Kallar ritstjóra Morgunblaðsins gamlan kall sem sleikir botn á mykjuhaugi

Benedikt Jóhann­es­son fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra vandar rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins ekki kveðj­urnar í dag vegna inni­halds Stak­steina blaðs­ins. Segir að sér hafi orðið óglatt við lest­ur­inn.

Benedikt Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra og for­maður Við­reisnar, segir í stöðu­upp­færslu á Facebook að Davíð Oddsson rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sé gam­all kall sem sleiki botn­inn á mykju­haugi.

Vísar Benedikt þar í Stak­steina blaðs­ins í dag þar sem end­ur­birtur er pist­ill Halldórs Jóns­sonar, verk­fræð­ings og áhrifa­manns í Sjálf­stæð­is­flokknum, sem hann birti á Mogga­bloggi sínu og kallar „Dömufrí“.

Þar vísar Halldór í ásk­anir á hendur Brett Kavanough dóma­efnis Trump vest­an­hafs um kyn­ferð­is­of­beldi, og ber þær saman við hvernig hann sjálfur reyndi að ving­ast við stúlkur á dansæf­ingum í Mennta­skól­anum í Reykja­vík á sínum tíma.

„Þegar ég hugsa til baka hvernig maður hegð­aði sér á dansæf­ingum í MR. Búinn að tendra sig upp á brenni­víni og Camelsmóki bauð maður stelp­unum upp og reyndi allt til að vanga þær og trukka og helst að kom­ast í sleik,“ segir Halldór í pistli sínum og bætir við. „Þessi hegðun myndi koma í veg fyrir að ég yrði sam­þykktur í emb­ætti ef Trump myndi vilja hygla mér eins og Kawanough eða hvernig það er stafað. Sá kall hegð­aði sér eitt­hvað svona á mennta­skóla­böllum fyrir einum þrjá­tíu árum. Nú ætla demókrat­arnir að nota það til að hindra að þessi dóni kom­ist í Hæsta­rétt Banda­ríkj­anna.“

Kjarninn fjall­aði um ásak­an­irnar á hendur Kavan­augh hér.

„Ef bara hefðu verið dömu­frí í MR í gamla daga hefði mér lík­lega sjaldnar verið boðið upp en þeim mynd­ar­legri. Fyrir bragðið hefði ég lík­lega minna á sam­visk­unni varð­andi mögu­legt emb­ætt­is­gengi og færri stelpur hefði talið sig geta hankað mig á ein­hverju, þó svo að ég hafi ekki orðið var við mikla mót­spyrnu þeirra á þeim tíma .En kannski hef ég bara fattað þetta vit­laust eins og þeir í Orku­veit­unni. „Ef bara konur mættu hafa kyn­ferð­is­legt frum­kvæði í formi almenns dömu­frís en ekki þessir ólaungröðu kallar sem vaða all­staðar uppi, bæði prelátar, para­graffistar og póli­tíkusar, þá yrðu kannski færri vand­ræði en nú ríða all­staðar húsum,“ skrifar Halldór í færslu sinni sem Morg­un­blaðið birtir undir titl­inum „Samfélag heil­agra“.

Benedikt segir að sér verði óglatt af því að lesa þetta. „ Tveir ógeðs­legir gamlir karlar sleikja botn­inn á mykju­haugnum, annar með því að halda að það sé snið­ugt að skrifa svona, hinn með því að halda að það sé snið­ugt að birta svona skrif.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár