Forsætisráðherra: Þingmenn hafa „málfrelsi“ og það ber að virða

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur stutt lækkun kosn­inga­ald­urs og hefur barist fyrir því máli á Alþingi í gegnum tíð­ina. Hún segir málið ekki hafa verið í stjórn­ar­sátt­mál­anum, þar sem ein­ing náð­ist ekki um það.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, segir það ekki hafa komið á óvart, að skiptar skoð­anir hafi verið um það meðal þing­manna að lækka kosn­inga­aldur í 16 ár. Nú er útlit fyrir að málið nái ekki fram að ganga, en sjálf hefur hún flutt mál sem þetta í þing­inu og barist fyrir lækkun kosn­inga­ald­urs og auk­inni stjórn­mála­þátt­töku ungs fólks. „Hér ríkir mál­frelsi meðal þing­manna. Þetta mál er ekki hluti af stjórn­ar­sátt­mála - meðal ann­ars vegna þess að það voru um það deildar mein­ingar innan stjórn­ar­flokk­anna - heldur var þetta þing­manna­mál, en því er ekki að leyna, að ég hef verið fylgj­andi lækkun kosn­inga­ald­urs almennt,“ segir Katrín. Hún segir það vera jákvætt að sjá stuðn­ing mynd­ast við mál, þvert á flokkslínur og meiri- og minni­hluta, og það sé gott fyrir stjórn­mála­starfið í land­inu.

Eins og greint var frá í frétta­skýr­ingu á vef Kjarnans í dag, þá er útlit fyrir að frum­varp um lækkun kosn­inga­ald­urs í 16 ár nái ekki fram að ganga fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar í vor, en fyrir liggur að um 9 þús­und ung­menni bæt­ast í hóp kjós­enda nái málið fram að ganga.

Andrés Ingi Jóns­son, þing­maður Vinstri grænna og fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins, segir í við­tali við Kjarnann að eins og mæl­enda­skráin líti út í þing­inu sé útlit fyrir að umræðan um málið verði lengri en tími sé til að klára í dag. „Það þýðir að við náum ekki að klára málið fyrir páska­hlé og þá er orðið hæpið að við náum að lækka kosn­inga­aldur fyrir kosn­ing­arnar í vor.“

Á Alþingi hefur í dag staðið yfir mál­þóf þing­manna úr Sjálf­stæð­is­flokki, Mið­flokki og Flokki fólks­ins til að tefja fyrir atkvæða­greiðslu um frum­varpið. Öruggur meiri­hluti er fyrir mál­inu á þingi, sam­kvæmt við­mæl­endum Kjarn­ans.

Mál­þóf þeirra gerir það hins vegar að verkum að ekki næst að greiða atkvæði um það. Það þýðir því að vilji minni­hluta þing­manna nær fram að ganga, að minnsta kosti í bili, og 16 og 17 ára Íslend­ingar fá ekki að kjósa í sveita­stjórn­ar­kosn­ing­unum í lok maí líkt og stefnt var að.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár