Gagnrýnir Morgunblaðið fyrir að hampa pistli um ofbeldi og kvenfyrirlitningu

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir segir að mögu­lega hafi gleymst „að spyrja ömm­ur okk­ar hvernig þær upp­lifðu þá tíma þegar strák­un­um fannst eðli­legt að skvetta í sig brenni­víni og reyna allt til að kom­ast í sleik.“

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir er þingmaður Sjálfstæðisflokksins og ritari hans.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir er þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og rit­ari hans. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, rit­ari og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gagn­rýnir Morg­un­blaðið í aðsendri grein í blað­inu í dag, sem ber fyr­ir­sögn­ina „Að troða sér í sleik“, fyrir efni Stak­steina þess í gær.

[links]Þar var end­ur­birtur pist­ill eftir Halldór Jónsson, verk­fræð­ing og áhrifa­mann innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins til ára­tuga, sem hann birti á Mogga­bloggi sínu og kallar „Dömufrí“. Áslaug Arna segir í grein sinni að sér þyki „verra að sjá að þessum orðum var hampað á síðum Morg­un­blaðs­ins.“ Hún segir enn fremur að stærsti árangur #metoo-bylt­ing­ar­innar hafi verið sú að þeir sem til­eink­uðu sér ekki virð­ingu í sam­skipt­um myndu að lok­um dæma sjálfa sig úr leik. „Það er óþarfi fyr­ir Morg­un­blaðið að skipta þeim aft­ur inn á,“ segir Áslaug Arna.

„Trukka“ og komast í sleik

Í umræddum pistli fjall­aði Halldór um ásak­anir sem settar hafa verið fram gagn­vart Brett Kavanagh, sem Donald Trump hefur til­nefnd sem næsta hæsta­rétt­ar­dóm­ara Banda­ríkj­anna, en Kavanagh hefur verið ásak­aður um að hafa beitt konu kyn­ferð­is­legu ofbeldi snemma á níunda ára­tugnum. Halldór líkir ásök­unum hans við það þegar hann reyndi sjálfur reyndi að ving­ast við stúlkur á dansæf­ingum í Mennta­skól­anum í Reykja­vík á sínum tíma. Í pistl­inum segir orð­rétt: „Þegar ég hugsa til baka hvernig maður hegð­aði sér á dansæf­ingum í MR. Búinn að tendra sig upp á brenni­víni og Camelsmóki bauð maður stelp­unum upp og reyndi allt til að vanga þær og trukka og helst að kom­ast í sleik,“ segir Hall­dór í pistli sínum og bætir við. „Þessi hegðun myndi koma í veg fyrir að ég yrði sam­þykktur í emb­ætti ef Trump myndi vilja hygla mér eins og Kawanough eða hvernig það er staf­að. Sá kall hegð­aði sér eitt­hvað svona á mennta­skóla­böllum fyrir einum þrjá­tíu árum. Nú ætla demókrat­arnir að nota það til að hindra að þessi dóni kom­ist í Hæsta­rétt Banda­ríkj­anna.“

[adspot]Áslaug Arna segir í grein sinni að öðru hvoru rek­ist hún á fólk sem hafi svo gam­al­dags við­horf til sam­skipta kynj­anna að hún trúi varla að því sé alvara. „Sum­ir reyna að rétt­læta ým­iss kon­ar ósæmi­lega hegðun og rudda­skap með þeim rök­um að þetta hafi nú ekki þótt mikið mál hérna einu sinni. Því miður snú­ast slík­ar rétt­læt­ing­ar oft­ast um forn­eskju­legt við­horf til kvenna.

Í fyrra­dag las ég stutt­an pist­il þar sem slík við­horf voru höfð í flimt­ing­um. Mér þótti verra að sjá að þess­um orðum var hampað á síðum Morg­un­blaðs­ins. Höf­und­ur pist­ils­ins hugs­ar til baka til þeirra tíma þegar það þótt sjálf­sögð hegðun að „tendra sig upp á brenni­víni og Camel-smók“ og bjóða stelp­un­um upp og reyna „allt til að vanga þær og trukka og helst að kom­ast í sleik“. Gefið er í skyn að svona hafi þetta bara verið og þar með eðli­legt.“

Hefur ekkert með pólitískan rétttrúnað að gera

Áslaug Arna biður svo les­endur að velta því fyrir sér hvort þessi hegðun hafi nokkru sinni verið eðli­leg, jafn­vel þótt að hún hafi verið algeng á árum áður. „Að vísa í gamla tíma með rök­um um að svona hafi þetta verið rétt­læt­ir ekki of­beldi eða kven­fyr­ir­litn­ingu. Það minn­ir aðeins á þá stað­reynd að á þeim tíma stigu brota­þolar ekki fram og sögðu ekki frá brot­um eða ósæmi­legri hegðun í sinn garð.

[adspot]Hegðun sem er ekki í lagi í dag var held­ur ekki í lagi þá. Það hef­ur ekk­ert með póli­tísk­an rétt­trúnað að gera, held­ur al­menna virð­ingu fyr­ir fólki. Að standa gegn kyn­ferðis­brot­um hef­ur held­ur ekk­ert að gera með póli­tísk­an rétt­trúnað. Ég kæri mig lítið um að menn blandi dólgs­legri hegðun í garð kvenna inn í umræðu um póli­tísk­an rétt­trúnað og saki þá sem ekki hlæja að göml­um grodd­ara­sög­unum um að hafa tapað sér í rétt­trún­aði.“

Gleymdist að spyrja ömmurnar

Hún rifjar svo upp upp­haf #metoo-bylt­ing­ar­innar í fyrra og pistil sem hún skrif­aði þá þar sem hún sagði að stærsti ár­ang­ur þeirr­ar umræðu sem nú hefði skap­ast væri að þeir sem til­eink­uðu sér ekki virð­ingu í sam­skipt­um mundu að lok­um dæma sjálfa sig úr leik. Það er óþarfi fyr­ir Morg­un­blaðið að skipta þeim aft­ur inn á.“

Þótt ein­hverjum kunni að finn­ast nóg komið af umræðu um #metoo þá sé sú bylt­ing komin til að vera. „Mögu­lega hef­ur gleymst að spyrja ömm­ur okk­ar hvernig þær upp­lifðu þá tíma þegar strák­un­um fannst eðli­legt að skvetta í sig brenni­víni og reyna allt til að kom­ast í sleik.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár