Andlýðræðislegt að kjósa um stjórnarskrá samhliða forsetakosningum

„Að tengja veru­legar breyt­ingar á stjórnar­skrá lands­ins við kosn­ingar á for­seta lýðveld­is­ins er and­stætt lýðræð­is­legu eðli beggja verk­efn­anna,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands, við setn­ingu Alþingis í dag. Hann sagði einnig að teng­ing þess­ara tveggja kosn­inga væri „jafn­vel and­lýð­ræð­is­leg í eðli sínu.“

Það sé nauð­syn­legt að stjórn­skipan lands­ins sé ekki í upp­námi þegar þjóðin velur for­seta að vori, en slíkt upp­nám gæti verið vegna óvissu um ákvæði sem beint eða óbeint breyta valdi og sessi for­set­ans.

Þá sagði hann Íslend­inga ekki svo fátæka að ekki væri hægt að halda tvennar kosn­ingar, „sjálf­stæðan rétt til að ákveða nýskipun stjórn­ar­skrár og kjósa sér­stak­lega for­seta lýð­veld­is­ins, hver fái vald hans og ábyrgð í hendur.“

Hann var­aði við því að breyt­ingar á stjórn­ar­skránni yrðu gerðar á skömmum tíma og til þeirra yrði sparað.

„Sé það hins vegar ætlun þings­ins að fara nú að hreyfa við þessum horn­steini í stjórnar­skrá lýðveld­is­ins, ber að vanda vel þá veg­ferð, gaum­gæfa orða­lag og allar hliðar málsins; efna til víðtækrar umræðu meðal þjóðar­innar um afleið­ingar slíkrar breyt­ingar, umræðu í sam­ræmi við lýðræðiskröfur okkar tíma og þá þakk­ar­skuld sem við eigum að gjalda kynslóðunum sem í hund­rað ár helg­uðu full­veld­isréttinum krafta sína,“ sagði Ólafur Ragnar.

Hann tal­aði einnig um ákvæði um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur, og segir það vanda­verk að velja orða­lag. „Einkum þegar ljóst er að ágrein­ingur er bæði innan þings og utan um hve langt eigi að ganga, hve víðtækur réttur­inn til að krefj­ast þjóðar­at­kvæða­greiðslu um ein­stök lög eigi að vera sem og hve afdráttar­laust eign­arréttur þjóðar­innar á auð­lindum verði skil­greindur í stjórnar­skrá“.



Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár