Elítan gegn kröfu kjósenda um breytingar

Óvin­sæl­asti fram­bjóð­and­inn fær mesta umfjöllun og flest atkvæði í for­vali repúblik­ana fyrir for­seta­kosn­ing­arnar í Banda­ríkj­unum. Hvernig stendur á þessu og hvað hygg­ist flokks­for­ystan gera? Bryndís Ísfold skrifar frá New York um for­val stóru flokk­anna.

Donald Trump talar á kosningafundi á vegum stjórnmálasamtaka sem berjast fyrir hagsmunum Ísrael í bandarískum stjórnmálum. Clinton, Trump og Cruz eru öll stuðningsmenn aukinna tengsla bandarískra stjórnvalda við Ísrael.
Donald Trump talar á kosn­inga­fundi á vegum stjórn­mála­sam­taka sem berj­ast fyrir hags­munum Ísrael í banda­rískum stjórn­málum. Clinton, Trump og Cruz eru öll stuðn­ings­menn auk­inna tengsla banda­rískra stjórn­valda við Ísrael.

Það er ekki eitt, heldur flestallt sem er óvenju­legt við for­seta­kosn­ing­arnar í Banda­ríkj­unum. Í vik­unni sem leið kom í ljós að auð­kýf­ing­ur­inn Donald Trump, sem slegið hefur öll met í óvin­sældum hjá kjós­endum í Banda­ríkj­unum, heldur þrátt fyrir það áfram sig­ur­göngu sinni, ótrauður í að næla sér í útnefn­ingu repúblik­ana, ríki eftir ríki.

Á sama tíma birtir stuðn­ings­hópur teboðs­leið­tog­ans Ted Cruz, sem þykir nú það næsta sem kemst norm­inu hjá repúblikönum, djarfar myndir af eig­in­konu Trump fáklæddri í hjarta íhaldss­ins, Utah, undir fyr­ir­sögn­inni „Er þetta næsta for­set­frú Banda­ríkj­anna?“. Á sama tíma arkar Hillary Clinton á sviðið hjá stærstu og áhrifa­mestu sam­tökum ísra­el­skra lobbý­ista í land­inu og lýsir því yfir enn einu sinni hvernig Banda­ríkin skulu og munu verja Ísra­els­ríki sama hvað á dynur. Undir þetta taka bæði Trump og Cruz.

Bernie Sanders sem er jafn­framt eini gyð­ing­ur­inn í for­seta­fram­boðs­hópnum, afþakk­aði boðið og fyllti hverja ráð­stefnu­höll­ina á fætur annarri í mið­vest­ur­ríkjum lands­ins. Hann sigr­aði svo þrjú ríki á einum degi og náði að minnka for­skot Clinton í for­vali demókrata. Krafa kjós­enda um breyt­ingar er hávær hjá báðum flokkum en á sama tíma virð­ist valda­el­íta beggja flokka hafa örygg­is­ventla sem þau geta gripið til.

Er Sanders með „comeback“?

Eftir stór­sigur Sanders í þremur ríkjum í síð­ustu viku (Alaska, Washington og Hawaii) virð­ist enn meiri kraftur hafa færst í fram­boðið. Eins og staðan er nú hefur hann náð að tryggja sér 975 kjör­menn á móti þeim 1.243 kjör­mönnum sem Hillary hefur nælt sér í. Enn á eftir að kjósa um fjölda kjör­manna í stórum ríkjum eins og New York (247 kjör­menn), Penn­syl­vaníu (189) og Kali­forníu (475). Kannanir sýna að Clinton er enn í sterk­ari stöðu en Sanders. Myndi hann nú þurfa að ná meiri­hluta þeirra kjör­manna sem eftir eru í pott­inum, þá eru ótaldir þeir 712 ofur­kjör­menn – elíta flokks­ins – sem nær allir hafa lofað Hillary stuðn­ingi sínum eða 469 á móti 29 sem hafa lofað að styðja Sanders. Til þess að tryggja sér útnefn­ing­una þarf 2.383 kjör­menn.

Óvænt atvik geta þó breytt stöð­unni. Skemmti­legt mynd­brot af óvæntu atviki á kosn­inga­fundi Sanders í Portland hefur farið sem eldur í sinu um sam­fé­lags­miðla. Þar stóð hann í stórum sal og var í miðri ræðu þegar lít­ill fugl sett­ist á ræðupúltið hjá honum. Sanders brást við með því að segja að þessi litli fugl væri hvatn­ing um að tryggja heims­frið. Atvikið er án efa ein allra besta stuðn­ings­yf­ir­lýs­ing sem Sanders gat óskað sér og svona leikur eng­inn aug­lýs­inga­brellu­maður eftir. Stuðn­ings­menn Sanders voru fljótir að setja fram­bjóð­andan í bún­ing smá­fugls­ins og rauk mynd af honum í líki fugls­ins um alla króka og kima ver­ald­ar­vefs­ins í kjöl­farið. Ólíklegt er að stuðn­ings­yf­ir­lýs­ing smá­fugls­ins muni hafa afger­andi áhrif þó skemmtigildið hafi verið ótví­rætt.

Þrátt fyrir þetta ævin­týri­lega atvik þarf Sanders að tryggja sér um tvo þriðju atkvæða sem eru eftir til að ná að hafa útnefn­ing­una af Hillary Clinton. Hann gæti einnig reynt að leggj­ast í veg­ferð að snúa elítu flokks­ins. Þó það sé fræði­lega hægt þá eru fáir sem skipta um skoðun þegar svona langt er liðið á for­valið. Þetta er ekki úti­lokað en yrði að telj­ast hálf­gert krafta­verk.

Trump heldur sínu forskoti

Ted Cruz sigr­aði kjör­fund repúblik­ana í Utah með 69 pró­sent atkvæða og hefur nú tryggt sér 463 kjör­menn. Trump, sem sigr­aði Arizona í síð­ustu viku með 47 pró­sent atkvæða, hefur tryggt sér 738 kjör­menn, John Kasich er með 143 kjör­menn og hefur ekki fræði­legan mögu­leika á að fá útnefn­ing­una. Mikið er rætt um þann mögu­leika að á flokks­þingi repúblik­ana verði þing­inu breytt í svo­kallað „Brokered Convention“ sem þýðir að ef eng­inn fram­bjóð­andi hefur tryggt sér meiri­hluta kjör­manna eða að lág­marki 1.237, þá getur fund­ur­inn hafið flókið ferli sem snýst um að ríkin beri fram atkvæði sín eftir reglum hvers ríkis og kosið er þar til ein­hver fram­bjóð­andi fær minnst 51 pró­sent atkvæða. Þetta ferli getur orðið langt og er óvíst hvort það myndi breyta nið­ur­stöð­unni ef Trump er mjög nálægt lág­mark­inu sem hann þarf til að tryggja sér útnefn­ing­una.

Kannanir benda til þess að Trump sé nokkuð öruggur með að verða sér út um þá kjör­menn sem að venju þarf til að tryggja sér útnefn­ingu flokks­ins með form­legum hætti á lands­fundi flokks­ins. Það er nú orðið nán­ast dag­legur við­burður að fréttir ber­ast af mót­mæl­endum sem mæta á fram­boðs­fundi Trump sé mætt með rasískum hrópum og köllum og þeir jafn­vel beittir ofbeldi af stuðn­ings­mönnum Trump. Lýsingar af við­burðum Trump vekja mik­inn óhug meðal margra almenna borg­ara sem almennt státa sig af fjöl­breyti­leika Banda­ríkj­anna en við­brögð sumra stuðn­ings­manna Trump bera merki um rasíska til­burði og mikla heift gagn­vart inn­flytj­endum. 

Það er í takt við þetta sem kann­anir sýna að almennir kjós­endur hafa mikla óbeit á Trump á sama tíma og hann rakar inn atkvæðum í for­vali repúblik­ana. Elstu menn segj­ast ekki muna eftir jafn óvin­sælum stjórn­mála­manni og Trump. Könnun Gallup sýnir að 63 pró­sent kjós­enda segja hann ekki vera þeirra val (e. unfa­vora­ble), á meðan 30 pró­sent segj­ast kunna vel við hann (e. favora­ble). Hillary Clinton er einnig mjög óvin­sæl meðal almennra kjós­enda en 53 pró­sent kjós­enda segj­ast ekki líka við hana (e. unfa­vora­ble) en 41 pró­sent líkar við hana.

Villtra Vestrið hjá Repúblikönum

Önnur grein stjórn­ar­skrár Banda­ríkj­anna er marg­um­rædd í stjórn­málum en hún tryggir að öllum sé heim­ilt að bera vopn. (e. A well reg­ulated Militia, being necessary to the security of a free State, the right of the people to keep and bear Arms, shall not be infr­inged.) Þessi litla klausa hefur orðið til þess að í mörgum ríkjum má ganga með vopn um allar götur og jafn­vel í opin­berum bygg­ingum. Ár hvert deyja meira en 30.000 manns í Banda­ríkj­unum eftir að hafa verið skotnir með byssu. Þess vegna hefur verið mik­ill þrýst­ingur á stjórn­mála­menn að tak­marka þetta „frels­is­á­kvæði“ í stjórna­skránni með því að krefj­ast þess að fólk þurfi að fá metið hvort það sé hæft til þess að eiga skot­vopn. Í þeim ríkjum þar sem lögum hefur verið breytt í þessa veru er helst skoð­aður bak­grunnur fólks, með til­liti til þess hvort þau hafi gerst sek um glæpi eða séu með geð­rask­anir sem gætu sett þau eða aðra í hættu, ættu þau vopn.

Flestir repúblikanar eru alfarið á móti þessu og nú stefnir í mikil átök á lands­fundi flokks­ins sem hald­inn verður í Cleveland dag­ana 18. til 21. júlí næst­kom­andi. Þar er mögu­legt að flokksel­ítan muni láta kjósa á staðnum þeirra full­trúa til að freista þess að koma í veg fyrir að Donald Trump verði fram­bjóð­andi þeirra. Einhver hefur lagt til að flokks­mönnum verði heim­ilt að bera vopn á flokks­fund­inum. Safnast hafa yfir fjör­tíu þús­und und­ir­skriftir þessu til stuðn­ings en leiða má líkur að því að um hrekk sé að ræða. Haldi und­ir­skrifta­list­inn áfram að stækka verður áhuga­vert að heyra og sjá hvernig byssuglöðu for­seta­fram­bjóð­end­urnir repúblikana­megin bregð­ast við.

En það var í þessum anda sem vikan leið, Donald Trump og Ted Cruz not­uðu Twitter til að slá sjálfa sig til ridd­ara á sama tíma og þeir not­uðu konur hvers ann­ars sem vopn í sínum eigin sand­kassa­leik. Leikar hófust, eins og áður sagði, þegar stuðn­ings­hópur Cruz (e. PAC) birti djarfa mynd úr GQ-tíma­rit­inu af Melaniu Trump, en hún hefur, eins og þekkt er, starfað lengi sem fyr­ir­sæta. Mynd­irnar sína Melaniu fáklædda og voru þessar myndir nýttar í aug­lýs­ingar í Utah þar sem afar íhalds­samir kjós­endur búa, undir yfir­skrift­inni, „Er þetta næsta for­seta­frú Banda­ríkj­anna?“. Trump brást hinn versti við og tví­taði að hann myndi segja frá öllu (e. Spill the beans) um eig­in­konu Cruz. Þetta leik­rit varð eins fárán­legt og hugs­ast getur.

Krafan um breytingar

Umræða sér­fræð­inga hér vest­an­hafs er með ein­kenni­legum hætti þessa dag­ana. Á sama tíma og fjöl­miðla­menn saka sjálfa sig um að hafa leyft Trump að stýra algjör­lega umræð­unni segja aðrir að þrátt fyrir harða gagn­rýni sem Trump hefur þurft að þola frá stærstu fjöl­miðl­unum og stöðugar ábend­ingar um rang­færslur hans og lygar, hafi kjós­endur hans ákveðið að það skipti ekki máli í vali sínu á fram­bjóð­anda.

Hver svo sem ástæðan er má vera ljóst að stór hluti kjós­enda á sér þá ósk heitasta að hin svo­kall­aða elíta í Washington fái ekki að ráða hver verði næsti for­seti. Á báðum vængjum stjórn­mál­anna eru þeir Sanders og Trump að draga að stjórn­mál­unum fjölda fólks sem hafði gefið upp alla von og sér nú fyrir sér miklar breyt­ingar; þar sem stjórn­mál fara að snú­ast um hluti sem varðar það sjálft. Hægt er að merkja þennan ákafa og von um breyt­ingar með því að skoða þann fjölda sem mætir til að sjá bæði Sanders og Trump á fram­boðs­fundum. Báðir fylla risa­stórar ráð­stefnu­hallir á meðan bæði Cruz og Clinton láta sér næga minni sali og fámenn­ari sam­komur. Vel­gengni Sanders þar sem kosið er með kjör­funda­leið­inni (e. caucus), þar sem allir geta haldið ræðu og gengur að hluta út á að sann­færa óákveðna kjós­endur á staðnum, sýnir að hans kjós­endur eru til­búnir að leggja mikið á sig.

Verði hins vegar nið­ur­staðan sú, eins og flest bendir til, að Hillary Clinton fái útnefn­ing­una í krafti örygg­is­ventis í kosn­inga­reglum demókrata með ofur­kjör­mönnum elít­unnar, og að flokks­ráð­stefna Repúblik­ana grípi til síns örygg­is­ventis og komi í veg fyrir að Trump verði þeirra for­seta­fram­bjóð­andi, má búast við að upp úr sjóði í sam­fé­lag­inu. Þó þeir Sanders og Trump séu að mörgu leiti afar ólíkir í fasi og skoð­unum eru kjós­endur þeirra að sumu leiti líkir og kann­anir hafa sýnt að hluti kjós­enda þeirra myndu snúa sér að hinum ef þeirra maður tap­aði útnefn­ing­unni. En krafan um að elítan fái ekki að stjórna hvern flokk­arnir velja sem for­seta­fram­bjóð­anda og að hags­munir fólks­ins fái að ráða í Washington er sú sem tengir hópana mest. Sú krafa hefur ger­sam­lega sett hefð­bundna for­skrift for­seta­fram­boða úr skorðum og fær­ustu spek­úlantar í kosn­inga­fræðum hér vestra vita ekki hvaðan á sig stendur veðrið. Það er því ljóst að lands­lagið í for­seta­kosn­ingum í Banda­ríkj­unum er að taka miklum breyt­ingum, óháð því hvort sem þessi háværi hópur sem kallar á breyt­ingar fái sinn fram­bjóð­enda í Hvíta húsið eða ekki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsetakosningar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár