Slær í bakseglin

Eftir tvær vikur ganga Danir til kosn­inga. Íhalds­flokknum hafði verið spáð góðu gengi en á allra síð­ustu dögum hefur slegið í bak­seglin. Vin­sældir for­manns­ins Søren Pape Poulsen hafa dvínað mjög, af ýmsum ástæðum.

Óveðursskýin hafa hrannast upp í kringum Søren Pape Poulsen.
Óveð­urs­skýin hafa hrann­ast upp í kringum Søren Pape Poulsen. Mynd: EPA

Það eru ekki alltaf jólin er stundum haft á orði þegar eitt­hvað gengur ekki sem best. Hjá danska Íhalds­flokknum, Det Konservative Fol­ke­parti; hefur sann­ar­lega verið langt á milli jól­anna, ef svo mætti segja.

Í þing­kosn­ing­unum 1984 fékk Íhalds­flokk­ur­inn 42 þing­menn, fleiri en nokkru sinni fyrr og síðar. Þá var Poul Schlüter leið­togi flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra. Hann hafði sest í for­sæt­is­ráð­herra­stól­inn tveimur árum fyrr, þegar stjórn Anker Jørg­en­sen sagði af sér, án þess að boðað væri til kosn­inga. Poul Schlüter var for­sæt­is­ráð­herra til árs­ins 1993 en þá neydd­ist stjórn hans til að segja af sér vegna Tamíla­máls­ins svo­kall­aða, sem ekki verður nánar sagt frá hér. Stjórn sós­í­alde­mókrata og fleiri flokka, undir for­ystu Poul Nyrup Rasmus­sen tók við, án þess að kosið væri, og stjórn undir hans for­ystu var við völd til árs­ins 2001. Í kosn­ingum það ár tók stjórn Venstre undir for­ystu Anders Fogh Rasmus­sen við völdum og stjórn Venstre flokks­ins sat fram til árs­ins 2011, síð­ustu tvö árin undir for­ystu Lars Løkke Rasmus­sen. Íhalds­flokk­ur­inn átti aðild að rík­is­stjórnum Venstre á þessum árum.

Átta formenn frá 1993

Eftir afsögn Poul Schlüter 1993 tók við mikið óró­leika­tíma­bil í for­ystu Íhalds­flokks­ins. Frá 1993 hafa sam­tals átta manns setið á for­manns­stóli flokks­ins. Lengsta setu á for­manns­stólnum á þessu tíma­bili átti Bendt Bendtsen sem gegndi for­mennsku frá 1999- 2008. Ýmsar ástæður hafa legið að baki þessum tíðu for­manns­skiptum sem komu niður á dvín­andi fylgi flokks­ins.

Kannanir í aðdrag­anda þing­kosn­ing­anna 2015 bentu til að tví­sýnt væri að flokk­ur­inn næði full­trúum á þing. Nið­ur­staðan var að flokk­ur­inn fékk 6 þing­menn og 3.4.% fylgi, hið minnsta í sögu flokks­ins.

Søren Pape Poulsen

Í ágúst árið 2014 til­kynnti Lars Barfoed afsögn sína sem for­maður Íhalds­flokks­ins. Hann hafði verið for­maður frá 2011. Þegar Lars Barfoed sagði af sér tók við núver­andi for­maður, Søren Pape Poulsen. Fyrst tíma­bundið en á flokks­þingi haustið 2014 var hann kjör­inn for­maður. Þá sat hann ekki á þingi. Í þing­kosn­ing­unum 2015 fékk Íhalds­flokk­ur­inn ein­ungis 6 þing­menn kjörna, þar á meðal for­mann­inn Søren Pape Poulsen. Útkoman sú lakasta frá stofnun flokks­ins, sem var stofn­aður árið 1918. Eftir kosn­ing­arnar 2015 urðu stjórn­ar­skipti og Lars Løkke Rasmus­sen varð for­sæt­is­ráð­herra í stað Helle Thorning- Schmidt. Ári síðar, í kjöl­far breyt­inga, varð Íhalds­flokk­ur­inn aðili að stjórn­inni og Søren Pape Poulsen varð dóms­mála­ráð­herra og gegndi því emb­ætti fram að kosn­ingum 2019 en þá féll stjórnin. Íhalds­flokknum vegn­aði vel í þessum kosn­ingum 2019 og fékk 12 þing­menn kjörna. Útkoman var einkum þökkuð for­mann­inum sem þótti almennt hafa staðið sig vel í dóms­mála­ráðu­neyt­inu.

Blokkirnar tvær og forsætisráðherrastóllinn

Í Danmörku fara þing­kosn­ingar að jafn­aði fram á fjög­urra ára fresti og miðað við það hefðu kosn­ingar átt að fara fram á fyrri hluta næsta árs.

En einn stuðn­ings­flokka rík­is­stjórnar Mette Frederik­sen krafð­ist þess fyrr á þessu ári að for­sæt­is­ráð­herr­ann myndi til­kynna um boðun kosn­inga áður en þing kæmi saman 4. októ­ber síð­ast­lið­inn. Ella yrði borin fram van­traust­s­til­laga í þing­inu. Og kosn­ingar fara fram 1. nóv­em­ber, eftir tvær vikur.

Á danska þing­inu, Fol­ket­inget, eru tvær blokkir, eins og það er kallað. Önnur er rauð, hana mynda flokkar sem kenna sig við jafn­aðar- og vinstri mennsku, hin er blá, þar eru miðju- og hægri flokkar.

Hefð er fyrir því að í hvorri blokk fyrir sig sé einn for­sæt­is­ráð­herrak­andi­dat, leið­togi stærsta flokks­ins. Rauða blokkin bendir á Mette Frederik­sen. Í bláu blokk­inni hefur það lengi verið leið­togi Venstre, sem hinir flokk­arnir í blokk­inni hafa bent á, enda stærstur. En eftir að skoð­ana­kann­anir höfðu sýnt sífellt vax­andi fylgi Íhalds­flokks­ins, sem í skoð­ana­könn­unum var kom­inn fram úr Venstre, lýsti Søren Pape Poulsen því yfir um miðjan ágúst að hann sækt­ist eftir því að verða for­sæt­is­ráð­herra. Jakob Ellemann- Jensen for­maður Venstre hafði líka lýst yfir áhuga sínum.

Svo sló í bakseglin

Stundum er sagt að vika sé langur tími í stjórn­málum, merk­ingin auð­skilin. Þetta á sann­ar­lega við um Søren Pape Poulsen, þar hafa óveð­urs­skýin hrann­ast upp ef svo má að orði kom­ast. Og stuðn­ingur við hann, og Íhalds­flokk­inn snar­minnkað.

Í des­em­ber 2021 gekk Søren Pape Poulsen í hjóna­band. Eig­in­mað­ur­inn var Josue Medina Vasquez. Þeir höfðu þekkst síðan 2013 og trú­lof­uð­ust árið 2015.

[adspot]Danir hafa mik­inn áhuga á „þekkta fólk­inu“ fjöl­skyld­unni á Amal­íu­borg, leik­urum, íþrótta­mönnum, stjórn­mála­mönnum og fleirum sem áber­andi eru í þjóð­líf­inu. Eftir að vin­sælda­stjarna Søren Pape Poulsen tók að rísa beind­ist athyglin sömu­leiðis að mak­anum. Og þá kom sitt­hvað í ljós sem kom ýmsum á óvart.

Snemma árs 2018 var Josue tek­inn ölv­aður undir stýri í Viborg á Jótlandi. Hann var þá á leið­inni heim af skyndi­bita­stað. Kærast­inn Søren Pape Poulsen var þá dóms­mála­ráð­herra. Hann sagði að kærast­inn Josue yrði að taka ábyrgð á lífi sínu og axla ábyrgð. Nokkru síðar réðst slóvaskur maður á Josue fyrir utan skemmti­stað, Josue hélt því fram að árásin hefði tengst kyn­þátta­for­dómum. Ákæru­valdið tók ekki undir það en Slóvak­inn fékk mán­aðar fang­els­is­dóm.

Í ágúst á þessu ári birti Ekstra Bladet frétt sem vakti mikla athygli. Í umfjöllun blaðs­ins kom fram að Josue væri ekki af gyð­inga­ættum og væri ekki skyldur for­seta Dóminíska lýð­veld­is­ins eins og Josue hafði haldið fram og Søren Pape Poulsen sömu­leiðis stað­hæft í við­tölum við fjöl­miðla. Einnig hafði komið fram í fjöl­miðlum að Søren Pape Poulsen hafði hitt ráð­herra í Dóminíska lýð­veld­inu, án þess að danska utan­rík­is­ráðu­neyt­inu væri kunn­ugt um, en slíkt sam­ræm­ist ekki vinnu­reglum. Tveir aðrir danskir ráð­herrar voru á fund­unum, sem haldnir voru að frum­kvæði Søren Pape Poulsen.

Skilnaður

Þann 1. sept­em­ber sl, í kjöl­far mik­illar umfjöll­unar um einka­mál Søren Pape Poulsen og Josue Medina Vasquez, greindi sá fyrr­nefndi frá skiln­aði þeirra. Hann hefur ekki viljað tala mikið um skiln­að­inn en sagði að það hefði verið óum­flýj­an­legt að þeir færu hvor sína leið.

Umtalið um skiln­að­inn, fund­inn með ráð­herrum í Dóminíska lýð­veld­inu og ósann­indi um ættir og upp­runa eig­in­manns­ins fyrr­ver­andi tók sinn toll. Í skoð­ana­könnun sem gerð var í kjöl­far frétt­anna um skiln­að­inn hafði fylgi Søren Pape Poulsen sem hugs­an­legs for­sæt­is­ráð­herra dalað veru­lega.

En vand­ræð­a­list­inn var ekki tæmdur.

Líkti Grænlandi við Afríku

Eitt mál enn, og kannski það alvar­leg­asta, dúkk­aði upp fyrir nokkrum dögum. Danskir fjöl­miðlar greindu þá frá því að í febr­úar í fyrra hefði Søren Pape Poulsen verið á sam­komu í banda­ríska sendi­ráð­inu í Kaup­manna­höfn. Þar hefði hann lýst Græn­landi sem Afríku á ís (Afrika på is). Søren Pape Poulsen hefur hvorki viljað játa né neita að hafa kom­ist svona að orði en í umræðu­þætti í sjón­varp­inu bað hann Grænd­lend­inga afsök­unar á að hann hefði „sagt noget fir­kan­tet“ eins og hann orð­aði það.

Í við­tali við dag­blaðið Berl­ingske fyrir nokkrum dögum sagð­ist Søren Pape Poulsen ekki muna nákvæm­lega orða­lagið sem hann hefði notað. Hann sagði í þessu við­tali að Grænland væri á sumum sviðum þró­un­ar­land og nefndi í því sam­bandi kyn­ferð­is­of­beldi, drykkju­skap og heim­il­is­of­beldi ásamt hárri sjálfs­vígs­tíðni. „Við verðum að tala um hlut­ina eins og þeir eru“ sagði Søren Pape Poulsen í við­tal­inu.

Fréttir af þessum ummælum hafa vakið hörð við­brögð. Græn­lend­ingar eru æfir af reiði og meðal ann­ars hefur Mute B. Egede, for­maður græn­lensku lands­stjórn­ar­innar, sagt að hann sjái ekki fyrir sér sam­vinnu við mann sem hafi þessi við­horf.

Nokkrir danskir þing­menn hafa hvatt Søren Pape Poulsen til að biðja Græn­lend­inga opin­ber­lega afsök­unar á ummælum sínum sem hafi „væg­ast sagt verið óheppi­leg“ eins og Lars Løkke Rasmus­sen komst að orði í blaða­við­tali.

Danir af afrískum upp­runa hafa sömu­leiðis gagn­rýnt ummæli Søren Pape Poulsen. Danski ljós­mynd­ar­inn Jørn Stjerneklar sem hefur búið í Afríku um 30 ára skeið segir að maður sem vill verða for­sæt­is­ráð­herra geti ekki leyft sér slík ummæli um íbúa heillar heims­álfu. „Með þessum ummælum setur Søren Pape Poulsen 1,3 millj­arða fólks undir einn hatt“.

Skoð­ana­könnun sem birt var sl. föstu­dag, 14. okt. sýnir umtals­vert fylgis­tap íhalds­flokks­ins frá könnun sem gerð var fyrir mán­uði.

Eins og áður var getið fara þing­kosn­ingar í Danmörku fram 1. nóv­em­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár