Breska afbrigðið eins og „fellibylur“ á leið að landi

Sér­fræð­ingur í smit­sjúk­dómum spáir því að breska afbrigði kór­ónu­veirunnar nái yfir­hönd­inni í Banda­ríkj­unum og muni skella á land­inu „líkt og felli­bylur“.

Hröð bólusetning er lykillinn að því að stöðva breska afbrigðið, segir faraldsfræðingur.
Hröð bólu­setn­ing er lyk­ill­inn að því að stöðva breska afbrigðið, segir far­alds­fræð­ingur. Mynd: EPA

Far­alds­fræð­ing­ur­inn Michael Oster­holm, sem sat í ráð­gjafa­ráði Joe Bidens í kjöl­far for­seta­kosn­ing­anna í haust, varar Banda­ríkja­menn við því að hið breska afbrigði, sem er meira smit­andi en flest önnur, eigi eftir að breið­ast hratt út og ná yfir­hönd­inni í vor. Spáir hann því að veiru­af­brigðið muni skella á Banda­ríkj­unum „líkt og felli­bylur“.

Oster­holm fer fyrir rann­sókn­ar­stofnun smit­sjúk­dóma við Háskól­ann í Minnesota. „Upp­sveifla á lík­lega eftir að verða vegna þessa nýja afbrigðis frá Englandi á næstu sex til fjórtán vikum,“ spáði Oster­holm í sam­tali við frétta­mann NBC í gær.

Yfir 26 millj­ónir manna hafa greinst með kór­ónu­veiruna í Banda­ríkj­unum og um 440 þús­und hafa lát­ist vegna COVID-19. Oster­holm hvetur stjórn Bidens til að grípa hratt til aðgerða svo bólu­setja megi sem flesta á sem stystum tíma. Ráð­leggur hann stjórn­völdum að leggja áherslu á fólk yfir 65 ára og gefa því sem flestu fyrri sprautu bólu­efnis við við fyrsta tæki­færi. Þannig verði mögu­lega hægt að koma í veg fyrir að hin bráðsmit­andi afbrigði veirunnar sem upp­götvast hafa síð­ustu vikur nái fót­festu í land­inu. „Þessi felli­bylur er á leið­inni,“ sagði Oster­holm.

Nýjustu rann­sóknir sýna að breska afbrigðið er lík­lega um 30 pró­sent meira smit­andi en flest önnur afbrigði veirunnar og hefur það breiðst hratt út í Bret­landi, Danmörku, Hollandi og fleiri Evr­ópu­löndum síð­ustu vikur.

Breska afbrigðið hefur þegar greinst í Banda­ríkj­unum en þar eru rað­grein­ingar á veirunni enn sem komið er fátæk­legar. Þar hefur far­ald­ur­inn geisað af miklum krafti allt frá upp­hafi. Ef breska afbrigðið nær ákveð­inni útbreiðslu „munum við sjá eitt­hvað sem við höfum ekki ennþá séð í þessu landi. Ég sé þann felli­byl af mestu stærð­argráðu undan strönd­inni,“ sagði Oster­holm við NBC.

Banda­ríkja­menn eru yfir 320 millj­ónir. Tæplega 50 milljón skömmtum af bólu­efni hefur verið dreift og um 30 millj­ónir þeirra hafa þegar verið nýttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár