Kemur Lars Løkke heim?

Allar líkur eru á því að rík­is­stjórn­ar­myndun í Danmörku eftir kosn­ingar dags­ins verði flókin. Margt virð­ist velta á því hvernig Lars Løkke Rasmus­sen kýs að spila úr væntum kosn­inga­sigri hans nýja afls, sem stendur utan blokka­stjórn­mál­anna.

Kosið er til þings í Danmörku í dag. Hér er Lars Løkke Rasmussen formaður Moderaterne á kjörstað í morgun.
Kosið er til þings í Danmörku í dag. Hér er Lars Løkke Rasmus­sen for­maður Modera­terne á kjör­stað í morgun. Mynd: EPA

Óhætt er að segja að tví­sýn staða og mikil spenna sé nú í dönskum stjórn­málum, en kosið er til þings í land­inu í dag. Síðustu sjón­varp­s­kapp­ræður leið­toga flokk­anna fjórtán sem bjóða fram á lands­vísu fóru fram á sunnu­dags­kvöld.

Þar reyndu bæði Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra og leið­togi Sós­í­alde­mókra­ta­flokks­ins og Jakob Ellemann-Jensen for­maður Venstre að byggja brýr til Lars Løkke Rasmus­sen sem mest þau gátu, en nýr flokkur Lars Løkke, Modera­terne, stendur utan þeirra tveggja blokka sem ýmist halla sér til vinstri eða hægri, þeirrar rauðu og þeirra bláu.

[adspot]

Líklegt þykir að eftir kosn­ingar muni Lars Løkke, sem er fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Venstre, verða í odda­stöðu við rík­is­stjórn­ar­myndun, en flokkur hans mælist með 8-10 pró­senta fylgi og hátt á annan tug þing­manna í nýj­ustu könn­unum á sama tíma. Þetta tals­verða fylgi við Modera­terne þýðir að hvorki rauða blokkin né sú bláa er lík­leg til að enda með meiri­hluta þing­sæta.

Eins og Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra sagði er hún boð­aði til kosn­inga í upp­hafi októ­ber er hún þeirrar skoð­unar að aðstæður dags­ins í dag kalli á breiða rík­is­stjórn yfir miðj­una, út fyrir blokkapóli­tík­ina. Jafnvel þótt rauða blokkin næði þing­meiri­hluta verður það ekki hennar fyrsta val að mynda minni­hluta­stjórn með stuðn­ingi ann­arra flokka á vinstri kant­inum.

Síðast var mynduð rík­is­stjórn með flokkum úr báðum blokkum árið 1993, en því sam­starfi var slitið eftir kosn­ing­arnar árið 1994. Áður höfðu verið gerðar til­raunir til breiðs sam­starf yfir miðj­una á átt­unda ára­tugnum og gekk það mis­jafn­lega.

Lars Løkke hefur til þessa ekki viljað gefa neitt út um það hvern hann vilji helst sjá sem næsta for­sæt­is­ráð­herra og ýmsum stjórn­mála­skýrendum þykir lík­legt að hann muni reyna að mála sjálfan sig inn í það hlut­verk gef­ist tæki­færi til. Það hvernig Lars Løkke spilar úr nið­ur­stöðum kosn­ing­anna mun senni­lega hafa úrslita­á­hrif á það hvernig rík­is­stjórn verður í Danmörku næstu árin.

Lágflug á Venstre

Ellemann-Jensen virð­ist nú eina raun­hæfa for­sæt­is­ráð­herra­efni bláu blokk­ar­innar, eftir fylg­is­hrun Íhalds­flokks Sören Pape Poulsen það sem af er í kosn­inga­bar­átt­unni, en ýmis vand­ræða­mál hristu af for­mann­inum fylgið í þessum stutta kosn­inga­slag.

Þrátt fyrir að hann gæti endað sem for­sæt­is­ráð­herra í kjöl­far kosn­inga sér Ellemann-Jensen þó fram á að vera að fara að leiða Venstre til verstu kosn­inga­út­komu flokks­ins í heil 32 ár, eða síðan árið 1990 er flokk­ur­inn hlaut 11,8 pró­sent atkvæða, undir stjórn föður hans, Uffe Ellemann-Jensen. Flokk­ur­inn hefur verið að mæl­ast með um og yfir 13 pró­sent atkvæða í könn­unum.[links]

Fylg­is­hrun Venstre stafar af því að flokk­ur­inn hefur tvístr­ast með stjórn­mála­fólki sem hefur yfir­gefið flokk­inn. Ekki ein­ungis hafa fylg­is­menn Venstre fylkt sér að baki nýjum flokki Lars Løkke, heldur hefur annar fyrr­ver­andi ráð­herra flokks­ins, Inger Støjberg, einnig sópað ein­hverju fylgi til sinnar nýju hreyf­ingar, Dan­merk­ur­demókratanna, sem mæld­ist með 8,6 pró­sent í nýj­ustu könnun Epinion.

Fáir vilja þó í rík­is­stjórn með Støjberg, og Lars Løkke hefur sagt að hann telji að Støjberg eigi aldrei að verða ráð­herra aftur, en í des­em­ber í fyrra var hún sak­felld fyrir í lands­dómi fyrir að hafa brotið af sér í ráð­herra­emb­ætti.

Komdu heim, Lars Løkke

Í kapp­ræð­unum á sunnu­dags­kvöld gerðu bæði Frederik­sen og Ellemann-Jensen hosur sínar grænar fyrir Lars Løkke. Í yfir­ferð stjórn­mála­skýranda DR, Jens Ringberg, segir að Mette Frederik­sen hafi til dæmis opnað á að gera umtals­verðar breyt­ingar á stjórn­sýslu heil­brigð­is­mála í land­inu, en Lars Løkke hefur boðað að hans flokkur vilji gera stórar breyt­ingar þar á.

Hún tal­aði þó ekki jafn beint til Lars Løkke og Ellemann-Jensen, sem sagði hrein­lega fyrr­ver­andi for­manni flokks­ins sem hann nú leiðir að „koma heim“. Á Ellemann-Jensen var að heyra að í sam­starfi við Venstre gæti Lars Løkke komið þeim breyt­ingum sem hann boðar, hlut­unum sem þeirra „fyrr­ver­andi sam­eig­in­lega bak­land“ þráir, en síður í sam­starfi við Sós­í­alde­mókrata.

Ellemann-Jensen hefur sjálfur tekið fyrir það að vinna með Sós­í­alde­mókrötum í rík­is­stjórn, og það hefur Søren Pape Poulsen for­maður Íhalds­flokks­ins einnig gert. Draumur þeirra beggja er um stjórn borg­ara­legra afla, en Pape Poulsen hefur þó við­ur­kennt að mögu­leik­inn á slíkri stjórn fari mjög eftir því hversu fast Lars Løkke heldur í kröfu sína um að mynduð verði breið rík­is­stjórn yfir miðj­una.

Draumarík­is­stjórn Lars Løkke Rasmus­sen væri stjórn yfir miðj­una með þátt­töku Sós­í­alde­mókrata, Venstre, Íhalds­flokks­ins og hans eigin Modera­terne. Hvort slíkt stjórn­ar­sam­starf komi til álita virð­ist þó ekki lík­legt í dag, vegna and­stöðu borg­ara­legu afl­anna við sam­vinnu við Sós­í­alde­mókrata.

[adspot]

Lars Løkke hefur sagt að hann vilji að jafn­að­ar­menn sitji við rík­is­stjórn­ar­borðið, en segir þó ekki sjálf­gefið að þeir sem stærsti flokk­ur­inn í breiðri stjórn fái emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra. Hann hefur þó einnig sagt að það væri auð­veld­ara að styðja stjórn undir for­sæti Sós­í­alde­mókrata ef leið­togi flokks­ins væri ein­hver annar en Mette Frederik­sen, en Modera­terne gerir ský­lausa kröfu um það að ný rík­is­stjórn fái óháð lög­fræði­á­lit á þætti for­sæt­is­ráð­herr­ans í minka­mál­inu.

Einhver muni þurfa að gefa sig

Ljóst þykir að það gæti orðið ærið verk að koma saman stjórn í Danmörku, ef nið­ur­stöður kosn­ing­anna verða með þeim hætti sem nýj­ustu skoð­ana­kann­anir benda til. Rikke Gjøl Mansø stjórn­mála­skýr­andi hjá DR segir að ef allir ætli að standa fast á sínum hug­myndum um rík­is­stjórn­ar­sam­starf verði með öllu ómögu­legt að mynda stjórn, ef úrslit kosn­inga nálgist skoð­ana­kann­anir.

„Það mun ein­hver þurfa að gefa sig. Spurn­ingin er, hver?“ skrifar hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár