Ofurkonan enn sterk fyrirmynd 76 árum síðar

Wonder Woman var sköpuð til að vera fyr­ir­mynd ungra stúlkna af fólki sem brann fyrir femín­isma á fyrri hluta 20. aldar. Nú er komin út kvik­mynd um ofur­hetj­una sem markar ákveðin skil og gefur fögur fyr­ir­heit um fleiri myndir um og eftir konur.

Wonder Woman - Gil Gadot í hlutverki Ofurkonunnar
Wonder Woman - Gil Gadot í hlut­verki Ofur­kon­unnar Mynd: IMDB

Í heimi teikni­mynda­sögu­hetja má finna ara­grúa sögu­per­sóna með ólíkan bak­grunn, útlit og eig­in­leika. Flestar þessar per­sónur eru karlar en þó er ein kona sem hefur verið til nán­ast frá upp­hafi list­grein­ar­innar. Wonder Woman eða Ofur­konan hefur verið að lúskra á ill­mennum frá því í seinni heim­styrj­öld­inni og í milli­tíð­inni hefur hún gengið í gegnum súrt og sætt. Með til­komu kvik­mynd­ar­innar, sem frum­sýnd var í júní síð­ast­liðnum, hefur blað verið brotið en þetta er í fyrsta sinn sem kven­leik­stjóri leik­stýrir mynd af þess­ari stærð­argráðu. Myndin hefur fengið ljóm­andi dóma þrátt fyrir að vera einnig umdeild. Melkorka Huldu­dóttir mynd­list­ar­kona og kvik­myndanörd spjall­aði við Kjarnann um gildi þess að fá slíka kvik­mynd inn í algyð­is­hof ofur­hetju­mynda og yfir höfuð fyrir ungar stúlkur og konur að horfa á slíka mynd.

Gyðja sem berst við hið illa

Sagan af Ofur­kon­unni telst gömul í heimi mynda­sagna en hún kom fyrst fram á sjón­ar­sviðið í októ­ber árið 1941. Sögur hennar hafa nán­ast verið gefnar út stans­laust síðan þá fyrir utan pásu árið 1986. Hún kom fyrst fram í All Star Comics #8 og hefur alla tíð verið gefin út af útgáf­unni DC Comics. Upp­runa­saga Ofur­kon­unnar er byggð á grískri goða­fræði. Hún mun hafa verið mótuð úr leir af móður sinni, drottn­ingu Hippólýtu og Afródíta gefið henni líf. Guðirnir gáfu henni síðan ofur­mann­lega krafta. Í nýrri útgáfum, sem not­ast er m.a. við í nýju kvik­mynd­inni, er hún orðin dóttir Seifs, æðsta guðs­ins. Hún ólst upp hjá móður sinni og frænkum sínum á Para­dísareyju amazone-kvenn­anna sem er eins­konar brú milli mann­heima og guða­heima. Samfélag þetta er ein­ungis sam­an­sett af konum og fékk hún stífa þjálfun í bar­daga­list í upp­eldi sínu. Hún var síðan send til mann­heima til að berj­ast við hið illa sem steðjar að mann­fólk­inu. Þegar þangað var komið tók hún upp nafnið Diana Prince. Hún er búin sér­stökum skot­heldum arm­böndum og ber gull­snöru sem hún notar til að þvinga sann­leik­ann upp úr glæpa­mönn­unum.

Mynda­sög­urnar um Ofur­kon­una eru sér­stakar af aug­ljósum ástæðum, þær fjalla um sterka konu sem einnig er í aðal­hlut­verki en slíkt er heldur óvenju­legt í teikni­mynda­sögu­heim­inum. Hún er á aldur við Súper­mann og Leð­ur­blöku­mann­inn sem báðir hafa notið gríð­ar­legra vin­sælda. Margar kvik­myndir og þættir hafa verið gerðir um ævin­týri þeirra en minna um Ofur­kon­una. Þó voru fram­leiddir þættir með Lyndu Carter í aðal­hlut­verki á árunum 1975 til 1979 og nutu þeir tölu­verðra vin­sælda.

Litríkur höfundur

William Moulton Marston er upp­runa­legur höf­undur Ofur­kon­unnar en hann var sál­fræð­ingur, upp­finn­inga­maður og rit­höf­undur. Hann fædd­ist í Massachusetts í Banda­ríkj­unum árið 1893 og var því 48 ára gam­all þegar saga Ofur­kon­unnar kom fyrst út. Hann skrif­aði teikni­mynda­sög­urnar alla tíð undir dul­nefn­inu Charles Moulton. Ofur­konan er sögð vera sýn Marstons á konur sem gáf­aðar, hrein­skilnar og umhyggju­samar. Hann útskrif­að­ist frá Harvard árið 1921 en eftir það kenndi hann í háskólum og skrif­aði bækur. Hann starf­aði einnig sem almanna­teng­ill hjá Uni­ver­sal kvik­mynda­ver­inu í eitt ár. Marston fann upp, ásamt eig­in­konu sinni Elizabeth Holloway, blóð­þrýst­ings­tæki sem varð síðan fyr­ir­renn­ari lyga­mæl­is­ins.

Marston var kvæntur fyrr­nefndri Elizabeth Holloway en bjó einnig með annarri konu, Olive Byrne. Í raun bjuggu þau öll þrjú saman og brutu þannig við­teknar venjur sam­fé­lags­ins á þessum tíma. Saman áttu þau fjögur börn og ólu þau börnin upp í sam­ein­ingu. Hann var einnig orð­aður við B&D eða Bondage and discipline sem gengur út á að binda félaga sinn, oft­ast í kyn­lífi, og ná valdi yfir honum og öfugt. Vís­bend­ingar um þetta komu fram í sög­unum um Ofur­kon­una en gjarnan batt hún óvini sína eða þeir hana. Eftir dauða Marston árið 1947 héldu þær Byrne og Holloway áfram að búa saman og ala upp börnin og alla tíð á eftir.

En þrátt fyrir að vera titl­aður skap­ari Ofur­kon­unnar og ævin­týra hennar er það þó ekki alveg svo ein­falt. Fyr­ir­myndir hennar voru konan hans og sam­býl­is­kona, þær Halloway og Byrne. Þær eru einnig sagðar hafa skapað hana með honum til að gefa ungum stúlkum sterka fyr­ir­mynd til að líta upp til. Í raun var fram­lagi kvenn­anna þó ekki hampað fyrr en ára­tugum síðar en til að mynda var Holloway kölluð mamma Ofur­kon­unnar í grein í The New York Times frá árinu 1992, ári áður en hún dó.

Framundan er að vænta kvik­mynd um Marston. Hún nefn­ist Pro­fessor Marston & the Wonder Women en myndin verður frum­sýnd í Banda­ríkj­unum í októ­ber seinna á árinu. Hér fyrir neðan má sjá sýn­is­horn af mynd­inni:

Hefði ung viljað sjá svona kvikmynd

Til hefur staðið að gera kvik­mynd um Ofur­kon­una í mörg ár og fjöldi leikkvenna verið orð­aður við hlut­verk Díönu prinsessu. Svo ekki verður annað sagt en að beðið hafi verið eftir kvik­mynd­inni með tölu­verðri eft­ir­vænt­ingu. Myndin hafði verið í fram­leiðslu í nokkur ár áður en hún var frum­sýnd út um allan heim fyrr á árinu. Melkorka Huldu­dóttir, mynd­list­ar­kona og umsjón­ar­maður hlað­varps­ins Popp og fólk á Alvarpi Nútímans, fór í sumar á Wonder Woman með við­mæl­anda sínum. „Mér fannst myndin æði og er fyrsta korterið af mynd­inni algjör­lega þess virði fyrir alla að sjá. Af því að þetta er í fyrsta sinn sem ég, sem er búin að sjá vand­ræða­lega mikið af kvik­myndum, sé svona mikið af öfl­ugum konum í lík­am­legum bar­daga­at­riðum,“ segir hún. Þær séu svo ótrú­lega kröft­ugar og ólíkar en í hlut­verkin voru valdar ýmsar íþrótta­konur og ólymp­íu­meist­arar.

Melkorka seg­ist hafa verið ofur­liði borin fyrsta korterið yfir því að sjá þessi atriði. Áður hafi hún bara séð karl­menn í svona hlut­verkum en í fyrsta skipið væri hér um konur að ræða. „Mér finnst þetta mjög mik­il­vægt því ég á tvær litlar dætur og ég er brjál­æð­is­lega glöð að fá Wonder Woman til að sýna þeim. Ég hefði viljað sjá svona mynd þegar ég var lítil,“ segir hún. Ung seg­ist hún hafi lesið mynda­sögur og að Wonder Woman hafi læðst með öllu sem hún las. „Ég hafði strax áhuga á kvik­mynd­inni um leið og hún kom út, því ég er meiri kvik­myndanörd en mynda­sögunörd. En ég hef nátt­úru­lega alltaf þekkt Wonder Woman og vitað af þátt­unum með Lyndu Carter en mér finnst þeir mjög skemmti­legir,“ segir hún.

Fegin að vel heppnaðist til

Patty Jenkins leik­stýrir mynd­inni og hefur áður gert sjón­varps­myndir og þætti. Hún er lík­leg­ast fræg­ust fyrir að skrifa og leik­stýra kvik­mynd­inni Monster frá árinu 2003 með Charlize Theron í aðal­hlut­verki. „Mér finnst mjög mik­il­vægt að það var kona sem leik­stýrði Wonder Woman,“ segir Melkorka. Henni finnst í raun óskilj­an­legt að ekki hafi verið gerð kvik­mynd fyrr um ofur­hetj­una, miðað við að búið sé að gera kvik­myndir um ýmiss konar karl­hetjur.

Melkorka seg­ist hafa verið ánægð með hversu vel heppnuð kvik­myndin er því pressan hafi verið mikil. Konur séu oft full­trúar allra ann­arra kvenna og vænt­ing­arnar því meiri. En hún segir að henni hafi verið létt þegar hún sá hversu góð myndin var því þá væri von á fleiri myndum.

Mikið hefur breyst á síð­ustu ára­tugum og segir Melkorka að ekki hafi verið sama lit­róf kvik­mynda og er í dag. Stelpur hafi þannig fleiri fyr­ir­myndir en áður og von­ast hún til að þessi þróun haldi áfram. „Mér fannst þetta mjög mik­il­væg mynd,“ segir hún og hvetur fólk til að sýna stelp­unum sínum Wonder Woman og ekki síður strák­unum.

Kvikmyndin bönnuð víðsvegar í Mið-Austurlöndum

Kvik­myndin er þrátt fyrir vel­gengni ekki óum­deild. Þegar myndin fór í fram­leiðslu og alveg þangað til hún kom út voru háværar raddir sem mót­mæltu vali á leikkon­unni í aðal­hlut­verkið, henni Gal Gadot. Leik­konan sú er fædd og upp­alin í Ísrael og vann tit­il­inn ung­frú Ísrael árið 2004. Hún hefur unnið sem fyr­ir­sæta og leikið í nokkrum myndum áður en hún tók við hlut­verki Ofur­kon­unnar. Hún var í ísra­elska hernum í tvö ár en þar í landi er her­skylda sem öllum ber að sinna.

Vegna þessa var kvik­myndin bönnuð í löndum á borð við Líbanon, Túnis og Katar. Myndin var tekin af kvik­mynda­há­tíð í Alsír til stuðn­ings við Palest­ínu­menn og var hún tíma­bundið bönnuð í Jórdaníu.

Meg­in­á­stæðan fyrir því að margir eru óánægðir með leikkon­una ísra­elsku, fyrir utan veru hennar í hernum, má rekja til færslu hennar á Facebook í júlí 2014. Þar segir hún:

„Ég sendi ást­ar­kveðjur og bænir mínar til ísra­el­skra sam­landa minna. Sér­stak­lega til allra strák­anna og stelpn­anna sem fórna lífi sínu til að vernda land mitt gegn hroða­verkum Hamas, sem fela sig eins og gungur bak við konur og börn... Við munum sigra! Shabbat Shalom!“

Á mynd­inni með færsl­unni sjást hún og dóttir hennar biðja fyrir framan kerta­ljós. Átök höfðu harðnað á þessum tíma milli ísra­el­skra stjórn­valda og íbúa Gaza og fór þessi afger­andi stuðn­ingur Gadot fyrir brjóstið á mörgum.

En þrátt fyrir umdeilda leikkonu þá eru margir ánægðir með fram­lagið og geta beðið með eft­ir­vænt­ingu eftir Wonder Woman 2 en til stendur að fram­hald af sögu Ofur­kon­unnar komi út árið 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár