Startup Reykjavík valinn besti viðskiptahraðall Norðurlanda

Við­skipta­hrað­all­inn Startup Reykja­vík hlaut við­ur­kenn­ingu sem besti við­skipta­hrað­all Norð­ur­landa á Nordic Startup Awards í gær. Í dóm­nefnd fyrir verð­launin voru um tutt­ugu ein­stak­lingar, frum­kvöðlar, fjár­festar, stjórn­endur og aðrir sér­fræð­ingar. Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar, á sæti í dóm­nefnd­inni fyrir hönd Íslands.

Startup Reykja­vík fer fram í fjórða sinn í sumar, en það eru Arion banki og Klak Innovit sem standa að hraðl­inum.

„Við erum gríð­ar­lega stolt af því að hljóta við­ur­kenn­ingu Nordic Startup Awards úr hópi öfl­ugra við­skipta­hraðla í nágranna­löndum okkar. Ég er sann­færð um að stöðugar umbætur í fram­kvæmd, aðkoma lyk­il­að­ila innan sprota­sam­fé­lags­ins og sterk tengsl við erlendar fyr­ir­myndir hafi skilað okkur þessum árangri,” segir Salóme Guð­munds­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Klak Innovit, í til­kynn­ingu um verð­launin.

Nordic Startup Awards voru haldin í Helsinki í Finn­landi í gær og voru veitt verð­laun í ell­efu flokkum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár