Þórólfur: Samfélagið þarf að búa sig undir að smit verði í þjóðfélaginu næstu mánuðina

Sótt­varna­læknir segir í sínu nýjasta minn­is­blaði til heil­brigð­is­ráð­herra að íslenskt sam­fé­lag þurfi að búa sig undir að smit verði í þjóð­fé­lag­inu næstu mán­uði og að á ein­hverjum tíma­punktum þurfi að grípa til harðra aðgerða.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Bára Huld Beck

Heil­brigð­is­ráð­herra hefur ákveðið í meg­in­at­riðum þær breyt­ingar á sótt­varna­ráð­stöf­unum sem kveðið verður á um í reglu­gerð um tak­mark­anir á sam­komum sem tekur gildi þriðju­dag­inn 20. októ­ber. Breyt­ing­arnar verða að mestu þær sömu og sótt­varna­læknir leggur til í minn­is­blaði sínu, sam­kvæmt því sem fram kemur í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins.

„Líklegt má telja að nokkuð lengri tíma en 1-2 vikur muni þurfa til að sjá árangur af þeim aðgerðum sem nú er verið að beita þar sem að veiran hefur náð að hreiðra um sig víða í sam­fé­lag­inu,“ segir Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir í minn­is­blaði sínu og bætir við að hann telji lík­legt að hægt muni ganga að ná far­aldr­inum niður að þessu sinni þrátt fyrir þær hörðu aðgerðir sem eru í gangi.[links]

„Að mínu mati þarf því íslenskt sam­fé­lag að búa sig undir að hér verði smit í þjóð­fé­lag­inu næstu mán­uð­ina og lík­legt að á ein­hverjum tíma­punktum þurfi að beita hörðum aðgerðum til koma í veg fyrir stóra far­aldra. Þetta ástand verður að lík­indum við­var­andi þar til virkt og öruggt bólu­efni verður til­búið til notk­unar sem verður lík­lega ein­hvern tíma á næsta ári,“ segir síðan í minn­is­blaði Þórólfs.

Hér að neðan má sjá helstu breyt­ingar sem verða á sótt­varna­ráð­stöf­unum frá og með þriðju­deg­inum 20. októ­ber. Upp­lýs­ing­arnar eru settar fram með fyr­ir­vara um mögu­legar breyt­ingar á útfærslu ein­stakra þátta í reglu­gerð sem unnið er að í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu.

Takmarkanir utan höfuðborgarsvæðisins – helstu breytingar:

  • Nánd­ar­mörk milli ein­stak­linga verða 2 metrar.
  • Skylt verður að nota and­lits­grímur þar sem ekki er hægt að tryggja 2 metra nánd­ar­mörk, m.a. í versl­unum.
  • Á við­burðum verður ein­ungis heim­ilt að hafa 20 gesti í hólfi í hverju rými sem skulu sitja í núm­eruðum sætum sem skráð eru á nafn.
  • Engir áhorf­endur mega vera á íþrótta­við­burðum, hvorki innan- né utandyra.
  • Íþrótta­iðkun, einnig sú sem krefst snert­ingar eða mik­illar nálægðar, verður heimil, jafnt innan- og utandyra.
  • Lík­ams­rækt­ar­stöðvar verða áfram lok­aðar.

Takmarkanir á höfuðborgarsvæðinu – helstu breytingar:

  • Allt íþrótta- og tóm­stunda­starf barna á leik- og grunn­skóla­aldri sem krefst snert­ingar verður óheim­ilt.
  • Skóla­sund verður óheim­ilt.
  • Íþrótta­iðkun sem ekki krefst snert­ingar verður heimil en fjöldi þátt­tak­enda má að hámarki vera 20 ein­stak­lingar og 2 metra nánd­ar­mörk skulu virt. Engir áhorf­endur mega vera við­staddir.
  • Æfingar og keppni í íþróttum sem krefj­ast snert­ingar verða óheim­ilar, innan húss og utan, jafnt hjá börnum og full­orðnum.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár