Börnin sem dóu á vöggustofunum

Níu mán­aða drengur. Níu mán­aða stúlka. Hálfs árs drengur. Árs gam­all drengur. Annar árs gam­all drengur. Stúlku­barn. Samkvæmt rann­sókn á starf­semi vöggu­stofa Reykja­víkur lét­ust sex börn á meðan þau voru vistuð þar.

Vöggustofa Thorvaldsensfélagsins
Vöggu­stofa Thor­vald­sens­fé­lags­ins Húsnæði Vöggu­stofu Thor­vald­sens­fé­lags­ins var tekið i notkun árið 1963. Þrjú börn sem þar voru vistuð dóu næsta ára­tug­inn. Mynd: Reykjavíkurborg

Níu mán­aða drengur sem vistaður var á Vöggu­stof­unni Hlíð­ar­enda fannst lát­inn í rúmi sínu í maí árið 1950. Aðstæðum er lýst þannig í vist­un­ar­skrám vöggu­stof­unnar að dreng­ur­inn hafi fund­ist lát­inn með sæng yfir höfði og að lífg­un­ar­til­raunir hefðu verið án árang­urs.

Litli dreng­ur­inn er eitt sex barna sem vöggu­stofu­nefndin, sem rann­sak­aði starf­semi vöggu­stofa Reykja­víkur og skil­aði nýverið skýrslu sinni, telur hafa lát­ist á meðan vistun á stofn­un­unum stóð.

Vöggu­stofu­nefndin fékk aðgang að vist­un­ar­skjölum allra þeirra 1.083 barna sem dvöldu á Vöggu­stof­unni Hlíð­ar­enda og Vöggu­stofu Thor­vald­sens­fé­lags­ins á árunum 1949-1973. Skjölin nálg­að­ist nefndin ýmist hjá Borg­ar­skjala­safni eða í skjala­safni Thor­vald­sens­fé­lags­ins.

Í þessum skjölum er að jafn­aði að finna upp­lýs­ingar um hvenær hvert og eitt barn var vistað og hvenær það fór af vöggu­stof­unni, heilsu­far barns­ins við lækn­is­skoð­anir, svo og hverjir for­eldrar þess eru. Þá er þar jafn­framt eftir atvikum að finna upp­lýs­ingar um ástæður vist­unar á vöggu­stofu.

Veikindi skýra ekki takmarkanir á heimsóknum

Nefnd­ar­menn lásu öll þessi skjöl og í skýrslu þeirra segir að í þeim komi ekk­ert fram sem gefi til kynna að heilsu­far barna sem vistuð voru á vöggu­stof­unum hafi verið lak­ara en almennt þekkt­ist hjá börnum á þessum tíma. Enda voru vöggu­stof­urnar ekki sjúkra­hús heldur vist­un­ar­úr­ræði á vegum barna­vernd­ar­nefndar.

Af þessu dregur nefndin þá ályktun að eitt­hvað annað en veik­indi barn­anna hafi skýrt þær miklu tak­mark­anir sem voru á heim­sóknum aðstand­enda til barna sinna á vöggu­stof­unum. Líkt og ítrekað hefur komið fram, m.a. í fréttum Heim­ild­ar­innar, máttu for­eldrar almennt ekki snerta börn sín heldur þurftu að láta sér duga að horfa á þau í gegnum gler á skil­greindum heim­sókn­ar­tímum. Dæmi eru um börn sem dvöldu á vöggu­stof­unum í tvö ár sem for­eldr­arnir fengu aldrei að snerta á þeim tíma.

Fyrr­ver­andi starfs­menn sem og fólk sem ýmist dvaldi sjálft á vöggu­stof­unum á unga aldri eða átti börn sem þar voru vistuð, hafa einnig lýst hreinni og klárri „hrein­læt­is­áráttu“ for­stöðu­kvenna stofn­an­anna. Sótt­varnir voru í hávegum hafðar, sam­kvæmt lýs­ingum þessa fólks, en minna fór fyrir örvun barn­anna sem þar voru vistuð í hund­raða­vís á starfs­tíma vöggu­stof­anna.

Sett í fóstur og á aðrar stofnanir

Samkvæmt því sem vöggu­stofu­nefndin kemst næst var 171 barni ráð­stafað í fóstur eftir dvöl á vöggu­stof­unum. Sum fóru beint inn á aðrar stofn­anir sem reknar voru á þessum tíma. Hversu mörg fóru beint af vöggu­stofu og á aðrar stofn­anir er ekki full­víst en nefndin segir gögn gefa til kynna að 151 barn sem vistað var á vöggu­stofu á unga aldri hafi síðar meir verið vistað á stofn­unum ríkis og sveit­ar­fé­laga sem áttu að þjóna sem úrræði á sviði barna­verndar. Samkvæmt þessu voru því 13,9 pró­sent þeirra ein­stak­linga sem vistaðir voru á vöggu­stofum borg­ar­innar einnig vistaðir síðar meir á slíkum stofn­unum.

Börnin sex sem létust

En sum barn­anna fóru aldrei af vöggu­stof­unum. Í skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar er að finna gögn sem benda til að minnsta kosti sex börn hafi lát­ist á meðan vistun þeirra stóð.

Þrjú börn sem vistuð voru á Hlíð­ar­enda lét­ust á meðan sú vöggu­stofa var starf­rækt eftir því sem vöggu­stofu­nefndin kemst næst.

Í maí 1950 lést níu mán­aða drengur og er aðstæðum lýst þannig í gögnum að barnið hafi fund­ist látið með sæng yfir höfði og að lífg­un­ar­til­raunir hafi verið án árang­urs.
Úr skýrslu vöggu­stofu­nefnd­ar­innar

Sá fyrsti sem þar lést var níu mán­aða dreng­ur­inn sem sagt var frá hér að framan. Sjö árum seinna eða í des­em­ber árið 1957 lést níu mán­aða stúlka. Í vist­un­ar­gögnum kemur fram að hún hafi veikst á vöggu­stof­unni og verið flutt á Land­spít­al­ann þar sem hún lést.

Í maí árið 1962 kemur fram í gögn­unum að tæp­lega hálfs árs drengur hafi lát­ist á vöggu­stof­unni. Dán­ar­or­sök er ekki skráð en dán­ar­stund til­greind.

Árið 1963 tók Vöggu­stofa Thor­vald­sens­fé­lags­ins við af Hlíð­ar­enda. Í jan­úar árið 1971 lést rúm­lega árs gam­all drengur eftir að hann var fluttur á sjúkra­hús. Í vist­un­ar­gögnum segir að dán­ar­or­sök hafi verið hjarta­galli. Aðeins nokkrum dögum seinna, í febr­úar þetta sama ár, lést annar árs gam­all drengur á vöggu­stof­unni. Í skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar segir að hann hafi fæðst með erfða­sjúk­dóm.

Stúlka sem lést í svefni

Upp­lýs­ingar um þriðja and­látið sem varð á Vöggu­stofu Thor­vald­sens­fé­lags­ins á rann­sókn­ar­tíma­bil­inu og fjallað er um í skýrslu nefnd­ar­innar er ekki að finna í skrif­legum heim­ildum.  Auður Jóns­dóttir, sem var for­stöðu­kona vöggu­stof­anna frá 1960 og til árs­ins 1967, greindi hins vegar frá því í við­tali við vöggu­stofu­nefnd­ina að stúlku­barn hefði lát­ist af völdum nýrna­veiki á starfs­tíma hennar. Nefndin segir það fara saman við frá­sögn ann­ars starfs­manns.

Er þar lík­lega verið að vísa til frá­sagnar konu sem hóf störf árið 1963. Í við­tali við nefnd­ina sagði hún að eitt dauðs­fall hefði orðið á starfs­tíma hennar. Barnið hefði lát­ist í svefni og Auður for­stöðu­kona búið um það. Dauðs­fallið hafi ekki verið rætt frekar.

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár