Talin hafa breytt launaseðlum til að ná hærri greiðslum úr ríkissjóði vegna hlutabótaleiðar

Rík­is­end­ur­skoðun telur að leiða megi líkum að því að ákveð­inn hópur sem nýtti sér hluta­bóta­leið­ina hafi breytt áður upp­gefnum launum til hækk­unar svo þeir myndu fá hærri greiðslur úr rík­is­sjóði. Hækkunin í heild nemur 114 millj­ónum króna.

Skúli Eggert Þórðarson er ríkisendurskoðandi.
Skúli Eggert Þórð­ar­son er rík­is­end­ur­skoð­andi. Mynd: Skjáskot/RÚV

Alls 160 launa­greið­endur ósk­uðu eftir því að fá að breyta áður til­greindum launa­greiðslum til hækk­unar áður en þeir sóttu um að setja starfs­menn á hluta­bóta­leið­ina. Af þeim ósk­uðu 99 eftir breyt­ingum á launa­greiðslur fyrir jan­úar og febr­úar 2020. [links]

Eftir breyt­ing­arnar hækk­uðu upp­gefin laun hóps­ins um alls 114 millj­ónir króna frá því sem áður var. Samhliða hækk­uðu greiðslur vegna hluta­bóta­leið­ar­innar til hans um sam­bæri­lega tölu, enda verið að greiða umræddum hópi hlut­fall af hærri launum en hann hafði áður sagst vera með. Í flestum til­fellum var um aðila sem starfa við eigin atvinnu­rekstur að ræða, og gátu því breytt launa­seðlum sínum án þess að bera það undir nokkurn annan.

Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um hluta­bóta­leið­ina segir að leiða megi líkum „að því að meiri­hluti umræddra breyt­inga byggi á hæpnum grunni og til­gang­ur­inn sé að ná hærri greiðslum úr rík­is­sjóði. Rík­is­end­ur­skoðun telur að svo miklar breyt­ingar veki upp spurn­ingar um ástæður umræddra breyt­inga og að kanna þurfi rétt­mæti þeirra.“

Skýrslan er unnin að frum­kvæði Rík­is­end­ur­skoð­unar. Á meðan að hún var í vinnslu fengu félags- og barna­mála­ráðu­neytið og Vinnu­mála­stofnun vit­neskju um að hún væri í bígerð, og tæki­færi til að gera athuga­semdir við nið­ur­stöður hennar.

Ýmis konar grunur um misnotkun

Í henni er sér­stak­lega fjallað um ábend­ingar um mis­notkun á leið­inni og ásókn fyr­ir­tækja með sterkan efna­hag í hana. Mikið hefur verið fjallað um síð­ar­nefnda atriðið í fjöl­miðlum enda varð fljótt ljóst að fyr­ir­tæki eða fyr­ir­tækja­sam­stæður sem áttu ekki í bráðum vanda við að mæta skuld­bind­ingum sínum um launa­greiðslur og höfðu jafn­vel ekki orðið fyrir sam­drætti vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru voru að nýta sér úrræðið. Hluti þeirra fyr­ir­tækja hafa greint frá því að þau ætli að end­ur­greiða þá fjár­muni sem þau sóttu í rík­is­sjóð í gegnum hluta­bóta­leið­ina.

[adspot]Í skýrsl­unni segir að einnig hafi komið í ljós dæmi þess að vinnu­veit­endur slitu ráðn­ing­ar­sam­bandi við starfs­menn eftir að starfs­hlut­fall var minnkað og töldu að þeir myndu njóta greiðslna úr Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóði sam­kvæmt hluta­starfa­leið. Þann 15. apríl til­kynnti Vinnu­mála­stofnun að það væri grund­vall­ar­skil­yrði fyrir greiðslu að ráðn­ing­ar­sam­band launa­manns og vinnu­veit­anda væri í gildi, þ.e. hluta­starfa­leiðin væri ekki í boði á upp­sagn­ar­fresti starfs­manna. Í til­kynn­ingu frá Samtökum atvinnu­lífs­ins, sem send var út í kjöl­farið, var bent á að við­kom­andi laga­á­kvæði væri óljóst og hefðu þau túlkað það fyr­ir­tækjum í hag. Samtökin beindu því til aðild­ar­fyr­ir­tækja sinna eftir þetta að haga upp­sögnum og samn­ingum um hluta­störf í sam­ræmi við túlkun Vinnu­mála­stofn­unar.

Látnir skila meira vinnuframlagi

Vinnu­mála­stofnun hefur einnig fengið ábend­ingar um að úrræðið sé mis­notað eftir öðrum leiðum. Í skýrsl­unni eru nefnd dæmi um ábend­ingar þar sem talið er að launa­menn séu látnir skila meira vinnu­fram­lagi en lækkað starfs­hlut­fall segir til um og að starfs­hlut­fall ein­stak­linga hafi verið lækkað aft­ur­virkt án þess að sú hafi verið raunin.

Svo hafa, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Vinnu­mála­stofnun, komið upp til­felli sem gefa til­efni til að hugað verði sér­stak­lega að umsóknum ein­stak­linga sem starfa hjá eigin fyr­ir­tækjum. „Við­kom­andi sækja um greiðslur líkt og aðrir launa­menn en skila einnig gögnum og stað­festa sam­komu­lag sem vinnu­veit­endur. Dæmi er um að laun eftir minnkað starfs­hlut­fall end­ur­spegli ekki launa­greiðslur áður en starfs­hlut­fall minnk­aði.“

Þetta hafði þau áhrif að greiðslur úr rík­is­sjóði til við­kom­andi hækk­uðu umtals­vert, enda eru hluta­bæt­urnar reikn­aðar út miðað við með­al­tal heild­ar­launa síð­ustu þriggja mán­aða áður en launa­maður missti starf sitt að hluta. Í ljósi þessa afl­aði Rík­is­end­ur­skoðun upp­lýs­inga frá emb­ætti Rík­is­skatt­stjóra um hversu margir launa­greið­endur hafi óskað eftir að hækka áður til­kynnt laun og reiknað end­ur­gjald. Þar kom fram að þeir væri 160 og að heild­ar­breyt­ing á launum þeirra í jan­úar og febr­úar næmi 114 millj­ónum króna. Rík­is­end­ur­skoðun telur, líkt og áður sagði, að leiða megi líkur að því að „meiri­hluti umræddra breyt­inga byggi á hæpnum grunni og til­gang­ur­inn sé að ná hærri greiðslum úr rík­is­sjóði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár