Ætti Ísland að taka þátt í Belti og braut?

Þátttaka í kín­verska inn­viða- og fjár­fest­inga­verk­efn­inu Belti og braut stendur öllum ríkjum til boða. Ákveði íslensk stjórn­völd að taka þátt í verk­efn­inu gæti það aukið aðgengi að inn­viða­fjár­fest­ingu, en verk­efnið er þó afar umdeilt.

Innviða- og fjár­vest­inga­verk­efnið Belti og braut (kínv. 一带一路, e. Belt and Road Ini­ti­ative) er verk­efni sem ein­kennt hefur utan­rík­is­stefnu Kína frá árinu 2013 undir stjórn for­seta lands­ins, Xi Jinping. Með Belti og braut er vísað til hinnar fornu Silki­leiðar sem tengdi Kína við umheim­inn og vill Xi Jinping end­ur­vekja hana undir for­merkjum Beltis og brautar. Belti og braut – eða Silki­leið 21. ald­ar­innar – skipt­ist í stuttu máli í svo­kall­aðan silki­veg eða „belti“ á landi, til dæmis í formi lestar­teina og hrað­brauta. Hinn hlut­inn er silki­leið á sjó eða „braut“ – til dæmis í formi hafna sem þar að auki tengir Kína við umheim­inn.

Verk­efnið er afar víð­feðmt og nær frá Kína til Evrópu og Austur-Afríku, auk þess sem það nær til fjöl­margra Asíu­ríkja. Að minnsta kosti 68 ríki hafa skrifað undir þátt­töku í verk­efn­inu og saman mynda ríkin um 40 pró­sent lands­fram­leiðslu heims­ins.

Hnattvæðing hornsteinn verkefnisins

Yfirlýst mark­mið verk­efn­is­ins eru að auka sam­skipti um stefnu­mótun milli ríkja, auð­velda við­skipti og verslun, styrkja vega­sam­göngur, auka gjald­eyr­is­við­skipti og styrkja sam­skipti þjóða. Því má segja að aukin hnatt­væð­ing og sam­þætt­ing sé horn­steinn verk­efn­is­ins.

Til að mynda er bygg­ing lestar­teina frá Shanghai, í gegnum Kasakstan og Rússland sem munu að lokum enda í London, fram­kvæmd undir for­merkjum Beltis og brautar. Lestar­tein­arnir verða 12.000 kíló­metra langir.

Svo virð­ist sem allt sem við­kemur innviðum eða fjár­fest­ingum tengt Kína falli nú undir for­merki Beltis og brautar. Ekki eru það ein­ungis hafnir, járn­brautir og lestir, heldur einnig net­kerfi. Því gæti verið erfitt að greina á milli þess sem áður hefur verið byggt upp eða komið á fót en sé nú sagt vera undir for­merkjum Beltis og brautar og svo þess sem var ákveðið frá upp­hafi að væri hluti af verk­efn­inu.

Myndin sýnir áætlun kínverskra stjórnvalda um Belti og braut.
Myndin sýnir áætlun kín­verskra stjórn­valda um Belti og braut.

Jin Zhijian, sendi­herra Kína á Íslandi, segir í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarnans að íslensk stjórn­völd séu opin fyrir þátt­töku í Belti og braut. Íslensk stjórn­völd hafa þó ekki mótað sér end­an­lega afstöðu til verk­efn­is­ins, að því er fram kemur í svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans. Í svar­inu segir að ráðu­neytið hafi haft málið til skoð­unar í því augna­miði að greina hvað í fram­tak­inu felist og hvað aðild eða teng­ing við það gæti þýtt fyrir íslenska hags­mun­i.

Umdeilt framtak

Margir hafa þó gagn­rýnt verk­efnið og telja sumir að kín­versk stjórn­völd vilji nota það til þess að auka stjórn­mála­leg áhrif sín í heim­inum. Banda­ríkin eru eflaust það ríki sem er opin­ber­lega hvað mest mót­fallið verk­efn­inu. Bæði vara­for­seti Banda­ríkj­anna, Mike Pence, og utan­rík­is­ráð­herra, Mike Pompeo, hafa gagn­rýnt fram­takið og sagt það varpa ríkjum í skulda­gildru. Gagn­rýnendur vísa einnig oft til aðstæðna Srí Lanka í því sam­hengi.

Í suð­ur­hluta Srí Lanka hafa kín­versk fyr­ir­tæki einka­leigu­rétt til 99 ára á höfn sem kölluð er Hamban­tota höfnin. Það er vegna þess að stjórn­völd í Srí Lanka gátu ekki greitt skuld sína við kín­versku fyr­ir­tækin sem byggðu höfn­ina.

Banda­ríkja­menn hafa jafn­framt gagn­rýnt skil­mála sem ýmsar þjóðir hafa geng­ist við þar sem kín­versk rík­is­fyr­ir­tæki standi að bygg­ing­unni eða lán undir for­merkjum Beltis og brautar með það að skil­yrði að kaupa vörur frá kín­verskum fyr­ir­tækjum.

Lyk­il­banda­menn Banda­ríkj­anna, til að mynda Ísrael, Suður-Kórea og Fil­ipps­eyjar, eru meðal þátt­töku­ríkja Beltis og brautar og virð­ast Banda­ríkin nú vera komin í sam­keppni við Belti og braut. Banda­ríkin komu nýlega á lögum um alþjóð­lega þró­un­ar­fjár­fest­ingar – sem kall­ast á ensku The BUILD Act – sem minnir að mörgu leyti á hið kín­verska verk­efni.

Fleiri lönd hikandi við að taka þátt

Emmanuel Macron, for­seti Frakk­lands, hefur einnig gagn­rýnt verk­efnið. Hann hefur lagt áherslu á að Belti og braut eigi ekki að vera „ein­stefnu­vegur“ – það er að Kína geti ein­ungis fjár­fest í öðrum ríkjum – heldur ættu þátt­töku­ríki einnig að geta fjár­fest í Kína. Stjórn­völd þar í landi ættu ekki að not­færa sér Belti og braut til þess að ná yfir­ráðum yfir öðrum löndum og gera þátt­töku­ríki und­ir­gefin því.

Á ráð­stefnu um Belti og braut árið 2017 neit­uðu Bretland, Frakk­land og Þýska­land að skrifa undir þátt­töku í verk­efn­inu vegna þess að þau töldu ekki nógu skýrt hvernig útboðum á fram­kvæmdum í tengslum við Belti og braut yrði háttað.

Emmanuel Macron, forseti Frakklands, og Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, eru báðir mjög gagnrýnir á Belti og braut.
Emmanuel Macron, for­seti Frakk­lands, og Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, eru báðir mjög gagn­rýnir á Belti og braut.

Kínversk stjórn­völd hafa ávallt neitað fyrir að Belti og braut sé leið þeirra til að ná yfir­ráðum yfir öðrum ríkjum. Þau leggja áherslu á að Belti og braut sé verk­efni þar sem allir græði (kínv. 共赢, e. win-win), auk þess séu ásak­anir um að verk­efnið sé skulda­gildra óhróður sem kín­versk stjórn­völd vísi á bug.

Hvað græða þátttökuríki á Belti og braut?

Þátttaka í verk­efn­inu er sem stendur öllum ríkjum opin. Mörg þátt­töku­ríki fagna verk­efn­inu vegna auk­inna kín­verskra fjár­fest­inga þar sem mörg hver þeirra hafi þörf á að byggja upp inn­viði sína, til dæmis hafnir, lestar­teina, hrað­brautir eða flug­velli.

Enn fremur gæti þátt­taka aukið hraða við­skipta á milli þátt­töku­ríkj­anna við Kína og önnur lönd og þar með verið löndum til bóta. Talsmenn verk­efn­is­ins segja að það geti gert ríkjum kleift að þróa hag­kerfi sín og jafn­vel dregið úr fátækt.

Varðandi hvað þátt­taka myndi þýða fyrir Ísland og hvaða breyt­ingar það hefði í för með sér segir Jin Zhijian, sendi­herra Kína á Íslandi í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans, að Belti og braut geti þjónað sem nýr vett­vangur og veitt kín­versk-íslenskri sam­vinnu ný tæki­færi. Þátttaka Íslands myndi styrkja tengsl á milli land­anna. Með stuðn­ingi Beltis og brautar, AIIB og Silki­vegs­sjóðs­ins gætu Kína og Ísland unnið betur saman með því að byggja tengsla­net á sjó, lofti og á net­inu, auk þess að byggja inn­viði fyrir ferða­menn, koma á sigl­inga­leiðum um Silkiveg norð­ur­slóða, beinu flugi og 5G sam­skipta­kerfi.

Jin Zhijian, sendiherra Kína á Íslandi, segir Belti og braut geta eflt vöxt tvíhliða viðskipta á vörum og þjónustu á milli landanna og aukið tvíhliða fjárfestingar.
Jin Zhijian, sendi­herra Kína á Íslandi, segir Belti og braut geta eflt vöxt tví­hliða við­skipta á vörum og þjón­ustu á milli land­anna og aukið tví­hliða fjár­fest­ingar.

Sendi­herr­ann segir að þátt­taka Íslands gæti aukið sam­vinnu í við­skipta­lífi og verslun á milli land­anna tveggja. Það sé vegna þess að hag­vöxtur í Kína er stór hluti heims­hag­kerf­is­ins og þurfi kín­verski mark­að­ur­inn nú að mæta auk­inni eft­ir­spurn á vörum, þar á meðal á vörum frá Íslandi.

„Með batn­andi lífs­kjörum kjósa fleiri og fleiri Kín­verjar að ferð­ast utan land­stein­anna. Ísland hefur hlotið auk­inn fjölda kín­verskra ferða­manna árlega sem hefur aukið þjón­ustu­við­skipti á Íslandi. Á sama tíma gæti Belti og braut stutt við frí­versl­un­ar­samn­ing land­anna okkar tveggja sem myndi efla vöxt tví­hliða við­skipta á vörum og þjón­ustu og sam­vinnu í net­verslun og auka tví­hliða fjár­fest­ingar,“ segir sendi­herr­ann.

Hvað græðir Kína á Belti og braut?

Kínversk stjórn­völd eru undir for­merkjum Beltis og brautar að fjár­festa í innviðum ann­arra ríkja til þess að vinna að mark­miðum verk­efn­is­ins og auð­velda allan inn- og útflutn­ing. Með auk­inni inn­viða­bygg­ingu í bæði nær- og fjær­ríkjum Kína mun flutn­ings­geta aukast og þar með gætu við­skipti Kína við önnur ríki auk­ist.

Ýmsir fræði­menn hafa bent á að kín­versk stjórn­völd vilji gera Kína tækni­vædd­ara og auka þróun ýmissa hér­aða rík­is­ins. Einka­neyslu þurfi einnig að auka til að halda uppi hag­vexti rík­is­ins og verk­efnið muni enn fremur styrkja gjald­miðil rík­is­ins. Aðrir telja að verk­efnið sé að mestu stra­tegískt, til að mynda í Ind­lands­hafi. Stærra net hafna í haf­inu tryggi Kína aðgengi að sjó­leiðum sem sé bráð­nauð­syn­legt fyrir ríki eins og Kína sem byggir sinn efna­hag á útflutn­ingi.

Sex billjón Bandaríkjadala

Með Belti og braut er lögð áhersla á sam­eig­in­legan ávinn­ing Kína og þeirra ríkja sem taka þátt í Belti og braut, að því er kemur fram í svari Jin Zhijian, sendi­herra Kína á Íslandi. „Belti og braut ein­blínir á sam­hæfða stefnu, inn­viða­tengsl, óhindruð við­skipti, fjár­hags­lega sam­þætt­ingu og sterk­ari tengsl fólks. Verk­efnið leit­ast eftir opinni, grænni og hreinni þróun,“ segir Jin.

Við­skipta­magn á milli Kína og landa sem eru hluti af Belti og braut er meira en sex billjón Banda­ríkja­dala og fjár­fest­ingar meira en 80 millj­arðar Banda­ríkja­dala

Sendi­herr­ann segir að verk­efnið hafi fengið mik­inn með­byr og stuðn­ing alþjóða­sam­fé­lags­ins. „Í dag hefur Kína skrifað undir sam­starfs­samn­inga á grund­velli Beltis og brautar við 127 ríki og 29 alþjóð­legar stofn­anir. Við­skipta­magn á milli Kína og landa sem eru hluti af Belti og braut er meira en sex billjón Banda­ríkja­dala og fjár­fest­ingar meira en 80 millj­arðar Banda­ríkja­dala.“

Rafrænn Silkivegur möguleiki

„Kína og Ísland geta einnig eflt sam­vinnu sína í fram­leiðslu á snjall­tækni, raf­rænum efna­hag og verndun hug­verka­rétt­inda, kannað nýja tækni, ný form og leiðir til við­skipta, ásamt því að styrkja sam­vinnu með stór gagna­sett, skýja­tækni og upp­bygg­ingu snjallra borga,“ segir Jin.

Ísland gæti fengið aukið aðgengi að fleiri mörk­uðum með þátt­töku í Belti og braut, sam­kvæmt sendi­herr­anum. „Að því leyti getur háþróuð tækni Íslands í jarð­varma kom­ist á stærri vett­vang þegar hún er sam­einuð fjár­magni og mark­aði landa í Belti og braut,“ segir hann.

Hver áhrif þátt­taka Íslands í verk­efn­inu yrðu á stjórn­mála­legt sam­band ríkj­anna tveggja telur Jin að þátt­taka Íslands í Belti og braut myndi vissu­lega vera tví­hliða sam­skiptum Kína og Íslands hag­stæð. Ríkin gætu þannig dýpkað sam­vinnu sína með aðstoð Beltis og brautar.

Ég vona og trúi að íslensk stjórn­völd ákveði að taka þátt í Belti og braut í nákominni fram­tíð. Mig langar ekki að sjá Ísland missa af stórum tæki­færum sem Belti og braut skapar

Varðandi hverjar afleið­ing­arnar yrðu fyrir Ísland ef það kysi að taka ekki þátt í Belti og braut segir Jin: „Ég vona og trúi að íslensk stjórn­völd ákveði að taka þátt í Belti og braut í nákominni fram­tíð. Mig langar ekki að sjá Ísland missa af stórum tæki­færum sem Belti og braut skapar.“

Fjárfesting í innviðum setið á hakanum

Heiðar Guð­jóns­son, for­maður Efna­hags­ráðs norð­ur­skauts­ins og for­stjóri Vodafone og Stöðvar 2, segir í sam­tali við Kjarnann ýmsa kosti vera fyrir Ísland við þátt­töku í Belti og braut, meðal ann­ars aðgangur að gríð­ar­legu fjár­magni til að byggja upp inn­viði. Þá séu kost­irnir sér­stak­lega miklir fyrir skipa­fé­lög, verk­taka og flug­fé­lög sem felist í flutn­inga­tengdum innviðum og gagna- og vöru­flutn­ingum.

Heiðar Guðjónsson, formaður Efnahagsráðs norðurskautsins og forstjóri Vodafone og Stöðvar 2. Mynd: Kjartan Þorbjörnsson
Heiðar Guð­jóns­son, for­maður Efna­hags­ráðs norð­ur­skauts­ins og for­stjóri Vodafone og Stöðvar 2. Mynd: Kjartan Þor­björns­son

„Innviðir á Íslandi eru tak­mark­aðir og miðað við hvað landið er ríkt hefur fjár­fest­ing í innviðum setið á hak­anum,“ segir Heiðar. „Ísland var í fyrnd­inni þjón­ustu­mið­stöð fyrir verslun á norð­ur­slóðum. Hafnir á Íslandi eru íslausar árið um kring og er Ísland eina norð­ur­slóða­landið, auk Noregs, með slíkar hafnir,“ segir hann. Íslend­ingar ættu jafn­framt að nýta þau tæki­færi sem hljót­ast með auknum flutn­ingum á norð­ur­slóðum og ætti landið að vera þjón­ustu­mið­stöð í Atl­ants­hafi.

Að Kín­verjar séu að öðl­ast yfir­ráð í löndum sem þeir fjár­festa í er fjar­stæðu­kennt

Heiðar segir mik­il­vægt að þátt­taka í Belti og braut sé á for­sendum heima­manna, þannig að lög­sagan sé skýr. „Að Kín­verjar séu að öðl­ast yfir­ráð í löndum sem þeir fjár­festa í er fjar­stæðu­kennt,“ segir hann.

Með eða á móti ekki eina leiðin

Heiðar bendir á að Ísland hafi ekki ein­ungis þessa tvo kosti; að taka ann­að­hvort þátt eða ekki. Þriðji kost­ur­inn sé að fara að fyr­ir­mynd Finna, það er að skrifa ekki undir þátt­töku, heldur gera sér­samn­inga við kín­versk stjórn­völd um verk­efni sem rúm­ast til hliðar við Belti og braut. Þannig gangi Finnar ekki beint inn í heild­ar­verk­efni Beltis og brautar heldur geri sér­samn­inga um sér­stök verk­efni.

Hann segir að Norð­ur­löndin hafi enn ekki gerst form­legir aðilar að Belti og braut, en að Finnland sé að fá gríð­ar­lega fjár­fest­ingu í sína inn­viði. „Finnland er með verk­efni að byggja neð­an­sjáv­ar­göng frá Helsinki til Tallin að verð­mæti 15 millj­arða evra þar sem bæði Kín­verjar og Evr­ópu­sam­bandið eru fyr­ir­ferða­mikil innan þess verk­efnis.“

„Annað verk­efni er fjár­fest­ing upp á 3 til 5 millj­arða evra fyrir járn­braut frá Rovaniemi til Kirkenes. Þar eru bæði kín­verskir aðilar og Evr­ópu­sam­bandið að fjár­festa,“ segir Heiðar. „Þessi fjár­fest­ing, að búa til sam­gönguæð frá Kirkenes til Finn­lands og tengja beint við Evrópu, skiptir Finna gríð­ar­lega miklu máli. Það er dæmi um verk­efni sem Kín­verjar taka mik­inn þátt í,“ segir hann.

Heiðar bendir á að Finnar leggi nú jafn­framt sæstreng Norð-Aust­ur­leið­ina, þar sem streng­ur­inn fari norður fyrir Síberíu og niður til Japan og Kína. „Ef Kín­verjar byggja inn­viði í Finn­landi þá hafa þeir ekki lög­sögu þar. Þeir eru að taka áhættu með því að fjár­festa í land­inu. Þeir þurfa að haga sér í sam­ræmi við lög og reglur í við­kom­andi landi, ann­ars er hætta á að inn­viðir séu þjóð­nýttir.“

Amer­ík­anar vilja alls ekki að við skrifum upp á svona samn­inga við Kína. Nú er kapp­hlaup hafið um upp­bygg­ingu inn­viða á norð­ur­slóðum

„Amer­ík­anar vilja alls ekki að við skrifum upp á svona samn­inga við Kína. Nú er kapp­hlaup hafið um upp­bygg­ingu inn­viða á norð­ur­slóðum,“ segir Heiðar. „Banda­ríkin reyna að stilla mönnum upp, segja „við eða þeir.“ Bretar hafa hins vegar sótt sér tæki­færi í því að semja bæði til aust­urs og vest­urs,“ segir hann og bætir því við að hann telji að Íslend­ingar ættu ekki að skipa sér í ákveðið lið. Far­sæl­ast væri að eiga við­skipti til bæði aust­urs og vest­urs.

Hverjir eru valkostir Íslands?

Íslandi stendur til boða að taka þátt í Belti og braut. Í raun er því ekk­ert til fyr­ir­stöðu og geta íslensk stjórn­völd ákveðið sína stefnu gagn­vart verk­efn­inu. Þátttaka gæti aukið fjár­fest­ingar á Íslandi og auð­veldað upp­bygg­ingu inn­viða, einnig gæti þátt­taka greitt leið fyrir við­skiptum við Kína og styrkt almenn sam­skipti við fjöl­menn­asta ríki heims.

Því er ljóst að efna­hags­legur hagur gæti orðið af þátt­töku í verk­efn­inu en hins vegar gæti þátt­taka haft ýmsar ófyr­ir­séðar stjórn­mála­legar afleið­ingar fyrir Ísland. Ákveði íslensk stjórn­völd að taka þátt í Belti og braut væri skyn­sam­legt að hafa öll ákvæði skýr hvað varðar fjár­fest­ingar og fram­kvæmdir, til að mynda að hafa skýrt kveðið á um hvernig útboðum sé háttað. Jafn­framt er mik­il­vægt að stíga var­lega til jarðar og rýna ítar­lega í hverjar afleið­ingar þátt­töku yrðu fyrir land og þjóð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár