Náum ekki verðbólgumarkmiði fyrr en 2027 – launahækkanir lykilþáttur

Vara­seðla­banka­stjóri segir bank­ann gera ráð fyrir að verð­bólga hækki aftur áður en hún lækkar. Spár Seðla­bank­ans geri ráð fyrir að verð­bólgu­mark­mið náist á fyrri hluta 2027. Launa­hækk­anir sem tryggðar voru í síð­ustu kjara­samn­ingum hafi gegnt lyk­il­hlut­verki í því að við­halda inn­lendum hluta verð­bólg­unnar.

Þrálát verðbólga
Þrálát verð­bólga Þór­ar­inn G. Pét­urs­son, vara­seðla­banka­stjóri pen­inga­stefnu, hélt erindi á fundi Félags atvinnu­rek­enda í vik­unni þar sem hann fjall­aði um þrá­láta verð­bólgu, spá bank­ans um hvenær verð­bólgu­mark­mið hans næst, og við­skipta­stríð Banda­ríkja­for­seta. Mynd: Seðlabanki Íslands

Verð­bólga á Íslandi mun ekki ná mark­miði Seðla­bank­ans fyrr en árið 2027, þrátt fyrir háa vexti og hjaðn­andi inn­flutta verð­bólgu. Þetta kom fram í erindi Þórarins G. Pét­urs­sonar, vara­seðla­banka­stjóra pen­inga­stefnu, á fundi Félags atvinnu­rek­enda í vik­unni. Þrátt fyrir að inn­flutt verð­bólga hafi hjaðnað vegna styrk­ingar krón­unnar heldur inn­lend verð­bólga áfram að þrýst­ast upp, ekki síst vegna mik­illa launa­hækk­ana. 

Hækkar aftur áður en hún lækkar

Stýri­vextir Seðla­bank­ans hafa verið sögu­lega háir und­an­farin miss­eri í bar­áttu bank­ans við þrá­láta verð­bólgu. Yfirlýst mark­mið bank­ans er að verð­bólga sé tvö og hálft pró­sent, og sveiflist ekki meira en 1,5 pró­sent í hvora átt frá því mark­miði, en verð­bólga hefur hins vegar mælst í kringum fjögur pró­sent und­an­farið. Þó að hún hafi lækkað tölu­vert frá því hún mæld­ist yfir tíu pró­sent í byrjun árs 2023 er hún enn of há, að mati bank­ans. 

Und­ir­liggj­andi verð­bólga hefur að sögn Þórarins hald­ist nálægt …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár