Sigmundur: „Óæskilegt og raunar afleitt“ að hækka stjórnarlaun nú

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra segir að hækkun á stjórn­ar­launum HB Granda, og fleiri fyr­ir­tækjum, sé óæski­leg og raunar afleit á allan hátt. Þetta sagði hann í svari við óund­ir­bú­inni fyr­ir­spurn frá Katrínu Jak­obs­dóttur, for­manns Vinstri grænna, á Alþingi nú í morgun.

Deil­urnar á vinnu­mark­aði voru mörgum hug­leiknar í þing­inu í morgun. Katrín Jak­obs­dóttir sagð­ist hafa gríð­ar­legar áhyggjur af stöðu mála á vinnu­mark­aði. Hún nefndi mikla hækkun á launum stjórn­ar­manna í HB Granda sem dæmi, á sama tíma og starfs­fólk hafi verið verð­launað með íspinna. Þetta sagði Katrín vera „eins og úr skáld­sögu eftir Halldór Laxnes. Hvert erum við komin ef þetta er umgjörð kjara­bar­átt­unnar?“ Hún spurði Sigmund Davíð um það á hvaða aðgerðum væri von af hálfu stjórn­valda sem inn­legg í kjara­deil­urnar.

Sig­mundur Davíð sagð­ist geta tekið undir allt sem Katrín hefði sagt og hann deildi áhyggjum hennar af stöð­unni sem uppi er. Hann sagði þó að það væru sókn­ar­færi í stöð­unni, og hún væri uppi vegna þess að „loks­ins“ þætti fólki eitt­hvað vera til skipt­anna. Hann sagði rík­is­stjórn­ina til­búna til að legga ýmis­legt á sig til að greiða fyrir málum, þótt ekki væri vilji til að „fóðra verð­bólgu­samn­inga.“ Hann sagði að stjórn­völd þyrftu hins vegar að sjá til lands í kjara­við­ræð­unum áður en hægt væri að grípa til aðgerða.

Framsóknarflokkurinn ætti að tryggja okkur kjöt


Guð­mundur Stein­gríms­son, þing­maður Bjartrar fram­tíðar, gerði kjara­deilur og ástandið á vinnu­mark­aði einnig að umfjöll­un­ar­efni. Verkföll væru hafin og fleiri yfir­vof­andi, og Guð­mundur tók yfir­vof­andi kjöt­skort vegna verk­falla sér­stak­lega sem dæmi. „Ef Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er nú til ein­hvers, þá ætti hann nú alla­vega að tryggja okkur kjöt.“

Hann sagði stjórn­endur stórra fyr­ir­tækja senda stríðs­hanska út í sam­fé­lagið með hækk­unum á stjórn­ar­launum og að á vinnu­mark­aði ríki stríðs­á­stand. „Það er mikil reiði í sam­fé­lag­inu og það ríkir tor­tryggni. Mér finnst það að minsta kosti að hluta til vera áfell­is­dómur yfir rík­is­stjórn­inni.“ Guð­mundur ræddi um þjóð­ar­sátt­ina og spurði Sigmund Davíð að því hvort þjóð­ar­sátt­ar­hugs­unin væri ekki dauð. Það tók Sig­mundur Davíð ekki undir og sagði slíka hugsun sér­stak­lega mik­il­væga núna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár