Ríkisstjórnin boðar nýja Íbúðastofnun sem tekur við verkefnum af Íbúðalánasjóði

Stofnuð verður sér­stök Íbúða­stofnun sem á að taka við hluta þeirra verk­efna sem Íbúða­lána­sjóður hefur haft á sinni könnu. Meðal ann­ars á Íbúða­stofnun að sjá um að veita stofn­fram­lög til bygg­inga eða kaupa á leigu­í­búðum sem eru ætl­aðar tekju- og eigna­litlum leigj­endum. Þetta kemur fram í þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar fyrir vet­ur­inn, sem hefur verið birt á net­inu. Frumvarp um Íbúða­stofnun verður eitt þeirra frum­varpa sem Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, hyggst leggja fram í haust.

Íbúða­stofnun á líka að vera ráð­gef­andi fyrir stjórn­völd þegar kemur að mótun hús­næð­is­stefnu, hún mun ann­ars söfnun, úrvinnslu og útgáfu upp­lýs­inga á sviði hús­næð­is­mála og á að meta þörf á búsetu­úr­ræðum.

Rætt hefur verið um breyt­ingar á Íbúða­lána­sjóði og stofnun nýrrar stofn­unar frá því að verk­efn­is­stjórn um fram­tíð­ar­skipan hús­næð­is­mála skil­aði sínum til­lögum til ráð­herra, og frum­varpið sem nú er lagt fram byggir á þeim til­lögum.

Matthías Imsland, aðstoð­ar­maður Eyglóar Harð­ar­dóttur, sagð­ist ekki geta gefið Kjarn­anum frek­ari upp­lýs­ingar um málið en þær sem koma fram í þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar. Frum­varpið sé ekki til­búið. Hann sagð­ist ekki geta sagt neitt um breyt­ing­arnar sem verða á starf­semi Íbúða­lána­sjóðs með til­komu þess­arar nýju stofn­unar.

Kjarninn hefur ekki náð í Hermann Jónasson, for­stjóra Íbúða­lána­sjóðs. Ingi­björg Ólöf Vil­hjálms­dóttir stjórn­ar­for­maður sjóðs­ins benti á ráðu­neytið þegar rætt var við hana í dag. Hún sagð­ist ekki geta tjáð sig um málið.

Lögðu til að Íbúðalánasjóði yrði skipt upp


Í til­lögum verk­efn­is­stjórn­ar­innar um fram­tíð­ar­skipan hús­næð­is­mála var lagt til að Íbúða­lána­sjóði yrði „breytt var­an­lega og núver­andi verk­efnum hans skipt upp, ann­ars vegar í nýtt hús­næð­is­lána­fé­lag og hins vegar verði mörgum þeim verk­efnum sem Íbúða­lána­sjóður sinnir í dag, ásamt við­bót­ar­verk­efnum sem lögð eru til af verk­efn­is­stjórn, sinnt sér­stak­lega af opin­berum aðilum“. Hús­næð­is­lána­fé­lagið ætti að reka á sömu for­sendum og önnur hús­næð­is­lána­fé­lög, með engri rík­is­á­byrgð á skuld­bind­ingum þess.

Til þess að finna fram­kvæmd hús­næð­is­stefnu stjórn­valda traustan far­veg var lagt til að stofnuð yrði Hús­næð­is­stofnun, ný stofnun hús­næð­is­mála, auk þess sem verk­efnum yrði fund­inn staður í núver­andi stofna­naum­hverfi.

„Samhliða þessum breyt­ingum hætti Íbúða­lána­sjóður lán­veit­ingum sam­kvæmt núver­andi fyr­ir­komu­lagi. Lánasafn Íbúða­lána­sjóðs verði látið renna út og lán­tak­endur sjóðs­ins fái þjón­ustu frá hús­næð­is­lána­fé­lagi í eigu rík­is­sjóðs eða umsýslan verði boðin út.“

Svo virð­ist því sem boðuð Íbúða­stofnun muni hafa svipað hlut­verk og Hús­næð­is­stofn­unin sem lögð var til í til­lög­unum.

Norðvesturnefndin vill að stofnunin verði á Sauðárkróki


Norð­vest­ur­nefndin svo­kall­aða, sem skil­aði af sér skýrslu til Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra í des­em­ber síð­ast­liðnum, lagði til að höf­uð­stöðvar slíks nýs hús­næð­is­lána­fé­lags og nýrrar hús­næð­is­stofn­unar yrði á Sauð­ár­króki. Frétta­blaðið greindi frá þessu í apríl síð­ast­liðnum en þá sagði Eygló Harð­ar­dóttir að ekki væri búið að taka end­an­lega ákvörðun, enda hefði stofn­unin ekki verið sam­þykkt af Alþingi. „Þingið mun síðan koma að því hvar stað­setn­ing þeirrar stofn­unar á að vera. Fyrst og fremst mun stað­setn­ing stofn­un­ar­innar ráð­ast af því hvar hún getur á sem auð­veldastan hátt sinnt störfum sínum sem best fyrir alla lands­menn,“ sagði hún.

Íbúðalánasjóður dregið saman starfsemi


Í síð­ustu viku kynnti Íbúða­lána­sjóður nýtt skipu­lag, þar sem fram­kvæmda­stjórum var fækkað og starf­semin ein­földuð. Þetta er gert í kjöl­far þess að vinnu við úrlausn skulda­mála í kjöl­far hruns­ins er að mestu lokið. Nýja skipu­lagið er liður í stefnu­mót­un­ar­vinnu stjórnar ÍLS í fram­haldi af skilum á skýrslu verk­efna­stjórnar um fram­tíð­ar­skipan hús­næð­is­mála.

Nú ætlar sjóð­ur­inn að „aðlaga rekst­ur­inn frekar að kjarna­starf­semi sjóðs­ins sem er að veita þjón­ustu í almanna­þágu með hús­næð­is­lán­veit­ingum til almenn­ings um allt land,“ sam­kvæmt því sem fram kom í frétta­til­kynn­ingu um málið í síð­ustu viku. Samhliða þessu ætlar sjóð­ur­inn að halda áfram að selja eignir og draga úr þeim hluta starf­sem­innar sem tengd­ist úrlausn skulda­mála, enda sé þeirri vinnu að mestu lokið.

Óvissa um fram­tíð­ar­hlut­verk Íbúða­lána­sjóðs hefur verið mikil frá því að verk­efn­is­stjórnin var skipuð. Bæði Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn og Efnahags- og fram­fara­stofn­unin hafa lagt til að sjóð­ur­inn verði lagður niður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár