Engin endanlega afstaða verið tekin til þátttöku í Belti og braut

Þátttaka Íslands í Belti og braut hefur verið til skoð­unar að hálfu íslenskra stjórn­valda. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um þátt­töku eða ekki og því voru þakkir Mike Pence, vara­for­seta Banda­ríkj­anna, til Íslands fyrir að hafna verk­efn­inu, ótíma­bærar.

Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, fundaði með Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra í gær.
Mike Pence, vara­for­seti Banda­ríkj­anna, fund­aði með Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni utan­rík­is­ráð­herra í gær. Mynd: Utanríkisráðuneytið

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra segir að engin end­an­leg ákvörðun hafi verið tekin um þátt­töku Íslands í kín­verska inn­viða og fjár­fest­inga­verk­efn­inu Belti og braut. Mike Pence, vara­for­seti Banda­ríkj­anna, þakk­aði Íslend­ingum fyrir að hafa ekki tekið þátt í verk­efn­inu þegar hann ræddi við frétta­menn fyrir utan Höfða, fyrir fund hans með íslenskum ráða­mönnum og full­trúum íslensks við­skipta­lífs.

[links]Í svari utan­rík­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið segir að þátt­taka Íslands í Belti og braut hafi verið til skoð­unar af hálfu íslenskra stjórn­valda um nokkra hríð. Hið sama gildi um flest nágranna­ríki Íslands. „Engin end­an­lega afstaða hefur verið tekin til máls­ins en við höfum lagt áherslu á að núver­andi samn­ingar sem við höfum við Kínverja, til að mynda frí­versl­un­ar­samn­ingur, komi að fullu til fram­kvæmda. Okkur hefur raunar orðið nokkuð ágengt í þeim efnum, eins og menn þekkja."

Vilja endurvekja Silkileiðina

Belti og Braut er verk­efni sem hefur verið ráð­andi í utan­rík­is­stefnu Kína frá árinu 2013. Nafnið vísar til hinnar fornu Silki­leiðar sem tengdi Kína við umheim­inn og verk­efnið snýst um að end­ur­vekja hana. „Beltið“ er vísun í svo­kall­aðan silki­veg á landi en „braut“ í silki­leið á sjó, til dæmis í formi hafna.

Verk­efnið er afar víð­feðmt og nær frá Kína til Evrópu og Austur-Afríku, auk þess sem það nær til fjöl­margra Asíu­ríkja. Að minnsta kosti 68 ríki hafa skrifað undir þátt­töku í verk­efn­inu og saman mynda ríkin um 40 pró­sent lands­fram­leiðslu heims­ins. Það felur í sér stór­aukna fjár­fest­ingu eða lán­veit­ingar frá kín­verskum fyr­ir­tækjum, að mestu rík­is­fyr­ir­tækjum, til að byggja upp inn­viði á borð við hafnir, lestar­teina, hrað­brautir og flug­velli. Auk þess á þátt­taka að geta hraðað aukn­ingu á við­skiptum milli þátt­töku­ríkja við Kína, einn stærsta markað í heimi.

Vilja fá Ísland með

Á norð­ur­slóðum er búist við auk­inni skipa­um­ferð eftir því sem ís á svæð­inu bráðnar. Að sigla frá Kína til Evrópu í gegnum þennan heims­hluta myndi stytta flutn­ings­tíma til muna sé miðað við núver­andi flutn­inga­leiðir. Þar með getur fjár­hags­legur hvati að flytja vörur um svæðið mynd­ast. Ísland, vegna stað­setn­ingar sinnar, er því orðið ansi eft­ir­sókn­ar­verður þátt­tak­andi í verk­efn­inu.

Í jan­úar 2018 gáfu kín­versk stjórn­völd út sína fyrstu norð­ur­slóða­stefnu. Í henni segj­ast þau vilja gera norð­ur­slóðir hluta af Silki­veg­inum á ís eða Silki­vegi norð­ur­slóða og þar með hluta af Belti og braut. Enn fremur titla kín­versk stjórn­völd Kína sem „nær­ríki norð­ur­slóða“ í stefnu sinni.

Jin Zhijian, sendi­herra Kína á Íslandi, sagði í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarnans í ágúst að íslensk stjórn­völd séu opin fyrir þátt­töku í Belti og braut. „Í dag hefur Kína skrifað undir sam­starfs­samn­inga á grund­velli Beltis og brautar við 127 ríki og 29 alþjóð­legar stofn­anir. Við­skipta­magn á milli Kína og landa sem eru hluti af Belti og braut er meira en sex billjón Banda­ríkja­dala og fjár­fest­ingar meira en 80 millj­arðar Banda­ríkja­dala.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár