Eva Rún hefur lagt mikið upp úr því að upphefja eldri konur í þessu jólabókaflóði.
Eva Rún hefur lagt mikið upp úr því að upp­hefja eldri konur í þessu jóla­bóka­flóði. Mynd: Golli

Segir frá ástarfíkn

Eva Rún Snorra­dóttir er ekki viss um að hún hefði þorað að skrifa bók sína fyrir tíu árum. Í skáldsögu sem er svo vel skrifuð að ýmsir ætla hana sjálfs­ævisögu­lega fangar hún flóknar tilfinningar á meitlaðan hátt og lýsir upp konu sem er ástar­fíkill – með tengslarof. Hún þráir um leið og hún getur ekki.

„Mér finnst svo ótrúlega spennandi að skoða fíkn, rýna í hana,“ segir Eva Rún. „Við erum öll alltaf að spyrja okkur: Hvað gerist þegar manneskja fer frá litlum börnum til þess að fara á ógeðs­legan bar og láta einhvern vökva ofan í sig? En þetta gerist. Og við erum vonandi aðeins að fara frá dómnum og átta okkur á því að þetta er ekki ákvörðun,“ heldur hún áfram ögn brosmild og spyr síðan: „Hvað er ákvörðun?“ 

 Þegar hvorug okkar svarar því segir hún: „Við erum svo marg­slungin og þetta er ýkt dæmi. En atferlið er samt reglulegt stef í fíkn. En mér finnst spennandi að skoða birtingar­myndir fíknar í alls konar myndum, stórum jafnt sem smáum.“ 

Aðal­persóna bókarinnar er haldin ástarfíkn sem birtist í þráhyggju gagnvart eldri konum. Hún er fíkin í eitruð tengsl við eldri konur. Er það …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár