Ríkisskattstjóri fylgjandi rannsóknarnefnd um aflandsfélög

Bryndís Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókn­ar­stjóri segir að ef Alþingi vilji fá upp heild­stæða mynd af notkun aflands­fé­laga um og eftir hrun sé skipan rann­sókn­ar­nefndar vel til þess fallin. Aðgerðir skatt­yf­ir­valda muni aldrei upp­lýsa umfangið að fullu.

Ef Alþingi vill fá upp heild­stæða mynd af notkun aflands­fé­laga um og eftir hrun, og þýð­ingu þess fyrir íslenskt sam­fé­lag í stærra sam­hengi er skipun rann­sókn­ar­nefndar um málið vel til þess fallin.

Þetta segir Bryndís Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókn­ar­stjóri í umsögn um þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þing­manna Vinstri grænna, sem leggja til að skipuð verði rann­sókn­ar­nefnd á aflands­fé­lögum Íslend­inga og skatt­und­anskotum. Bryndís segir að aðgerðir skatt­yf­ir­valda muni aldrei geta upp­lýst að fullu um umfang notk­unar aflands­fé­laga né gefið nema tak­mark­aða mynd af til­gangi stofn­unar og notk­unar þeirra.

„Samkvæmt eðli máls eru verk­efni skatt­yf­ir­valda tengd aflands­fé­lögum fyrst og fremst í því fólgin að leita leiða til að ná utan um skatt­und­an­skot sem kunna að hafa átt sér stað í gegnum slík félög með það að mark­miði að ná und­an­dregnum tekjum í rík­is­sjóð og eftir atvikum að hlut­ast til um við­eig­andi refsi­með­ferð vegna ætl­aðra brota,“ segir Bryndís einnig.

Starfshópur fjármálaráðherra búinn að funda þrisvar

Í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sinni leggja þing­menn­irnir einnig til að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra stofni sér­stakan rann­sókn­ar­hóp sem fari yfir og meti skatt­und­an­skot og aðra ólög­mæta starf­semi. Bryndís bendir einnig á það í umsögn sinni að Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra hafi skipað starfs­hóp um mótun aðgerð­ar­á­ætl­unar gegn skattsvikum og skatta­skjólum. Hann muni vænt­an­lega gera að meg­in­stefnu það sama og rann­sókn­ar­hópnum væri ætlað að gera. Starfs­hópnum er „ætlað að móta til­lögur að breyt­ingum á lögum, reglu­gerðum eða verk­lags­reglum sem mynda munu einn áfanga að aðgerð­ar­á­ætlun íslenskra stjórn­valda gegn skattsvikum og nýt­ingu skatta­skjóla almennt.“

Þegar Bryndís skrif­aði umsögn skatt­rann­sókn­ar­stjóra hafði hóp­ur­inn aldrei komið saman. „Því er nán­ari útfærsla á verk­efnum hans ekki fylli­lega ljós á þessu stigi.“ Það geti hins vegar einnig verið að starfs­hóp­ur­inn myndi skar­ast á við verk­efni sem rann­sókn­ar­nefnd ætti að fjalla um. Hópurinn hefur nú komið saman í þrí­gang, að sögn Elvu Bjarkar Sverr­is­dóttur, upp­lýs­inga­full­trúa fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Frétt­inni hefur verið breytt. Upp­haf­lega stóð að starfs­hópur fjár­mála­ráð­herra hefði aldrei komið saman, líkt og stóð í umsögn Bryn­dísar. Frá því að hún skil­aði umsögn sinni hefur hóp­ur­inn hins vegar fundað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár