svo sem hækk­andi sjáv­ar­stöðu og breyt­inga í gangi lægða. Þá hefur útbreiðsla sífrera dreg­ist saman. Hlýnun á heim­skauta­svæðum mun hraða bráðnun sífrera og raska enn frekar norð­lægum skógum, bæði vegna meiri þurrka og skóg­ar­elda auk skor­dýra­plága og gróð­ur­sjúk­dóma.

Loftslagsbreytingar ógna fæðuöryggi

Vegna hærra hita­stigs, úrkomu­breyt­inga og auk­innar tíðni sumra aftaka­at­burða ógna lofts­lags­breyt­ingar fæðu­ör­yggi. Hlýnun hefur aukið fram­leiðni land­bún­að­ar­vara á hærri breidd­argráðum, m.a. á maís, hveiti, syk­ur­rófum og bóm­ull, en dregið úr fram­leiðslu á lægri breidd­argráðum, meðal ann­ars á byggi, maís og hveiti. Meðal áhrifa á beit­ar­lönd eru hnignun haga, hæg­ari vöxtur, minni fram­leiðni og við­koma beit­ar­dýra, aukin tíðni plága og sjúk­dóma og tap á líf­fræði­legum fjöl­breyti­leika.

Á þurrum svæðum, sér­stak­lega í Afríku og hálendum svæðum í Asíu og Suður-Ameríku telja frum­byggjar og inn­fæddir að lofts­lags­breyt­ingar hafi nú þegar áhrif á fæðu­ör­yggi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár