Boðuð útgjaldaaukning Pírata er ekki fullfjármögnuð

Stað­reynda­vakt Kjarnans skoðar full­yrð­ingu Halldóru Mogensen um að kosn­inga­lof­orð Pírata séu full­fjár­mögnuð með nýjum tekju­öfl­un­ar­leiðum.

Halldóra Mogensen, þingflokksformaður Pírata, í forystusætinu á RÚV í gærkvöldi.
Halldóra Mogensen, þing­flokks­for­maður Pírata, í for­ystu­sæt­inu á RÚV í gær­kvöldi. Mynd: Skjáskot/RÚV

Halldóra Mogensen, þing­flokks­for­maður Pírata var mætt í For­ystu­sætið á RÚV í gær­kvöldi. Þar var hún meðal ann­ars spurð um til­lögur Pírata í efna­hags­málum, sem ganga meðal ann­ars út á breyt­ingar á per­sónu­af­slætti og ýmsum leiðum til að auka tekjur rík­is­sjóðs til að standa undir þeim breyt­ingum.

Halldóra sagði þar að Píratar vildi „hækka per­sónu­af­slátt­inn og greiða hann út til þeirra sem eru ekki að nota hann.“

„Það ætti að greiða út per­sónu­af­slátt­inn og hækka hann í skrefum og færa sig í „átt að því sem kall­ast nei­kvæður tekju­skattur og er útfærsla af borg­ara­launum.“

Þegar Halldóra var spurð hvað þetta myndi kosta sagði hún að ef per­sónu­af­sláttur yrði hækk­aður um 20 þús­und krónur á mán­uði og yrði gerður útgreið­an­legur til þeirra sem ekki hafa tekjur þá myndi það kosta „í kringum 70 millj­arða, rúm­lega það.“ Á heima­síðu Pírata segir svo að kostn­að­ur­inn yrði 70,9 millj­arðar króna.

Auk þess ætla Píratar að hækka frí­tekju­mark elli­líf­eyris til að draga úr skerð­ingum, hækka frí­tekju­mark örorku­bóta til þess að draga úr skerð­ingum og flytja hluta virð­is­auka­skatts til sveit­ar­fé­laga. Þessir fjórir liðir eiga sam­kvæmt útreikn­ingum Pírata að lækka tekjur rík­is­sjóðs um 93,4 millj­arða króna.

„Við erum búin að kostn­að­ar­meta þessar helstu aðgerðir okkar og líka koma með til­lögur um hvernig við getum fjár­magnað þetta. Þannig að við getum full­fjár­magnað þetta allt saman,“ sagði Halldóra í For­ystu­sæt­inu í gær.

Ætluðu að sækja 35 milljarða með hækkun á hæsta skattþrepinu

Halldóra var svo spurð hvernig Píratar sjái fyrir sér að fjár­magna þetta og sagði að flokk­ur­inn sæi fyrir sér að skatt­leggja auð, með þrepa­skiptum fjár­magns­skatti. Auk þess sjái flokk­ur­inn fyrir sér breyt­ingar í sjáv­ar­út­vegi sem verði tekju­ber­andi fyrir rík­is­sjóð og að bætt skatta­eft­ir­lit geti skilað umtals­verðum tekjum. „Við sjáum fyrir okkur að við ætlum að taka tekju­skatts­þrepið og breyta því þannig að við hækkum miðju- og efra tekju­skatts­þrepið.“

[adspot]Á heima­síðu Pírata segir að breyt­ing­arnar á mið- og hæsta skatt­þrep­inu feli í sér að miðju­þrepið verði hækkað úr 37,95 pró­sent í 38 pró­sent og það hæsta úr 46,25 pró­sent. „Breyt­ingin á mið þrep­inu hefur að með­al­tali í för með sér um 4750 króna hækkun á skatti á hvern aðila á vinnu­mark­aði á mán­uði, sem að sam­tals hefur þá um 15.0 millj­arða tekju­auka í för með sér fyrir rík­is­sjóð. Breyt­ingin á hæsta þrep­inu hefur áhrif á um 10% af laun­þegum og mun að með­al­tali skila um 55 þús­und krónum á mán­uði í tekjur fyrir rík­is­sjóð á hvern ein­stak­ling í þessum hóp. Þetta myndi hafa um 34.8 millj­arða tekju­auka í för með sér fyrir rík­is­sjóð.“

Sam­an­lagt eiga þessar tvær skatt­kerf­is­breyt­ingar því að skila næstum 50 millj­örðum króna á ári af þeim 83,8 millj­arða króna tekju­auka fyrir rík­is­sjóð, sem útreikn­ingar Pírata sýndu, og Halldóra vís­aði til. Auk þess gerði flokk­ur­inn ráð fyrir því að 9,7 millj­arðar króna myndu skila sér í aukna inn­heimtu virð­is­auka­skatts vegna þess að til­lögur Píratar auki það fé sem tekju­lægra fólk hafi á milli hand­anna til neyslu.

Samtals átti vænt tekju­aukn­ing því að vera 93,5 millj­arðar króna á ári, sem er á pari við þá útgjalda­aukn­ingu sem Píratar boða.

Viðurkenna sjálf ofáætlun

Fyrir liggur að Píratar hafa við­ur­kennt að útreikn­ingar þeirra á væntum við­bót­ar­tekjum vegna hátekju­þreps­ins voru veru­lega ofá­ætl­aðar. Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður flokks­ins, sagði í sam­tali við Kjarnann í dag að fljótt á litið virt­ist skekkjan sem sett var fram af hálfu flokks­ins nema um 25 millj­örðum króna og tekj­urnar því um tíu millj­arðar króna, en ekki tæp­lega 35 millj­arðar króna.

Samkvæmt útreikn­ingum hag­fræð­ings fyrir Kjarnann er skekkjan enn meiri.

Í fyrra nam með­al­tal atvinnu­tekna efstu tíund­ar­innar á vinnu­mark­aði um 1,1 milljón króna á mán­uði. Það leiðir af sér að skatt­stofn­inn fyrir hæsta tekju­skatt­þrepið var um 167 þús­und krónur á mán­uði að með­al­tali fyrir um það bil 20 þús­und manns. Samkvæmt þessu var skatt­stofn­inn í efsta þrepi því um 44 millj­arðar króna á ári í fyrra.

Hækkun um 3,75 pró­sentu­stig á skatti sem á þessa upp­hæð leggst myndi skila 1,6 millj­örðum króna á ári auka­lega í tekjur fyrir rík­is­sjóð.

Vert er að taka fram að ofan­greindar tölur fjalla um atvinnu­tekjur sem eru tekju­skatts­skyldar, en ekki aðrar tekju­skatts­skyldar tekjur eins líf­eyri og ýmis konar bætur. Fyrir liggur að þær hækka skatt­stofnin eitt­hvað, en ekki þannig að miklu muni.

Niðurstaða Staðreyndavaktarinnar

Sumar þeirra leiða sem Píratar ætla að ráð­ast í til að auka tekjur svo hægt sé að borga fyrir nýja útgjalda­auka munu sann­ar­lega skila umtals­verðum fjár­hæðum í rík­is­sjóð. En fyrir liggur að stærsta ein­staka tekju­aukn­ing­ar­leiðin sem flokk­ur­inn boð­aði, tæp­lega 35 millj­arða króna við­bót­ar­tekjur vegna hækk­unar á hæsta tekju­skatts­þrep­inu, mun ekki skila nálægt þeirri tölu.

Því liggur fyrir að Halldóra Mogensen fór með fleipur þegar hún hélt því fram í For­ystu­sæt­inu í gær að til­lögur Pírata væru full­fjár­magn­aðar. Full­yrð­ing hennar er ekki hauga­lygi vegna þess að hún var ekki vís­vit­andi að segja ósatt og Píratar hafa við­ur­kennt að fram­settar tölur hafi verið veru­lega rangar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár