Alið á ótta á landsþingi repúblikana

Donald Trump var form­lega nefndur fram­bjóð­andi repúblik­ana í for­seta­kosn­ing­unum í Banda­ríkj­unum á lands­þingi flokks­ins í síð­ustu viku. Bryndís Ísfold fylgd­ist með þing­inu.

Donald Trump lýsti því hvað hann ætlaði að gera sem forseti en minntist ekkert á það hvernig hann ætlaði að fara að því.
Donald Trump lýsti því hvað hann ætl­aði að gera sem for­seti en minnt­ist ekk­ert á það hvernig hann ætl­aði að fara að því. Mynd: EPA

Donald Trump tók form­lega við útnefn­inu Repúblikana­flokks­ins sem for­seta­fram­bjóð­andi á flokks­þingi flokks­ins sem fram fór í síð­ustu viku. Þingið var haldið í Cleveland, Ohio og spann­aði það fjóra heila daga. Hver stjórn­mála­mað­ur­inn á fætur öðrum keppt­ist við að lofa Trump og lasta Hillary Clinton. Það kom engum á óvart en hinn ofsa­kenndi tónn sem ein­kenndi þingið kom óþægi­lega á óvart. Vand­ræða­legar upp­á­komur voru ófáar og það var ljóst frá fyrsta degi að kosn­ingamask­ína Trumps og fjöl­skylda hans eru nýgræð­ingar í heimi stjórn­mál­anna.

Síðustu mán­uði hefur mikið verið rætt um hvernig flokks­þing Repúblik­ana myndi þró­ast. Lengi hót­uðu áhrifa­menn að kosið yrði um fram­bjóð­anda á staðnum, með því að gera ráð­stefn­una opna, þe. að hundsa yfir­burða­kjör Donalds Trump í for­völum ríkj­anna. Þar myndu kjör­menn­irnir – full­trúar kjós­enda frá hverju ríki á flokks­þing­inu – geta kosið á ný. Ekki kom þó til þessa, þó uppi hafi orðið fótur og fit fyrsta dag­inn þegar reynt var að breyta reglum flokks­ins.

Þetta var þó í fyrsta sinn sem fyrr­ver­andi for­setar lands­ins, sem til­heyra flokknum mæta ekki á flokks­þingið til að fagna nýju for­seta­efni flokks­ins. Í þetta sinn sátu Bush-feðgar heima eins og margir fyrr­ver­andi for­seta­fram­bjóð­endur Repúblik­ana.

Vara­for­seta­efni Trump var kynnt í síð­ustu viku. Það verður hinn fremur óþekkti Mike Pence, rík­is­stjóri Indíana. Sá þykir mjög íhald­samur og er stuðn­ings­maður Teboðs­hreyf­ing­ar­innar í Repúblikana­flokknum. Hann þykir skyn­sam­legur kostur fyrir Trump, í það minnsta þegar kemur að víð­tækri stjórn­mála­reynslu hans sem bæði rík­is­stjóri og full­trúa­deild­ar­þing­maður. Hann er and­vígur því að konur ráði yfir eigin lík­ama þegar kemur að fóst­ur­eyð­ingum og hann er á móti því að allir þeir sem fæð­ast í Banda­ríkj­unum fái rík­is­borg­ara­rétt. Pence er einnig mjög íhald­samur í efna­hags­málum og er tals­maður þess að allir borgi sömu skatt­pró­sentu á lands­vísu. Hann kaus með Íraks­stríð­inu og hefur sett sig upp á móti því að loka fang­els­inu í Guant­anamo Bay. Þessu til við­bótar þá trúir hann ekki á hlýnun jarðar og þykir ein­stak­lega harður í inn­flytj­enda­málum.

Fram­bjóð­endur sem lutu í lægra haldi fyrir Trump í for­seta­for­val­inu sátu margir heima, líkt og fyrrum for­setar og leið­togar flokks­ins. Nokkrir þeirra létu þó sjá sig. Helst ber að geta Chris Christie, rík­is­stjóra New Jersey, sem hefur staðið þétt við bak Trump eftir að hann dró framoð sitt til baka. Hann hélt hálf­gerð rétt­ar­höld yfir Hillary Clinton við miklar und­ir­tektir gesta í salnum. Í ræð­unni rifj­aði hann upp hin ýmsu verk Clinton eða verk sem hann kenndi henni um. Svo spurði hann sal­inn ítrekað hvort hún væri sek eða ekki. Salurinn svar­aði und­an­tekn­inga­laust að hún væri sek (e. „guilty as charged!“) og hróp­uðu ákaft „lock her up“. Þær sakir sem Clinton voru gerðar voru allt frá því að hafa und­ir­búið jarð­veg­inn fyrir upp­gang ISIS, valdið óstöðu­leika og stjórn­leysi í Lýbíu, yfir í að bera ábyrgð á óstöð­ug­leika í Mið-Aust­ur­löndum. Ræða Christie var kraft­mikil, fremur óvenju­leg og dálítið ógn­vekj­andi, eins og um rétt­ar­höld göt­unnar væri að ræða. Ljóst var að tónn­inn var sleg­inn fyrir næstu daga.

Hillary Clinton er sam­kvæmt könn­unum ákaf­lega óvin­sæl meðal kjós­enda repúblik­ana. Það var margt sem benti til þess í upp­hafi vik­unnar að flokk­ur­inn myndi eiga erfitt með að sam­ein­ast strax í kringum Trump sem for­seta­efni flokks­ins, en það var alveg ljóst að óánægjan, og óbeislað hatur sumra, í garð Clinton væri leiðin til að sam­eina flokk­inn og var sú aðferð varð notuð óspart.

Ted Cruz er einn þeirra fram­bjóð­enda sem laut í lægra haldi fyrir Trump en mætti á flokks­þingið. Eins og venja er bauðst honum að tala á stóra svið­inu og sam­kvæmt sömu hefð átti hann að lýsa yfir stuðn­ingi við Trump. En Cruz fjall­aði fyrst og fremst um það í ræðu sinni hversu óhæf og ömur­leg Hillary Clinton væri og hvað þyrfti að gera margt til að „Ameríka yrði frá­bær á ný“, í takt við slag­orð Trumps. En hann lauk ræðu sinni án þess að lýsa yfir stuðn­ing við Trump; hann sagði fólki ein­fald­lega að kjósa eftir sam­visku sinni. Hann upp­skar ákaft baul frá áheyr­endum fyrir vikið. En Cruz benti á að í kosn­inga­bar­átt­unni hefði Trump ekki aðeins ráð­ist harka­lega að konu sinni heldur hafi hann sagt faðir hans við­rið­inn morðið á John F. Kennedy (sem engin nema slúð­ur­blaðið National Enquirer hefur haldið framm) og útskýrði Cruz að hann myndi aldrei styðja mann sem kæmi svona fram við sína nán­ustu. Hann lét það svo leka sama dag að hann væri að íhuga að bjóða sig fram til for­seta að fjórum árum liðnum.

Margir telja að Rudy Giuliani, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri í New York, hafi snúið þróun glæpa við í New York-bor. Hann steig á svið á mánu­dag og flutti ræðu sem snérist að mestu um ótta Banda­ríkja­manna um eigið öryggi. Að mati Giuliani hefur sá ótti aldrei verið meiri „sam­kvæmt könn­unum“. Hann fjall­aði svo nokkuð ítar­lega um mik­il­vægi þess að standa með lög­reglu­mönnum sem hefðu aldrei staðið í meiri ógn af því að vera myrtir í starfi sínu. Það kom dálítið á óvart hversu æstur Guiliani var og minnti hann helst á Howard Dean, fyrrum for­seta­fram­bjóð­anda í for­vali Demókrata árið 2008. Sá gekk heldur langt í að öskra í ræðu einni sem varð til þess að kjós­endur afskrif­uðu hann sem rauhæfan fram­bjóð­anda. Guiliani, sem hvorki var í fram­boði né að halda svona stóra ræðu í fyrsta sinn, hélt öskr­unum áfram og fór svo líkt og aðrir ræðu­menn ítar­lega yfir það hversu vanæ­hæf Hillary Clinton hefði verið í starfi sínu sem utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, hvort sem varð­aði Lýbíu, kjarn­orku­samn­ing­inn við Íran, árasina á sendi­ráðið í Benghazi eða ISIS. „Ekki treysti ég henni til að leiða Ameríku. Mynduð þið treysta henni?“ spurði hann sal­inn sem svar­aði um hæl „Neeeeiiii“. „Þeir ætla að koma og drepa okkur,“ sagði hann þegar hann fjall­aði um með­limi ISIS og „hún ætlar svo að hleypa sýr­lenskum flótta­mönnum inn í landið“. Guiliani virt­ist ekki geta gert grein­ar­mun á öfga­mönnum og þeim sem flýja þá, líkt og aðrir sem töl­uðu á þing­inu.

Þetta var ekki í eina skiptið sem sann­leik­anum var hag­rætt og jafn­vel logið að fólki í ræðum þings­ins þessa vik­una. Það tók á að sitja undir hverri ræð­unni á fætur annarri þar sem stað­reyndir voru hunds­aðar og hlutir hrein­lega búnir til. Guiliani lauk ekki ræð­unni fyrr en hann hafði svo lof­aði Trump í bak og fyrir og lýst því yfir að Trump yrði sá sem myndi koma til með að end­ur­heimta Ameríku eins og hún var áður. Það tók frétta­skýrendur ekki langan tíma að benda á að öryggi Banda­ríkja­manna hefur aldrei verið meira og glæpir fátíð­ari. Það er hins vegar rétt að í ein­staka borgum hefur ástand mála versnað, en á heild­ina litið, hefur öryggi Banda­ríkja­manna aldrei verið meira.

Áfram héldu linnu­lausar ræður. Sú ræða sem átti eftir að vekja mesta athygli á þing­inu var ræða eig­in­konu Trumps, ef ræða fram­bjóð­and­ans sjálfs er und­an­skilin. Melania Trump fædd­ist í Slóveníu og nefnd Melanija Knavs. Hún flutt­ist ung til Banda­ríkj­anna til að starfa sem fyr­ir­sæta en starfar nú sem skart­gripa­hönn­uður og hefur vakið athygli í kosn­inga­bar­átt­unni fyrir að vera frekar hlé­dræg og öllu nær­gætn­ari en bóndi hennar. Fram að flokks­þing­inu hafði Melania ekki gefið mik­inn kost á sér í við­töl eða staðið í miklum ræðu­höldum. Það voru því margir for­vitnir að heyra ræð­una hennar. Hún sagði við frétta­mann dag­inn sem ræðan var haldin að hún hefði skrifað ræð­una að mestu leyti sjálf en það kom svo á dag­inn að ræða hennar inni­hélt hluta af ræðu núver­andi for­seta­frúar Banda­ríkj­anna, Michelle Obama, sem flutt var á flokks­þingi demókrata árið 2008.

Fljót­lega voru allir fjöl­miðlar heims með sömu fyr­ir­sögn: Melania Trump stal hluta úr ræðu Michelle Obama. Vand­ræða­gang­ur­inn í kjöl­farið var eins og við mátti búast mjög mik­ill. Í fyrstu þagði kosn­inga­bar­áttan þunnu hljóði en svo kom und­ar­leg frétta­til­kynn­ing sem eng­inn botn­aði í. Í henni stóð ein­fald­lega að Melania hefði unnið með teymi af ræðu­skrif­urum sem tóku niður glósur um líf hennar og stundum hluta af hennar eigin hug­leið­ingum.

Það var svo dag­inn eftir sem starfs­maður Trump-sam­steypunnar tók á sig ábyrgð­ina fyrir rit­stuld­inum. En við það kom upp nýtt vanda­mál: Samkvæmt ströngum lögum um kosn­ingar í Banda­ríkj­unum mega starfs­menn fyr­ir­tækja, tengdum eða ótengdum fram­bjóð­end­anum, ekki vinna fyrir fram­bjóð­endur og fá greitt fyrir störf sín hjá fyr­ir­tæk­inu. Hér var um klárt brot á kosn­inga­lögum að ræða sam­kvæmt sér­fræð­ingum og til við­bótar hafði starfs­mað­ur­inn sent frétta­til­kynn­ing­una frá sér á bréfs­efni Trump-sam­steypunnar en ekki Trump-kosn­inga­bar­átt­unnar, sem und­ir­stik­aði brotið.

Nú var hátíð hjá spuna­meist­ur­unum og linnu­laust var spáð og spek­úlerað, þar til næsta sprengja sprakk stuttu síðar. Kjörinn full­trúi repúblik­ana og stjórna­maður flokks­ins í New Jersey lét hafa eftir sér á fundi að honum þætti að hengja ætti Hillary Clinton upp í tré. Hann baðst fljót­lega afsök­unar á ummælum sínum seinna í vik­unni.

Það voru fleiri óhugn­an­leg ummæli sem voru látin falla þessa vik­una. Full­trúa­deild­ar­þing­maður repúblik­ana spurði hvað fólk af öðrum kyn­þætti en hvítum hefði lagt til sið­væð­ingar.

Ummælin fóru eins og eldur í sinu um sam­fé­lags­miðla og urðu ekki til þess að bæta ímynd flokks­þings­ins sem nær ein­göngu hvítt fólk sótti. Við þetta bætt­ust fréttir af því að þeir flokks­menn á þing­inu sem ekki sáu sér fært að styðja Trump mættu miklum og ofsa­fengnum mót­bárum frá stuðn­ings­mönnum Trumps. Grátandi full­trúi á þing­inu sagði frá því í við­tali að hún hafi verið sökuð um það á kvennakló­sett­inu að ætla að styðja Clinton þar sem hún var ekki til­búin að styðja við Trump. Fleiri svona sögur áttu eftir að skjóta upp koll­inum eftir því sem leið á vik­una.

Ekki voru allar ræð­urnar jafn óvenju­legar þó oft hafi mátt greina tón frá fyrri flokks­leið­togum eins og oft er. Börn Donalds Trump, þau Ivanka og Donald yngri, þóttu flytja áhrifa­miklar ræður. Donald Trump yngri flutti nokkuð klass­íska ræðu sem minnti frekar á fyrri flokks­þing repúblik­ana. Hann tal­aði um amer­íska draum­inn og hvernig vinnu­eðli föður hans hefði orðið grunn­ur­inn að við­skipta­veldi hans. Hann tók einnig á málum sem virð­ast nær­tæk­ari hinum almenna kjós­enda en flestir aðrir ræðu­menn gerðu, svo sem um að skólar nútím­ans væru ekki eins og þeir voru áður og að demókratar vildu enda­lausa mið­stýr­ingu en repúblikanar vildu sam­keppni. Hann tal­aði um reglu­fargið sem væri íþyngj­andi fyrir smá­fyr­ir­tæki og stæði í veg fyrir vexti í við­skiptum. Hann tók fyrir mál eins og að gera Banda­ríkin sjálf­bær í fram­leiðslu á orku svo þau gætu losnað undan því að vera háð Sádí-Arabíu og öðrum stórum olíu­ríkjum.

Ivanka Trump hefur fylgt föður sínum hvert fót­mál í kosn­inga­bar­átt­unni og var á tíma­bili jafn­vel orðuð sem vara­for­seta­efni hans. Hún kynnti föður sinn á loka­kvöldi flokks­þings­ins á fimmtu­dag en áður en Trump steig á svið hélt hún ræðu sem vakti væg­ast sagt mikla athygli. Hún byrj­aði ræð­una á því að segj­ast hvorki telja sig vera demókrata né repúblik­ana, en í ár væri hún þó sann­færð um hvern hún ætl­aði að kjósa. Hún tal­aði svo um mik­il­vægi þess að Banda­ríkin kæmu til móts við úti­vinn­andi mæður, hún sjálf móðir þriggja barna og vissi hversu mikil áskorun það væri að vera á atvinnu­mark­aði og ala upp börn. Öllum að óvörum sagði hún að faðir hennar myndi, ef hann yrði kjör­inn for­seti, sjá til þess að það yrði í boði barna­gæsla á boð­legu verði fyrir almenn­ing, að konur myndu fá borgað fæð­inga­or­lof og að launa­munur kynj­anna yrði jafn­aður.

Að vísu sagði hún að núver­andi launa­munur kynj­anna væri sá að konur fengju borgað 83 sent fyrir hvern doll­ara sem karl­maður fengi. Það er þó ekki alveg rétt því hvítar konur fá um 75 sent fyrir hvern doll­ara sem karl­menn fá greitt og lækkar sú tala mikið þegar skoðuð eru laun kvenna af öðrum kyn­þætti. Hún sagði föður sinn ætla að eyða launa­muni kynj­anna, og að hann væri lit- og kynja­blindur, sæi bara hæfi­leika fólks óháð öðrum þáttum. Undir lok ræð­unnar, sem þótti ein sú allra besta á þing­inu, kom út ný launa­könnun sem sýndi svart á hvítu að laun kvenna væru um fjórð­ugi lægri en karla meðal starfs­manna Trump-kosn­inga­bar­átt­unnar. Enginn virt­ist kann­ast við þessa jafn­rétt­is­stefnu sem Ivanka hafði talað um og gerðu fjöl­miðla­menn grín að því að hún hefði mögu­lega verið að flytja stuðn­ings­ræðu fyrir Hillary Clinton.

En þá var komið að sjálfum Donald Trump. Kvöld eftir kvöld höfðu frétta­menn gert grín af því að flokks­þings­höllin í Cleveland væri hálf­tóm en í þetta sinn var ekki eitt ein­asta sæti autt.

Eftir að hafa hyllt Trump í langa stund á meðan hann gekk um sviðið, veif­aði og snéri þum­al­fingr­unum upp í loftið skæl­bros­andi tók hann loks til máls. Eins og venja er byrj­aði hann ræðu sína á því að lýsa því yfir að hann myndi þyggja útnefn­ingu flokks­ins sem for­seta­efni. „14 milljón atkvæði!“ sagði hann. „Við munum leiða þessa þjóð til friðar og vel­meg­unar – við erum þjóð örlætis og hlýju, en umfram allt munum við koma á lögum og reglu.“

Ræða hans er sú lengsta sem for­seta­fram­bjóð­andi hefur haldið síðan sjón­varps­út­send­ingar frá slíkum við­burðum hófust; hún stóð í rúman klukku­tíma. Stefið í ræð­unni var lög og regla. Hann ræddi um árás­irnar sem lög­reglu­menn hafa þurft að þola síð­ustu vik­urnar sem og árás­ina á klúbb sam­kyn­hneigðra í Flórída fyrir skemmstu. Hann lof­aði að þegar hann yrði for­seti myndi ofbeldið hætta. Hann nefndi ekki einu orði þann fjölda svartra sem hafa mátt þola gegnd­ar­laust ofbeldi af hálfu lög­regl­unnar og heldur ekki her­ferð­ina #BlacklLivesMatters, sem hefur verið meira og minna í fjöl­miðlum allt síð­asta ár.

Trump benti rétti­lega á að í Banda­ríkj­unum lét­ust margir vegna skot­vopna en í stað þess að tala um leiðir til að herða vopna­lög­gjöf­ina eins og almenn­ingur hefur ítrekað kallað eftir, kenndi hann ólög­legum inn­flytj­endum um og sagði það upp til hópa vera glæpa­lýð. Það var eigni­lega með ólík­indum að hlusta á ræð­una því í henni skaut­aði Trump reglu­lega fram­hjá hlutum sem nær eng­inn fram­bjóð­andi hefur kom­ist upp með að sleppa hingað til.

Þegar Trump hafði staðið í pontu í dálita stund virt­ist eitt­hvað vera að ger­ast út í sal. Trump hætti að tala og horfði pirr­aður til hliðar og beið. „Code Pink!“ æptu frétta­menn á Twitter, „Code Pink“. Fljót­lega átt­aði ég mig á því að frægur mót­mæl­andi hafði kom­ist inn í höll­ina og trufl­aði ræðu Trumps með mót­mælum. Mót­mæl­and­inn Medeja Benjamin, kona á miðjum aldri, hélt á skilti sem á stóð: „Byggjum brýr ekki múra“ og vís­aði til múrs­ins sem Trump hefur í hyggju að byggja á landa­mær­unum við Mexíkó til að halda inn­flytj­endum frá.

Í ræð­unni kom fram að ef hann verður kjör­inn for­seti verður öllum helstu frí­versl­un­ar­samn­ingum Banda­ríkj­anna rift – svo sem NAFTA og samn­ingum við Kína – og samið upp á nýtt. Trump mun fá miklu betri samn­ing, að eigin sögn. Hann ætlar að rifta kjarn­orku­samn­ingnum við Íran, hann ætlar að eyða ISIS, stilla til friðar í Mið-Aust­ur­löndum, færa fram­leiðslu­störf sem tap­ast hafa til ann­arra landa aftur til Banda­ríkj­anna, og hann ætlar að byggja múr á landa­mærum Banda­ríkj­anna og Mexíkó og brott­flytja um 11 millj­ónir ólög­legra inn­flytj­enda sem eru víð og dreif um Banda­ríkin. Og þó hann hafi ekki nefnt það í ræðu sinni þetta kvöldið þá er það enn stefnan að banna múslimum að ferð­ast til Banda­ríkj­anna. Til við­bótar lof­aði hann að laga hið ónýta stjórn­mála­á­stand sem ríkir Washington. Þó hann hafi ekki nefnt það í ræðu sinni kom það upp í við­tali í vik­unni sem leið að Trump hefur efa­semdir um sam­starf Banda­ríkj­anna innan NATO. Þetta olli miklu upp­námi meðal NATO-þjóð­anna og varð til þess að auka áhuga og áhyggjur á alþjóða­vísu á hugs­an­legu kjöri Donald Trump.

Í ræðu sinni dró hann fram mjög skugga­lega mynd af Banda­ríkj­unum og full­yrti líkt og Guiliani að mikil glæpa­alda gengi yfir Banda­ríkin. Það er þó langt frá því að vera satt því tölur sýna að landið hefur í raun aldrei verið örugg­ara. Þá hélt hann því ótrauður fram að eig­in­lega öll átök í heim­inum væru Hillary Clinton að kenna því hún var utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna.

Eftir að ræð­unni lauk, ruku fjöl­miðla­menn upp til handa og fóta og birtu fjölda leið­rétt­inga á stað­hæf­ingum Trump. En fyrst og fremst voru frétta­menn hálf orð­lausir og bentu á þá stað­reynd að Trump hafði ekki útskýrt á nokkurn hátt hvernig hann ætl­aði að gera þetta allt saman. Þetta hefur verið meg­in­þema í kosn­inga­bar­áttu Trump að belgja út lof­orð án nokk­urra útskýr­inga um hvernig hann ætlar að standa við þau. Hafi fjöl­miðla­menn eitt­hvað við þetta að athuga, eða ger­ist þeir of ónær­gætnir í spurn­ingum, er þeim ein­fald­lega kastað út. Þannig hefur farið fyrir fjöl­mörgum frétta­mönnum sem fá ekki aðgang að Trump sjálfum, né við­burðum sem hann tekur þátt í, meðal ann­ars flokks­þingi repúblik­ana.

Hið dap­ur­lega er að fæstir fletta upp slíkum greinum og jafn­vel þó margar millj­ónir horfðu á ræðu Trump að hluta til eða að öllu leyti, gera kjós­endur ráð fyrir að Trump sé ekki bein­línis að ljúga að þeim. Flestir gera þó ráð fyrir að hann hag­ræði sann­leik­anum aðeins. Það er von margra kjós­enda að Trump sé sá stjórn­mála­maður sem komi til með að hrista upp í ger­sam­lega von­lausu stjórn­mála­á­standi í Washington þar sem fátt ger­ist ár eftir ár þar sem menn geta ekki komið sér saman um að klára ein­föld­ustu mál. Þreyta kjós­enda er mikil og því far­vegur fyrir óvenju­lega stjórn­mála­menn líkt og Trump.

Hann er ítrekað stað­inn að því að tala í mót­sögn við sjálfan sig; lof­orð hans um að leysa flókin og erfið mál á borð við ISIS eru sögð út í blá­inn og þeim fylgja sjaldn­ast nokkrar útfærslur. Sá tónn sem sleg­inn var á flokks­þing­inu í síð­ustu viku var harð­ari og meira ógn­vekj­andi en áður. Undir flestum kring­um­stæðum hefðu menn reynt að tóna sig niður og haga sér meira eins og for­setar. En Trump gaf í og nú var Repúblikana­flokk­ur­inn hans. Það er aug­ljóst að ætl­unin er að sam­eina kjós­endur repúblik­ana gegn Clinton en um leið að hræða líf­tór­una úr fólki og lofa öllu fögru án þess að gefa nokkuð út um það hvernig á að leysa málin. Og það eru engin smá mál á lof­orða­list­anum; það á að koma á friði í heim­inum, eyða ofbeldi, læsa alla ófrið­ar­seggi inni, fjölga störfum, rifta samn­ingum við önnur ríki og auð­vitað bæta efna­hag­inn, svo fátt eitt sé nefnt.

Þekktur blaða­maður skrif­aði á Twitter þegar ræðu Trump lauk: „Meira að segja ræða George W. Bush var ekki svona dimm, og hún var flutt rétt eftir að hryðju­verka­menn höfðu raun­veru­lega ráð­ist á Banda­ríkin“. Það segir sitt. Rit­stjórn Washington Post birti leið­ara í blað­inu að flokks­þing­inu loknu undir fyr­ir­sögn­inni „Donald Trump er ein­stak­lega mikil ógn við lýð­ræðið í Ameríku“ og þar er því lýst í löngu máli hvers vegna þau telja að Trump verði hættu­legur for­seti verði hann kjör­inn. Garry Kasparov skák­meist­ari sagði á Twitter eftir að ræðu Trump lauk að hann hefði heyrt svona ræður í 15 ár og að þær væru ekk­ert skárri á rúss­nesku og átti þar við Vladimír Pútin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsetakosningar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár