Tíu fyrirtæki valin úr hópi 150 í Startup Reykjavík

Tíu fyr­ir­tæki hafa verið valin til að taka þátt í Startup Reykja­vík við­skipta­hraðl­inum sem fram fer í fjórða sinn nú í sumar. Alls sóttu um 150 fyr­ir­tæki um að taka þátt en aðeins tíu fá tæki­færi til að njóta leið­sagnar reyndra frum­kvöðla og fjár­festa.

Startup Reykja­vík hlaut verð­laun fyrr í vik­unni sem besti við­skipta­hrað­all­inn á Norð­ur­löndum á Nordic Startup Awards sem veitt voru í Helsinki. Arion banki og frum­kvöðla­setrið Klak Innovit standa að verk­efn­inu líkt og und­an­farin ár.

Fyr­ir­tækin tíu sem fá að taka þátt í ár eru jafn mis­mun­andi og þau eru mörg. Eitt fyr­ir­tæki stefnir að því að rækta hágæða wasabi-plöntur, annað ætlar að tengja bíla og snjall­síma, og svo er eitt sem ætla að brugga bjór úr íslenskum hrá­efnum.

Arion banki fjár­festir 2 millj­ónum króna fyrir 6 pró­sent hlutafé í öllum fyr­ir­tækj­unum sem valin hafa verið og fjár­magnar vinnu­smiðjur og alla aðstöðu fyr­ir­tækj­anna í sumar. „Fram­kvæmd við­skipta­hug­mynda veltur mest á því fólki sem við hana starfar og við hlökkum til að vinna með þeim í sumar og í fram­hald­inu,“ segir Einar Gunnar Guð­munds­son, full­trúi Arion banka í verk­efn­inu. „Það að Startup Reykja­vík hafi verið val­inn við­skipta­hrað­all árs­ins á Norð­ur­lönd­unum nýlega setur svo jákvæðan þrýst­ing á okkur að halda áfram að efla frum­kvöðlaum­hverfið á Íslandi.“

Kjarninn mun fjalla ítar­lega um Startup Reykja­vík í sumar og skoða hvert fyr­ir­tæki sér­stak­lega líkt og fyrir ári síðan. Hér að neðan má sjá yfir­lit yfir fyr­ir­tækin tíu sam­kvæmt frétta­til­kynn­ingu frá Startup Reykja­vík.

Þátttakendur í Startup Reykjavík 2015


[caption id="" align="alignnone" width="800"] Aðstand­endur og þátt­tak­endur í Startup Reykja­vík 2014. Tilkynnt var á ráð­stefn­unni Startup Iceland hverjir fá tæki­færi í sumar. (Mynd: Halldóra Ólafs­dóttir)[/caption]

Wasabi Iceland - Ætla að rækta hágæða wasabi á Íslandi með því að nýta hreint vatn og end­ur­nýj­an­lega orku.

Kvasir software - Munu nútíma­væða borð­spil þar sem sím­inn þinn er stjórn­tækið og sjón­varpið borð­spilið.

Farma - Tengir saman raf­ræn skil­ríki og raf­ræna lyf­seðla. Fólk getur keypt lyf á net­inu með öruggum hætti og fengið sent heim.

Viking Cars - Vett­vangur til þess að deila bílnum sínum með öðrum með öruggum hætti - þetta er eins og Airbnb fyrir bíla.

Spor í sand­inn - Munu byggja sjálf­bært vist­kerfi í hjarta borg­ar­innar sem býður upp á nýja upp­lifun í ferða­þjón­ustu.

Genki instru­ments – Eru að þróa nýstár­leg raf­tón­list­ar­hljóð­færi sem tengja má saman með áður óséðum hætti.

Three42 - Hug­bún­aður sem tekur við upp­lýs­ingum úr bílnum þínum og tengir beint við snjall­sím­ann.

Delphi - Nýta þekk­ingu fjöld­ans til þess að spá fyrir um til­tekna við­burði í fram­tíð­inni.

PuppIT - Þróa tækni til að taka upp myndefni í raun­tíma til þess að nýta fyrir kvik­myndir, leiki, leik­hús og sýnd­ar­veru­leika.

Hún / Hann Brugghús - Stefna að því að búa til hágæða bjór úr íslenskum hrá­efnum.


Uppfært 29. maí kl 13:29.
Undir mynd með frétt­inni sagði að þar bæri að líta hóp­inn sem tekur þátt árið 2015. Rétt er að þetta er hóp­ur­inn síðan í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár