Rannsókn hafin á fleiri bönkum vegna skattaundanskota í Sviss

Þýsk yfir­völd rann­saka nú hvort Coutts, einka­banka­hluta Royal Bank of Scotland (RBS), hafi hjálpað við­skipta­vinum sínum að svíkja undan skatti í gegnum útibú sitt í Sviss. Bankinn greindi frá þessu í dag í árs­skýrslu sinni og seg­ist vera í sam­starfi við yfir­völd vegna máls­ins.

Banda­rísk yfir­völd hafa þegar hafið rann­sókn á því hvort bank­inn hafi hjálpað banda­rískum rík­is­borg­urum við skattaund­an­skot. Banka­útibú í Sviss eru undir smá­sjánni eftir upp­ljóstr­anir um starf­semi HSBC bank­ans þar og leka á gögnum um ein­stak­linga og félög sem komu pen­ingum undan skatti með því að geyma þá í Sviss.

Advice from the Queen's bank on how to shelter wealth in Switzerland #Coutts pic.twitter.com/I87m9DNUou

— Juliette Garside (@JulietteGarside) February 26, 2015

Juliette Garside, blaða­maður Guardian, birtir þetta skjá­skot af heima­síðu bank­ans á Twitter.

Royal Bank of Scotland er í 79 pró­senta eigu skatt­borg­ara í Bret­landi eftir að ríkið tók bank­ann yfir í fjár­mála­hrun­inu. Þá voru 45 millj­arðar punda settir inn í bank­ann. Stjórn­endur hans höfðu þegar ákveðið að alþjóð­legi hlut­inn af Coutts yrði seldur. Ross McEwan, for­stjóri RBS, sagði fyrr í dag að fyr­ir­tækið yrði selt vegna þess að það væri ekki hagn­aður af því og að einka­bankar hefðu verið of lengi að hreinsa upp eftir sig. Hann sagði bank­ann ætla að taka mjög hart á mál­inu ef í ljós kemur að við­skipta­vinum hafi verið hjálpað við skattaund­an­skot. Þessi mál væru tekin mjög alvar­lega enda væri það starf­semi af þessu tagi sem hefði komið óorði á banka.

RBS tap­aði 3,5 millj­örðum punda á síð­asta ári, sem eru um 715 millj­arðar króna. Það er þó skárra en árið á undan þegar tapið nam 9 millj­örðum punda. Bankinn hefur skilað tapi sjö ár í röð. Þrátt fyrir þetta námu bónusar til starfs­fólks 421 milj­ónum punda á síð­asta ári.

Coutts bank­inn er einna helst þekktur fyrir að vera banki Elísa­betar Breta­drottn­ingar. Við­skipta­vina­list­inn er virðu­legur, og fólk verður að eiga meira en eina milljón punda, eða um 200 millj­ónir íslenskra króna, til þess að mega vera í við­skiptum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár