Veikleikar og brotalamir í skipulagsmálum á Íslandi

Eftir níu ár á for­stjóra­stóli hjá Skipu­lags­stofnun söðl­aði Ásdís Hlökk Theo­dórs­dóttir um á árinu, yfir í kennslu og rann­sóknir við Háskóla Íslands. Í við­tali við Kjarnann ræðir hún skipu­lags­mál á Íslandi, gæði byggðar og álita­mál um beislun vind­orkunnar.

Ásdís Hlökk Theo­dórs­dóttir lét af störfum sem for­stjóri Skipu­lags­stofn­unar fyrr á árinu, en hefur þó ekki sagt skilið við skipu­lags­málin, heldur fært sig yfir í kennslu og fræða­störf á því sviði við Háskóla Íslands. Þar er hún að fara af stað með rann­sókn­ar­verk­efni á því sem hún kallar „fag­legt og stjórn­sýslu­legt bol­magn sveit­ar­fé­laga í skipu­lags­málum“.

Í sam­tali við Kjarnann um skipu­lags­mál á Íslandi segir Ásdís Hlökk að í íslenskri stjórn­sýslu hafi sveit­ar­fé­lögum verið veitt mikið for­ræði á skipu­lags­málum á sama tíma og þau sé „ótrú­lega mörg“ og sum „ótrú­lega smá“ og því eðli máls­ins sam­kvæmt með fámenna stjórn­sýslu. Þarna séu „aug­ljós­lega ákveðnir veik­leikar og brotala­mir“.

„Það gefur auga leið í mínum huga, en ég ætla svo sem ekki að hafa um það stærri orð á þessu stigi, heldur leyfa rann­sókn­inni að hafa sinn gang“ segir Ásdís Hlökk.

Lang­tíma­hugsun var henni ofar­lega í huga þegar hún sett­ist niður með blaða­manni í aðdrag­anda jóla til þess að ræða um skipu­lags­mál á Íslandi og þær áskor­anir sem ætíð er glímt við á því sviði, að tryggja gæði byggðar og góða land­nýt­ingu; að búa í hag­inn fyrir sam­fé­lag fram­tíð­ar­innar.

Ásdís Hlökk segir feg­urð­ina við skipu­lags­málin í hennar huga vera að í þeim mála­flokki er ávallt verið að skoða hlut­ina með sam­þættum hætti, fremur en að beina athygli að ein­ungis einum mála­flokki í einu. Við skipu­lags­gerð er maður „alltaf í þessum vanga­veltum um sam­spil byggðar, nátt­úru, orku, sam­gangna land­bún­aðar og svo fram­vegis,“ segir Ásdís Hlökk og bætir við að það veiti gott tæki­færi til að skapa sam­þættan ávinn­ing.

Það er mik­il­vægt, segir hún, „því hættan er ávallt sú þegar þú ert að vinna áætl­anir um einn mála­flokk að þá sértu með mark­mið þess mála­flokks í for­grunni og annað mæti afgangi. „Ef þú ert að vinna að skóg­rækt­ar­á­ætlun þá hugsar þú hvar er besta landið til að rækta skóg án þess kannski að gefa öðrum hags­munum sér­stakan gaum og jafn­vel þegar þú ert að vinna sam­göngu­á­ætlun þá, jafn­vel þó sam­göngur hafi þann eina til­gang að þjóna fólk­inu í byggð­inni og sam­fé­lag­inu, þá virð­ist til­hneig­ingin á stundum verða að hugsa um sam­göngu­mann­virkin á for­sendum sam­göngu­mann­virkj­anna,“ segir Ásdís Hlökk.

Fengur þegar stjórnmálamenn með skýra sýn veljast inn

„Lang­tíma­hugs­unin, hún er nátt­úr­lega alfa og ómega í skipu­lags­málum,“ segir Ásdís Hlökk einnig, en bætir við að það kall­ist að ein­hverju leyti á við það að ákvarð­ana­taka í mála­flokknum er falin lýð­ræð­is­lega kjörnum stjórn­völdum, sem við veljum og veitum umboð á fjög­urra ára fresti.

„Það getur verið kúnst, og það er alltaf mik­ill fengur þegar það velj­ast inn stjórn­mála­menn sem hafa skýrar hug­myndir og sýn um hið byggða umhverfi og land­nýt­ingu og hafa bak­land, þroska og kjark til að setja markið svo­lítið langt inn í fram­tíð­ina en hugsa ekki bara um ákvarð­anir og upp­bygg­ingu morg­un­dags­ins,“ segir Ásdís Hlökk og bendir á að þrátt fyrir að lag­ara­mmi skipu­lags­mála í dag skyldi sveit­ar­fé­lög til þess að gera skipu­lags­á­ætl­anir til 12 ára, sé alltaf nauð­syn­legt að horfa til enn lengri tíma.

Spurð hvort Íslend­ingar hafi verið heppnir, og fengið inn í stjórn­málin fólk sem einmitt horfi til lengri tíma, segir Ásdís Hlökk að svo sé að ein­hverju leyti.

„Maður sér það gjarnan með sveit­ar­stjórn­ar­fólk, að það kemur inn í sveit­ar­stjórn algjör­lega ókunn­ugt skipu­lags­málum en áttar sig fljótt á því á setu sinni þar hvað þetta er mik­ill grund­vallar mála­flokkur fyrir þróun við­kom­andi byggð­ar­lags og sam­fé­lags. En svo er mis­jafnt hvað fólk dvelur lengi á þeim vett­vangi, við sjáum allt spek­t­rú­mið, frá fólki sem staldrar stutt við og hefur litla inn­sýn og áhuga og yfir í fólk sem virki­lega hellir sér í þennan mála­flokk, kynnir sér hann vel og hefur gott fag­fólk sér til ráðu­neytis og skýra sýn,“ segir Ásdís Hlökk og nefnir að þróun und­an­far­inna ára á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, með svæð­is­skipu­lagi þess, sé gott dæmi um verk­efni þar sem lang­tíma­sýn hafi verið höfð að leið­ar­ljósi.

„Svæð­is­skipu­lag höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, sem er ramm­inn um alla upp­bygg­ingu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til fram­tíðar og var unnið á árunum 2013 til 2015, það horfir 25 ár fram í tím­ann og kannski í raun­inni lengra. Það er dæmi um skipu­lags­vinnu hér­lendis þar sem er unnið af fag­legum metn­aði og þekk­ingu og það mynd­ast skýr póli­tísk sýn um að hverju skuli stefnt og það liggja fyrir góðar og traustar grein­ingar til grund­vallar því að ákveða að taka þessa línu um þróun byggðar og sam­gangna og umhverf­is­mótun á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þannig að við eigum svona mjög far­sæl dæmi og við eigum líka síður far­sæl dæmi,“ segir Ásdís Hlökk.

Blaða­maður getur ekki stillt sig um að reyna að kalla fram þau dæmi sem Ásdís Hlökk telur síður far­sæl.

„Ég veit ekki hvort maður á að vera bein­línis að nefna þau. En auð­vitað eru aðstæður gríð­ar­lega ólíkar og Reykja­vík­ur­borg til dæmis er með burð­ugan skipu­lags­kontór, stórt emb­ætt­is­manna­batt­erí og fjöl­menna borg­ar­stjórn þar sem eru stjórn­mála­menn sem hafa það að atvinnu að sinna þessu verki, en svo erum við með örsveit­ar­fé­lög þar sem er nán­ast þegn­skylda og sjálf­boða­starf að sitja í sveit­ar­stjórn og mjög tak­mark­aður fag­legur stuðn­ingur og styrkur,“ segir Ásdís Hlökk.

Spurð hvort hætta sé á að mik­ill aðstöðu­munur, eða valda­ó­jafn­vægi, verði á milli fram­kvæmda­að­ila sem vilja ráð­ast í ein­hver til­tekin verk­efni og stjórn­valds­ins sem fer með skipu­lags­valdið, þá sér í lagi í minni sveit­ar­fé­lögum, segir Ásdís Hlökk að svo geti verið, en það snú­ist líka um skiln­ing sveit­ar­stjórn­ar­fólks á þeirra hlut­verki.

„Maður heyrir stundum á sveit­ar­stjórn­ar­fólki að það skil­greinir það ekki sem sitt hlut­verk að setja fram sýn­ina og leiða þróun við­kom­andi sam­fé­lags, heldur lítur meira á sig sem afgreiðslu­apparat fyrir upp­bygg­ing­ar­á­form við­kom­andi land­eig­enda eða upp­bygg­ing­ar­að­ila. Auðvitað geta land­eig­endur og þró­un­ar­að­ilar verið gríð­ar­lega mik­il­vægur drif­kraftur í þróun land­nýt­ingar og byggðar en, eðli máls­ins sam­kvæmt, eru þeir líka lík­legir til að setja fram hug­myndir út frá eigin hag frekar en almanna­hag. Þess vegna eru skipu­lags­kerfi eins og þau eru, það er falið lýð­ræð­is­lega kjörnum stjórn­völdum að leiða þessa þróun. Maður verður svo­lítið áskynja þessa skiln­ings í fámenn­ari sam­fé­lögum, sem er kannski ein­hvers­konar sjálfs­bjarg­ar­við­leitni,“ segir Ásdís Hlökk.

Enn eimi af gömlum venjum hjá stórum opinberum aðilum

Hún bætir því þó við að hið sama geti gilt um mun fjöl­menn­ari sam­fé­lög, bæði hér­lendis erlendis. „Þunga­vigt­ar­að­ilar geta haft óeðli­lega mikil áhrif á gang mála, í krafti fjár­magns, eign­ar­halds á landi, þekk­ingar, póli­tískra áhrifa eða ein­hverrar blöndu af þessu. Við sjáum ein­hverja birt­ing­ar­mynd þessa iðu­lega í skipu­lags­málum hér á landi og aðstöðu­mun­ur­inn getur verið meira slá­andi og áber­andi í fámenn­ari sam­fé­lögum en fjöl­menn­ari.“

„En það er líka vert að hafa í huga að hluti af þess­ari mynd snýst ekki bara um það sem við erum að horfa á venju­lega, þ.e. bygg­ing­ar­fé­lögin, þró­un­ar­fé­lögin, stór­iðj­una eða núna vind­orku­fyr­ir­tækin sem eru að koma inn á þetta svið, heldur eru þetta líka opin­beru aðil­arnir. Við erum með stóra öfl­uga opin­bera fram­kvæmda­að­ila, Vega­gerð­ina, Landsnet, Lands­virkjun, Isavia, og það getur líka verið mik­ill aðstöðu- og beinn eða óbeinn valda­munur á milli sveit­ar­fé­lags­ins sem er skipu­lags­yf­ir­valdið í hér­aði og þess­ara fram­kvæmda­að­ila og þá skiptir máli hvernig þeir fara fram,“ segir Ásdís Hlökk.

Eru þess ein­hver dæmi að þessir opin­beru aðilar hafi jafn­vel farið fram með ein­hverju offorsi gagn­vart sveit­ar­fé­lögum?

„Ef við skoðum sög­una þá tel ég að það hafi áreið­an­lega verið þannig. Þegar ég byrj­aði að starfa sem ungur sér­fræð­ingur hjá Skipu­lags­stofnun fyrir alda­mót, þá náði ég aðeins í skottið á „gamla tím­anum“. Á þeim tíma voru til dæmis ekki til neinar form­legar leyf­is­veit­ingar sveit­ar­fé­laga fyrir fram­kvæmdum á borð við vegi, raf­línur og virkj­anir. Þá voru þessir aðilar svo­lítið bara ríki í rík­inu og maður hafði á til­finn­ing­unni að þetta væru nán­ast eins og til­kynn­ingar um hvað stæði til að gera varð­andi stórar inn­viða­fram­kvæmdir, fremur en sam­ráð við nær­sam­fé­lagið og sveit­ar­fé­lögin, hvað þá umsóknir um leyfi,“ segir Ásdís Hlökk, en nefnir að þegar horft sé yfir síð­ustu ára­tugi hafi orðið menn­ing­ar­breyt­ing í skipu­lags­málum, yfir til sam­ráðs og sam­tals og að ná sátt og sam­komu­lagi um það sem áformað er að gera.

„Á þessum tíma hefur líka umhverf­is­matið komið til og rík­ari áhersla orðið á að láta mat á áhrifum á umhverfi og sam­fé­lag hafa áhrif á og ráða nið­ur­stöðu um útfærslu upp­bygg­ingar og inn­viða. Þessir stóru aðilar, ég held að það sé alveg hægt að segja það, án þess að á nokkurn sé hallað, að þeir hafi verið svo­lítið seinir til að til­einka sér þessi nýju vinnu­brögð.“

Eimir enn af gömlu menn­ing­unni?

„Það gerir það eitt­hvað,“ segir Ásdís Hlökk og segir það spila saman við hug­mynda­þróun í skipu­lags­málum um allan heim, „til meira sam­ráðs, meiri með­vit­undar um umhverf­is­á­hrif og meiri fag­mennsku í skipu­lags­gerð“ og að á sama tíma hafi líka orðið hug­mynda­fræði­legar breyt­ingar um það í hverju gæði byggðar fel­ast.

„Við erum á þessum sama tíma að sjá módern­is­mann með sína grodda­legu inn­viði og „masculine“ nálgun á skipu­lag byggðar víkja fyrir öðrum mann­eskju­legri og mýkri áherslum í skipu­lags­málum og þessar gömlu inn­viða­stofn­anir okkar hafa setið svo­lítið fast í þess­ari gömlu menn­ingu og hafa verið svo­lítið lengi að þroskast frá henni,“ segir Ásdís Hlökk og bætir við að ein­hverju leyti ger­ist það með kyn­slóða­skiptum og fjöl­breytt­ari hópi starfs­fólks innan stofn­ana og hjá ráð­gjafa­stofum.

Mismunur á gæðum byggðar endurspeglist takmarkað í verði

Gæði byggðar eru Ásdísi Hlökk ofar­lega í huga, enda má segja að það sé kjarn­inn í skipu­lags­mál­unum, að skapa góða umgjörð fyrir okkur mann­fólkið. Mikil upp­bygg­ing hús­næðis hefur átt sér stað á und­an­förnum árum, bæði á upp­bygg­ing­ar­svæðum í eldri hverfum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, sem og í jaðri höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og svo í nágranna­byggðum þess.

Ásdís Hlökk segir að þessi upp­bygg­ing­ar­svæði og nýju hverfi séu „mjög mis­jöfn að gæðum“ og að inn í það spili margar breytur, meðal ann­ars sýn við­kom­andi sveit­ar­stjórnar, metn­aður og styrkur þeirra fag­að­ila sem starfa fyrir við­kom­andi sveit­ar­fé­lag að skipu­lags­gerð og hönnun, hvernig aðkoma land­eig­enda og bygg­ing­ar­fé­laga sé að verk­efnum og fleira.

Spurð hvar hún telji að vel hafi tek­ist til og hvar síður segir Ásdís Hlökk að hún telji ekki skyn­sam­legt að alhæfa um það. „En gæðin eru, það er him­inn á haf á milli og ég held að við sjáum það ekki að end­ur­spegl­ast að öllu leyti í til dæmis verði. Það er verk að vinna í því að við sem borg­arar séum læs á gæði í hinu byggða umhverfi. Auðvitað hljómar kannski hroka­fullt að segja það, því við vitum hvert og eitt hvar okkur líður vel, en það er kannski ekki sjálf­gefið að við áttum okkur á því út frá teikn­ingum af nýju skipu­lagi eða ein­hverjum lýs­ingum á nýju hverfi, hvort það muni með tíð og tíma veita okkur gott umhverfi að búa í eða hvaða kröfur er rétt­mætt að gera til nýrrar byggðar. Það er kúnstin, þeir borg­arar sem setj­ast í sveit­ar­stjórnir og skipu­lags­nefndir, þeir þurfa að vera læsir á þessi gögn,“ segir Ásdís Hlökk.

Það er verk að vinna í því að við sem borg­arar séum læs á gæði í hinu byggða umhverfi

„Það er alltaf auð­veld­ara að til­greina dæmi sem maður telur til fyr­ir­myndar en maður vill kannski síður gefa dóma um meinta tossa. En þar sem við sjáum unnið af miklum metn­aði með nútíma­legar áherslur og þver­fag­leg teymi og þar sem fléttað er saman áherslu á nátt­úru­far, byggð, sam­fé­lag, fag­ur­fræði og svo fram­vegis, þar sjáum við bestu útkom­una verða til,“ segir Ásdís Hlökk og nefnir Nýja-Skerja­fjörð­inn í Vatns­mýr­inni sem dæmi um svæði þar sem hún telur gæði byggðar verða mikil – „burt séð frá spurn­ingum um Reykja­vík­ur­flug­völl og rekstr­ar­hæfi hans“.

„Það er skipu­lags­verk­efni sem er mjög fram­sækið, gerir ráð fyrir þéttri byggð en er um leið hóf­stillt í hæðum húsa og massa og með áhuga­verðar lausnir, blöndu af ólíku hús­næði og búsetu­formum, skýrri áherslu á fjöl­breytta ferða­máta og ekki með þessa bíla­stæða­kjall­ara-nálgun sem við höfum setið svo­lítið uppi með í seinni tíð, heldur sam­eig­in­leg bíla­stæða­hús sem mun veita miklu meiri mögu­leika á samnýt­ingu á stæðum og betri nýt­ingu. Það er mikil áhersla á bæj­ar­rýmin og gæði þeirra, efn­is­notkun og gróður. Þetta er hóg­vært skipu­lags­verk­efni sem ég er mjög spennt að sjá verða að veru­leika,“ segir Ásdís Hlökk.

Ásdís Hlökk segir að Nýi-Skerjafjörður sé „mjög framsækið“ skipulagsverkefni. Mynd: Teikning af vef Reykjavíkurborgar
Ásdís Hlökk segir að Nýi-Skerja­fjörður sé „mjög fram­sækið“ skipu­lags­verk­efni. Mynd: Teikning af vef Reykja­vík­ur­borgar

Hún nefnir svo annað verk­efni, Urriða­holtið í Garðabæ, með þeim fyr­ir­vara að þar hafi hún „tauga­enda“ sjálf eftir að hafa unnið að ramma­skipu­lagi og fyrstu deiliskipu­lags­á­föngum hverf­is­ins á árunum 2005-2007.

„Þar er dæmi um jákvæð áhrif land­eig­enda. Þarna er land í einka­eigu þar sem land­eig­end­urnir sýndu frum­kvæði og voru til­búnir að leggja í mikla fjár­fest­ingu til þess að vanda til verka í fram­sæknu skipu­lagi svæð­is­ins. Það breytir því ekki að svæðið er stað­sett á jaðri byggðar og hefur ákveðnar tak­mark­anir þess vegna, en engu að síður var þarna mjög vandað til verka og settur saman feyki­lega hæfur hópur ráð­gjafa og hönn­uða sem komu víða að, erlendis frá líka. Það er eitt­hvað sem skiptir máli hér hjá okkur, í okkar fámenna sam­fé­lagi og með svona sér­hæfða þekk­ingu sem skipu­lags­gerðin er, að við þurfum að gæta þess að sækja okkur þekk­ingu og reynslu ann­ars staðar að og vera ekki alltaf í jafn­ingja­fræðsl­unni hvert með öðru. Það var bryddað upp á mörgum nýj­ungum í Urriða­holts­skipu­lag­inu sem ég held að megi segja að hafi leitt umræðu og þróun á ákveðnum útfærslum á götum og bæj­ar­rýmum og auð­vitað sjálf­bærum ofan­vatns­lausnum og fleiru sem hefur síðan seitlað inn í brans­ann og praxís­inn í öðrum hverfum,“ segir Ásdís Hlökk.

„Svo er auð­vitað margt sem manni finnst fólki hafa verið veru­lega mis­lagðar hendur með,“ segir Ásdís Hlökk, en neitar sem fyrr að nefna dæmi um það. Blaða­maður spyr þá hvort sú áhersla á hraða upp­bygg­ingu hús­næðis, sem stundum er ráð­andi í umræð­unni um hús­næð­is­þörf land­ans, geti komið niður á gæðum byggðar.

„Já, það er þetta með hrað­ann, hann má ekki koma niður á gæð­unum. Nú geri ég mér vel grein fyrir því að það er fólk sem er í hús­næð­is­þörf – en þetta er gjarnan alltof ein­hliða og þröng umræða og þörf fyrir hrað­ann og magnið á stundum spiluð upp,“ segir Ásdís Hlökk.

Talar fyrir sameiningu Skipulagsstofnunar og Byggðastofnunar

Eftir að hafa leitt Skipu­lags­stofnun sem for­stjóri í níu ár þekkir Ásdís Hlökk inn­viði skipu­lags­kerf­is­ins á Íslandi eflaust betur en flestir. Við breyt­ingar í Stjórn­ar­ráð­inu við myndun rík­is­stjórnar í lok árs 2021 færð­ist stofn­unin undir hatt nýs inn­við­a­ráðu­neytis, eftir að hafa áður heyrt undir umhverf­is­ráðu­neytið frá stofnun þess. Ásdís Hlökk segir skipu­lags­málin vera þess eðlis að það sé sama hvar þau séu stað­sett innan Stjórn­ar­ráðs­ins, þau muni alltaf þurfa að tengj­ast inn á mál­efni sem heyra undir önnur ráðu­neyti, og það gildi jafnt nú sem áður. Nú þarf að mynda teng­ingar til umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráðu­neytis um lofts­lags­mál, orku og lands­lag svo dæmi sé tekið. Og sama mætti segja um mat­væla­ráðu­neytið varð­andi land­búnað, skóg­rækt og fisk­eldi.

Hug­myndir hafa stundum verið í umræð­unni um sam­ein­ingu Skipu­lags­stofn­unar og ann­arra stofn­ana og segir Ásdís Hlökk að Skipu­lags­stofnun, sem til­tölu­lega fámenn stofnun, sé sjálf­gefið undir í þeirri almennu umræðu um sam­ein­ingu stofn­ana. Stofn­unin þyrfti í reynd að vera tölu­vert stærri til þess að sinna þeim verk­efnum sem henni er ætlað, en hjá Skipu­lags­stofnun starfa um þrjá­tíu manns.

„Það var auð­vitað tekin þessi ákvörðun við myndun nýrrar rík­is­stjórnar að færa mála­flokk skipu­lags­mála yfir til nýs inn­við­a­ráðu­neytis og á sama tíma komu hús­næðis- og mann­virkja­mál frá félags­mála­ráðu­neyt­inu og eru þarna ásamt sam­göngu­málum, sveit­ar­stjórn­ar­málum og byggða­málum. Það eitt og sér felur ekki í sér breyt­ingar á stofn­un­unum, en það hefur vaknað ákveðin umræða og vanga­veltur um það hvort sam­eina eigi Skipu­lags­stofnun öðrum stofn­unum undir nýju inn­við­a­ráðu­neyti eða hvort að hún fær­ist inn í eða nær ráðu­neyt­inu, en ég veit ekki til þess að það sé ein­hver form­leg áform um slíkt eða nið­ur­staða í því önnur en að stofn­unin bara standi eins og hún stendur, alla­vega að svo stöddu,“ segir Ásdís Hlökk og vísar til dæmis til vanga­veltna sem verið hafi á kreiki um sam­ein­ingu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar og Skipu­lags­stofn­unar.

„Ég sjálf hef oft nefnt að það mætti skoða sam­ein­ingu Skipu­lags­stofn­unar og Byggða­stofn­unar, þar eru mörg skyld verk­efni og snertifletir. Sam­ein­ingar stofn­ana verða að leiða til þess að þær verði fag­lega sterk­ari, það má ekki bara snú­ast um að það sé praktískara að hafa einn bók­hald­ara fyrir fleiri starfs­menn, heldur að það sé raun­veru­leg fag­leg sam­legð í verk­efnum þeirra stofn­ana sem leggj­ast saman,“ segir Ásdís Hlökk.

Hún seg­ist hafa „trölla­trú“ á því að skýr stefna í skipu­lags­málum og sýn stjórn­valda bæði á lands­vísu og í hér­aði skipti mjög miklu máli fyrir far­sæla þróun við­kom­andi sam­fé­lags og telur enn van­nýtt tæki­færi til þess að nýta skipu­lags­tólið betur við áætl­ana­gerð hins opin­bera.

„Það er ekki fyrr en með setn­ingu nýrra skipu­lags­laga árið 2010 sem stjórn­völd á lands­vísu fengu tæki­færi til að setja form­lega fram sína stefnu í skipu­lags­málum. Fram að því vorum við bara með skipu­lag fyrir ein­staka bæi og sveit­ar­fé­lög. En með skipu­lags­lög­unum 2010 kom lands­skipu­lags­stefna inn sem vett­vangur fyrir stjórn­völd á lands­vísu að setja fram sína skipu­lags­póli­tík og sýn. Það er í reynd stutt síðan, þannig að það er kannski ekki þess að vænta að við höfum náð þeim þroska sem mörg nágranna­lönd okkar hafa varð­andi fram­göngu stjórn­valda á lands­vísu í skipu­lags­málum og að stjórn­mála­menn skynji skipu­lags­tækið og þennan vett­vang, hvað hann er mik­ill lyk­il­vett­vangur til að sam­þætta stefnu um svo margt – far­sæla byggða­þróun, sam­göngur, gott akur­yrkju­land, verndun vot­lendis, skóg­rækt, verndun víð­erna, ferða­þjón­ustu og svo fram­vegis og fram­vegis. Í skipu­lags­stefnu er hægt að tengja allt sem varðar byggða­þróun og nýt­ingu lands saman á einum vett­vangi. Ár frá ári eykst skiln­ingur á því hjá stjórn­mála­mönnum og innan stjórn­kerf­is­ins en við erum komin skemmra á veg en ég hefði viljað hvað varðar stjórn­kerfið á lands­vísu. Víða á sveit­ar­stjórn­ar­stig­inu er þessi skiln­ingur búinn að festa sig betur í sessi og það má sjá það víða hjá stærri sveit­ar­fé­lög­unum, bæði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og til dæmis Akureyri og eflaust fleirum, að það er orðin hefð, skiln­ingur og menn­ing fyrir því að líta á skipu­lags­málin sem svo­lítið lyk­il­verk­færi til að halda utan um þróun við­kom­andi sam­fé­lags, land­nýt­ingar og byggða­þróun,“ segir Ásdís Hlökk.

Vindorkan áskorun fyrir stjórnkerfi skipulags- og orkumála

Víða um land hafa fram­kvæmda­að­ilar nú uppi áform um upp­bygg­ingu vind­orku­vera, svo mjög að stundum er jafn­vel talað um „vind­myllu­kapp­hlaup“ í þeim efnum. Þessi staða, segir Ásdís Hlökk, „dregur fram ýmsa þekkta veik­leika í stjórn­kerfi skipu­lags­mála og stjórn­sýslu og ekki síður stjórn­kerfi orku­mála og sam­spili orku- og skipu­lags­mála“.

„Fyrir það fyrsta, hvað varðar orku­málin, þá er alla­vega í mínum huga mjög mikil þörf á að sett sé fram skýr­ari og útfærð­ari stefna í orku­málum. Við eigum nátt­úr­lega þá orku­stefnu sem var sett fram fyrir nokkrum árum, en hún talar frekar almennum orðum og það sem við eigum eftir að fá rætt í meiri þaula og útfært og ná sam­eig­in­legum skiln­ingi um er hvað ætlum við og þurfum við að fram­leiða mikla orku í þessu landi til næstu ára­tuga, til hvaða nota á þessi orka að fara og hvernig tryggjum við að hún fari þangað. Þetta eru spurn­ingar sem í mínum huga verða að fást skýr­ari svör við af hálfu lög­gjafans og stjórn­valda og verður að fara fram opn­ara sam­tal um, meira en bara að ein­hverjir hópar setj­ist niður og búi til módel um hvað sá hópur telur æski­legt að fram­leiða mikla orku í land­inu,“ segir Ásdís Hlökk.

Hvað skipu­lags­málin varðar þurfi svo að setja fram stefnu um hvað eigi að ráða varð­andi stað­setn­ingu ein­stakra vind­orku­vera. „Vind­orkan er þannig að hana þarf að stað­setja þar sem er vindur, og það vill svo til að það er víð­ast hvar á Íslandi, svo það er tak­mörkuð krítería, en engu að síður auð­vitað atriði sem þarf að ganga út frá. Stað­setn­ing ein­stakra vind­orku­vera þarf einnig að ráð­ast af því hvar er hægt að koma þessum stóru íhlutum á vett­vang, það þarf að vera höfn og góðir vegir og það þarf að vera hægt að koma orkunni frá sér inn á flutn­ings­kerfið, svo það eru ákveðnar tækni­legar breytur sem þarf að taka til­lit til. En stóru, stóru skipu­lags­málin sem er snúnast að takast á við, það eru áhrifin á ásýnd lands, á búsetu­lands­lag og karakter og stað­ar­sér­kenni og ímynd svæða. Nánd­ar­á­hrif á nágranna og svo áhrif á nátt­úru­far og þá ekki síst á fugla­líf, og auð­vitað áhrif á aðrar atvinnu­greinar, eins og ferða­þjón­ust­una, sem er auð­vitað mjög stór atvinnu­grein sem byggir á nátt­úru lands­ins,“ segir Ásdís Hlökk og bætir við að fyrir liggi í könn­unum meðal erlendra ferða­manna að þeir komi til Íslands fyrst og fremst til að upp­lifa og njóta íslenskrar nátt­úru. Víð­sýn­is­ins, lands­lags­ins.

„Auðvitað fela þessi stóru hreyf­an­legu mann­virki í sér mikla breyt­ingu þar sem þau verða vel sýni­leg. Það er áskorun að velja réttu verk­efnin, réttu stað­ina,“ segir Ásdís Hlökk, sem segir í því til­liti að það fylgi því bæði kostir og gallar að vind­orku­verk­efnin fari í gegnum ramma­á­ætlun.

„Ramma­á­ætlun er sann­ar­lega ekki galla­laust verk­færi og löngu tíma­bært að end­ur­skoða verk­lag og umgjörð þar, en það er þó mikil lukka að vind­orkan er þó í þessu ramma­á­ætl­un­ar­ferli enn sem komið er, því þar fer fram ákveðin sam­ræmd grein­ing á einum stað. En gall­inn er meðal ann­ars að ramma­á­ætl­un­ar­verk­lagið skoðar hvern virkj­un­ar­kost fyrir sig, okkur skortir heild­stæða stefnu­mótun og skoðun á sam­legð­ar­á­hrifum af því að virkja vind­inn víða,“ segir Ásdís Hlökk.

„Það er ákveð­inn vandi á höndum við að ákveða hvernig haga skal ákvarð­ana­töku um vind­ork­una til fram­tíðar. Það hefur verið skoðað að fara sömu leið og gert er sum­staðar í nágranna­löndum okkar, að þessar ákvarð­anir séu bara teknar af sveit­ar­fé­lög­unum, eins og aðrar skipu­lags­á­kvarð­anir almennt, en þá verðum við að hafa það í huga að þar sem það er gert þá eru alltaf inn­grips­heim­ildir og mögu­leiki rík­is­ins til að taka yfir slíkar ákvarð­anir. Slík inn­gripsúr­ræði höfum við ekki í íslenskum skipu­lags­lögum. Ég hef nú gjarnan verið tals­kona þess að við eigum ekki að finna upp hjólið heldur kynna okkur hvað er gert ann­ars­staðar og taka mið af því við þróun á okkar skipu­lags­lög­gjöf, en við verðum þó að vera var­kár við að taka ekki ein­stök ákvæði sam­heng­is­laust úr lög­gjöf og praxís ann­ars­staðar og stinga inn í okkar kerfi og vera mjög var­kár ef valið verður að fara þá leið að færa þessar ákvarð­anir meira eða alfarið til sveit­ar­fé­laga, þá verða að fylgja því ein­hverjar breyt­ingar í þá veru að rík­is­valdið geti tekið þær ákvarð­anir yfir og haft eitt­hvað um þær að segja,“ segir Ásdís Hlökk.

Þau sjón­ar­mið hafa svo verið viðruð að best væri að nýta þau land­svæði sem þegar eru röskuð vegna orku­vinnslu undir vind­orku­ver.

„Ég held að við þurfum að gæta okkar á slíkum alhæf­ingum, því sú orku­vinnsla sem er fyrir felur í sér allt ann­ars konar land­nýt­ingu, ann­ars konar mann­virki og allt önnur áhrif á lands­lag. Það er vissu­lega ákveðin ein­földun en það er svo­lítið eins og að halda því fram að það sé ákjós­an­legt að nýta svæði þar sem lengi hefur verið lágreist byggð til að byggja háhýsa­hverfi. Það á bara ekki alls staðar við.

Ég hef til dæmis efa­semdir um að það sé æski­leg­ast að byggja vind­orku­ver við hálend­is­brún­ina þó að þar séu fyrir vatns­afls­virkj­un­ar­svæði sem eru vissu­lega röskuð og þar sem er til­tölu­lega hand­hægt að tengj­ast flutn­ings­kerf­inu, þá erum við þarna á brún­inni á þessum miklu víð­ernum og vin sem hálendið er. Þessi mál eru heil­mikil áskorun fyrir okkar stjórn­kerfi, ekki síst í því til­liti að sveit­ar­stjórnir eru margar og með tak­mark­aða burði til að kljást við stóra aðila sem fara mik­inn og bjóða jafn­vel gull og græna skóga,“ segir Ásdís Hlökk.

Hún segir líka víti að var­ast í þessum efnum. Það er ábyrgð­ar­hluti að fara fram með stór fram­kvæmda­á­form inn í lítil sam­fé­lög og sveit­ar­fé­lög.

„Það geta orðið svo hat­rammar deilur um upp­bygg­ingu að það grær seint eða aldrei um heilt. Við höfum séð alltof mörg dæmi um þetta; vega­fram­kvæmdir, virkj­ana­fram­kvæmdir og fleira. Það er ábyrgð­ar­hluti að fara inn í lítil sam­fé­lög með stór upp­bygg­ing­ar­á­form og skiptir máli hvernig að því er staðið og hvernig mál eru borin upp og sam­skipti eru við nær­sam­fé­lagið, sveit­ar­stjórn og svo fram­vegis,“ segir Ásdís Hlökk.

Einnig eigum við nú þegar stand­andi vitn­is­burð um að í okkar skipu­lags­fram­kvæmd höfum við ekki sam­tengt ákvarð­anir sem eru háðar hver annarri nægi­lega vel.

„Við eigum hálf­byggt álver úti í Helguvík sem engar virkj­anir voru fyrir og engar raf­línur lágu að og svo er það þessi sorg­ar­saga sem er kís­il­verið í Helguvík, og fullá­formað kís­il­ver við hlið þess sem ekki hafa haf­ist fram­kvæmdir við. Við verðum að draga lær­dóm af þessum verk­efnum, þar sem farið hefur verið fram af svo miklu kappi í ákveðna upp­bygg­ingu og að hefja fram­kvæmdir þótt að það liggi fyrir að for­sendur upp­bygg­ing­ar­innar séu ekki til staðar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár