Einu frægasta fyrirhrunsmálinu lokið með klúðri

Hæsti­réttur felldi í gær niður mál sér­staks sak­sókn­ara gegn Hannesi Smára­syni í hinu svo­kall­aða Sterling-máli vegna klúð­urs. Sak­sókn­ari skil­aði ekki grein­ar­gerð í tíma. Málið var mikið frétta­mál og langan tíma hefur tekið að púsla saman brotum þess.

Hæsti­réttur felldi í gær niður mál sér­staks sak­sókn­ara gegn Hann­esi Smára­syni í hinu svo­kall­aða Sterl­ing-­máli. Ástæðan er seina­gangur hjá rikissak­sókn­ara, sem skil­aði ekki grein­ar­gerð í mál­inu fyrr en eftir að frestur til þess var lið­inn. Samt hafði verið veittur auka­frestur til þess að skila grein­ar­gerð. Hannes hafði verið sýkn­aður í mál­inu í hér­aðs­dómi. Í svari til Vísis í dag segir Sigríður J. Frið­jóns­dóttir rík­is­sak­sókn­ari að mis­tök og mann­ekla hafi valdið því að gögnin barúst seint.

Þegar máls­gögnin bár­ust Hæsta­rétti voru meira en ell­efu ár liðin frá ætl­uðu broti, nærri átta ár frá upp­hafi rann­sóknar og rúmir sautján mán­uðir frá því að rík­is­sak­sókn­ari gaf út á­frýj­un­ar­stefnu til að fá hnekkt hér­aðs­dómi um sýkn­u. Ákæru­valdið gat ekki veitt hald­bærar skýr­ingar á því hvers vegna það tók svo langan tíma að útbúa máls­gögn og skila þeim til Hæsta­rétt­ar. Þess vegna var mál­inu vísað frá.

Hannes var ákærður fyrir fjár­drátt í mál­inu í lok októ­ber 2013. Það snýst um að hann hafi látið milli­færa tæp­lega þrjá millj­arða króna af banka­reikn­ingi FL Group í úti­búi Danske Bank í New York og inn á nýjan banka­reikn­ing FL Group hjá Kaup­þingi í Lúx­em­borg sem Hannes hafði látið stofna fimm dögum áður. Sam­kvæmt sér­stöku umboði hafði Hannes fullt og ótak­markað umboð til ráð­staf­ana á fjár­munum félags­ins á þeim banka­reikn­ing.

Fjár­mun­irnir voru sama dag færðir frá nýja banka­reikn­ingnum yfir á banka­reikn­ing Fons eign­ar­halds­fé­lags, í eigu Pálma Har­alds­sonar og Jóhann­esar Krist­ins­son­ar. Þar var fjár­hæð­inni skipt í danskar krónur og í kjöl­farið lagðar inn á félagið Fred. Olsen & Co., þáver­andi eig­anda flug­fé­lags­ins Sterl­ing Air­lines. Millj­arð­arnir þrír mynd­uðu því stóran hluta af þeim fjórum millj­örðum króna sem Fons greiddi fyrir kaup á Sterl­ing á þessum tíma.

Ragn­hildur Geirs­dótt­ir, þáver­andi for­stjóri FL Group, Svein­björn Ind­riða­son, þáver­andi fjár­mála­stjóri FL Group, og öll stjórn FL Group utan Hann­esar segja að þau hafi ekki haft hug­mynd um þessi áform né hafi verið tekin ákvörðun um hana á vett­vangi félags­ins. FL Group var á þessum tíma almenn­ings­hluta­fé­lag í eigu rúm­lega fjögur þús­und aðila.

Hannes var sýkn­aður af ákærunni í hér­aði snemma árs í fyrra. Verj­andi Hann­es­ar, Gísli Guðni Hall, byggði vörn hans á því að ekki hafi verið sýnt fram á að bind­andi fyr­ir­mæli hafi verið gefin um milli­færsl­una eða ekki. Hannes sagð­ist sjálfur vera sak­laus af ákærunni og að ekk­ert benti til þess að milli­færslan hefði yfir höfuð átt sér stað.

Þeirri nið­ur­stöðu var áfrýjað til Hæsta­réttar Íslands en nú er ljóst að hann mun aldrei taka málið efn­is­lega fyrir, vegna klúð­urs hjá emb­ætti rík­is­sak­sókn­ara við skil á grein­ar­gerð í mál­inu.

Ellefu ár síðan meint brot átti sér stað

Á meðal þeirra gagna sem lágu til grund­vallar ákærunni voru gögn frá Lúx­em­borg sem áttu að sýna að fé FL Group hafi ratað inn á reikn­ing Fons. Það fé var síðan notað til að kaupa Sterl­ing. Þess­arra gagna var aflað með rétt­ar­beiðni frá Lúx­em­borg og vegna þeirra er Hannes aðal­lega ákærður fyrir fjár­drátt. Rann­sókn á öðrum við­skiptum FL Group og tengdra aðila með Sterl­ing, þar sem félagið var selt á tugi millj­arða króna á milli tengdra aðila, var hætt þegar ákæra var gefin út á hendur Hannesi.

Mál­inu var vísað frá hér­aðs­dómi í mars 2014 með þeim rökum að hátt­semin sem Hann­esi var gefin að sök í ákærunni hafi ekki verið lýst með full­nægj­andi hætti. Sér­stakur sak­sókn­ari áfrýj­aði nið­ur­stöð­unni til Hæsta­réttar sem felldi úrskurð Hér­aðs­dóms þann 10. apríl 2014 og lagði fyrir hér­aðs­dóm að taka málið til efn­is­með­ferð­ar. Aðal­með­ferð í mál­inu hófst loks í jan­úar 2015, tæpum tíu árum eftir að hið meinta brot átti sér stað.

Jón Ásgeir og Hannes í per­sónu­legum ábyrgðum sam­kvæmt ákæru

Í ákærunni stóð að „Sak­ar­gögn benda til þess að ákærði hafi haldið umræddri milli­færslu leyndri fyrir stjórn­endum og stjórn FL Group, en aðrir en ákærði höfðu ekki aðgang að banka­reikn­ingi FL Group hjá KBL fyrr en 28. Júní 2005 þegar Einar Sig­urðs­son veitti Svein­birni Ind­riða­syni, þáver­andi fjár­mála­stjóra FL Group, heim­ild til að fá aðgang að öllum banka­reikn­ingum FL Group hjá KBL.

Það var ekki fyrr en eftir þrýst­ing, meðal ann­ars frá þáver­andi for­stjóra félags­ins, að fjár­mun­irnir skil­uðu sér aftur á reikn­ing FL Group í Kaup­þingi banka hf. 30. júní 2005, eða rúmum tveimur mán­uðum eftir brot ákærða sam­kvæmt ákæru. Fyrir þann tíma hafði milli­færslan ekki verið færð í bók­hald félags­ins. Þann dag hafði KBL veitt Fons til að greiða umrædda fjár­muni til baka til FL Group og gegn­ust ákærði og Jón Ásgeir Jóhann­es­son í per­sónu­legar ábyrgðir fyrir end­ur­greiðslu láns­fjár­hæð­ar­inn­ar. Ekki verður séð að ákærði hafi á þeim tíma eða öðrum haft nokkur form­leg tengsl við starf­semi Fons“.

Hannes Smára­son sendi frá sér yfir­lýs­ingu þegar greint var frá ákærunni. Hann hafn­aði þeim sak­ar­giftum sem á hann eru bornar og segir ákæruna „und­urfurðu­lega“. Jón Ásgeir Jóhann­es­son sagði í bréfi sem hann sendi mbl.is að hann hafi aldrei verið í „ábyrgð fyrir FL Group hf. eða Hannes Smára­son vegna við­skipta með Sterl­ing“. Í ákærunni var hann reyndar ekki vændur um að hafa verið í ábyrgð fyrir FL Group eða Hannes Smára­son, heldur Fons.

Hannes var spurður út í milli­færsl­una í Kast­ljósi 23. októ­ber 2005. Þar sagði hann hana vera „þvælu“. Hægt er að sjá brot úr því við­tali og frek­ari umfjöllun um málið í umfjöllun Kast­ljós frá árinu 2009 hér að neð­an.

Ein umdeild­ustu við­skipti fyr­ir­hrunsár­anna

Málið hefur verið til rann­sóknar frá því haustið 2008 hjá ýmsum emb­ætt­um. Við­skipti FL Group, Fons og Sunds ehf. sem áttu sér stað með eign­ar­hluti í Sterl­ing og öðrum ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækjum á árunum 2005 til 2008 eru ein þekkt­ustu meintu sýnd­ar­við­skipti sem fram­kvæmd voru á árunum fyrir hrun. Í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis segir meðal ann­ars að þau séu „ein­hver umdeild­ustu við­skipti Hann­esar [Smára­son­ar, fyrrum for­stjóra og stjórn­ar­for­manns FL Group] og raunar alls þessa tíma­bils“.

Þótt Hannes hafi verið ákærður fyrir fjár­drátt vegna einnar milli­færslu á fé þá eru margir aðrir fletir á hinu svo­kall­aða Sterl­ing-­máli sem hafa verið til rann­sókn­ar. Hér að neðan verða meg­in­at­riði máls­ins rak­in.

Í mars 2005 keypti Fons, eign­ar­halds­fé­lag í eigu Pálma Har­alds­sonar og Jóhann­esar Krist­ins­son­ar, danska flug­fé­lagið Sterl­ing á fjóra millj­arða króna. Nokkrum mán­uðum síðar var Sterl­ing sam­einað öðru flug­fé­lagi, Maersk Air, og í októ­ber, sjö mán­uðum eftir kaup Fons á því var Sterl­ing selt til almenn­ings­hluta­fé­lags­ins FL Group á 15 millj­arða króna. Við­skiptin vöktu athygli og furðu, sér­stak­lega þar sem Sterl­ing tap­aði hálfum millj­arði króna á þeim fáu mán­uðum sem Fons átti það. Samt greiddi almenn­ings­hluta­fé­lagið FL Group, sem var meðal ann­ars í eigu þús­unda aðila ( í lok árs 2007 voru hlut­hafar til að 4.283 tals­ins), þessa upp­hæð fyrir Sterl­ing.

Flestir hlut­haf­anna höfðu gerst hlut­hafar þegar FL Group var flug­fé­lagið Flug­leið­ir. Flug­rekst­ur­inn var hins vegar aðskil­inn frá á upp­gangs­ár­unum fyrir hrun og settur inn í sér­stakt félag, Icelandair Group, sem var selt út úr FL Group. Gamla móð­ur­fé­lag­inu var sam­hliða breytt í fjár­fest­inga­fé­lag og varð eitt það umfangs­mesta sinnar teg­undar um nokk­urra ára skeið.

Grun­semdir um sýnd­ar­viðsk­ið­skipti

Sam­stundis voru uppi grun­semdir um að við­skiptin með Sterl­ing-flug­fé­lagið væru hluti af ein­hvers­konar sýnd­ar­við­skiptafléttu sem stærstu hlut­hafar FL Group: aðilar tengdir Baugi, þáver­andi stjórn­ar­for­mað­ur­inn og síðar for­stjór­inn Hannes Smára­son og Fons hefðu hag af en gætu orðið gríð­ar­lega kostn­að­ar­samir fyrir aðra hlut­hafa. Grun­semdir voru líka uppi um að FL Group hefði í raun greitt fyrir þorra þess kaup­verðs sem Fons greiddi fyrir Sterl­ing. Hannes Smára­son neit­aði því alfarið og sagði sögu­sagnir þess efnis vera „þvælu“. Pálmi Har­alds­son, aðal­eig­andi Fons neit­aði því einnig ítrekað að FL Group hefði fjár­magnað kaup Fons á Sterl­ing.

Efna­hags­brota­deild rík­is­lög­reglu­stjóra hóf að rann­saka þessi við­skipti árið 2008 að eigin frum­kvæði. Undir voru grun­semdir um meint auðg­un­ar­brot og brot á ákvæðum hluta­fé­laga­laga um bann við lán­veit­ingum líkt og þeirri sem FL Group var grunað um að hafa veitt Fons.

Þann 11. nóv­em­ber 2008 gerðu starfs­menn skatt­rann­sókn­ar­stjóra síðan ítar­lega hús­leit í höf­uð­stöðvum FL Group, sem þá hafði tekið upp nafnið Stoð­ir. Þar var lagt hald á ýmis konar bók­halds­gögn, skjöl sem tengd­ust ætl­uðum sýnd­ar­við­skiptum með eign­ar­hluti í Sterl­ing og öðrum ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækjum og ara­grúi tölvu­póst­sam­skipta afrit­uð.

Hluti þess­arra gagna voru send áfram til efna­hags­brota­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra í lok árs 2009.

Ragn­hildur stígur fram

Síðan spurð­ist lítið til máls­ins í nokkurn tíma. Í apríl 2010 steig Ragn­hildur Geirs­dótt­ir, sem var for­stjóri FL Group á þeim tíma sem Fons keypti Sterl­ing, hins vegar fram og tjáði sig í fyrsta skipti opin­ber­lega um kaup­in. Hún sagð­ist telja að FL Group hefði að öllum lík­indum greitt þrjá af þeim fjórum millj­örðum króna sem greiddir voru fyrir danska flug­fé­lagið í mars 2005. Féð hefði verið lagt inn á reikn­ing hjá Kaup­þingi í Lúx­em­borg að frum­kvæði Hann­esar Smára­sonar en síðan horfið þaðan án til­hlýði­legra skýr­inga.

Í yfir­lýs­ingu sem Ragn­hildur sendi frá sér vorið 2010 sagði að henni hefði borist útprentun úr excel-skjali frá Kaup­þingi í Lúx­em­borg þar sem „fram komu upp­lýs­ingar sem mátti skilja sem svo að pen­ing­arnir hefðu á ein­hverjum tíma­punkti, í ein­hverjum til­gangi, verið milli­færðir á Fons“.

Millj­arð­arnir þrír sem FL Group lagði inn á reikn­ing­inn í Lúx­em­borg skil­uðu sér loks þangað aftur í júlí 2005. Þá hafði Ragn­hildur og nokkrir stjórn­ar­menn í FL Group hótað Hann­esi því að málið yrði sent til efna­hags­brota­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra til rann­sóknar sem fjár­dráttur ef féð myndi ekki skila sér.

Beðið eftir gögnum frá Lúx­em­borg

Í jan­úar 2011 var Hannes Smára­son yfir­heyrður af efna­hags­brota­deild rík­is­lög­reglu­stjóra vegna máls­ins. Ragn­hildur var einnig boðuð til skýrslu­töku sem vitni. Rann­sókn þess hafði þá legið niðri um nokk­urt skeið vegna þess að þeir sem stýrðu henni höfðu flutt sig yfir til sér­staks sak­sókn­ara. Þegar efna­hags­brota­deildin var síðan sam­einuð sér­stökum sak­sókn­ara haustið 2011 flutt­ist Sterl­ing-­málið með.

Hjá sér­stökum sak­sókn­ara var ákveðið að opna málið að nýju og sækj­ast eftir gögnum frá Lúx­em­borg sem gátu sýnt fram á hvert pen­ing­arnir sem lagðir voru inni á reikn­ing Kaup­þings í Lúx­em­borg runnu. Þau gögn feng­ust árið 2013 og sýndu að féð hafði runnið til Fons, sem hafi síðan notað það til að greiða fyrir Sterl­ing. Vegna þess­arra gagna var Hannes Smára­son ákærður fyrir fjár­drátt í októ­ber 2013.

Tíma­lína atburða í Sterl­ing-­mál­inu

12.-14. mars 2005

Fons kaupir Sterl­ing á fjóra millj­arða króna.

22. apríl 2005

Hannes Smára­son, þá stjórn­ar­for­maður FL Group, lét milli­færa um 2,9 millj­arða króna af banka­reikn­ingi FL Group í New York inn á nýjan banka­reikn­ing félags­ins í Lúx­em­borg.

25. apríl 2005

Sama upp­hæð milli­færð af nýja banka­reikn­ingnum yfir á banka­reikn­ing Fons. Sama dag var féð milli­fært af banka­reikn­ingi Fons yfir á banka­reikn­ing þáver­andi eig­anda Sterl­ing.

30. júní 2005

Kaup­þing í Lúx­em­borg veitir Fons lán til að end­ur­greiða FL Group upp­hæð­ina sem Hannes Smára­son hafði milli­fært á Fons. Hannes Smára­son og Jón Ásgeir Jóhann­es­son gang­ast í per­sónu­legar ábyrgðir fyrir end­ur­greiðslu láns­fjár­hæð­ar­inn­ar.

16. októ­ber 2005

Hannes Smára­son, sem þá var nýlega orð­inn for­stjóri FL Group, og Pálmi Har­alds­son, aðal­eig­andi Fons, ganga frá kaupum FL Group á Sterl­ing fyrir 15 millj­arða króna. Sölu­hagn­aður Fons af því að eiga Sterl­ing og Maersk, sem töp­uðu millj­örðum króna á þessum tíma, varð því ell­efu millj­arðar króna á um hálfu ári.

Fyrsti árs­fjórð­ungur 2006

Sterl­ing tapar rúmum tveimur millj­örðum króna.

Nóv­em­ber 2006

Starfs­menn FL Group hefja þróun á verk­efni sem fékk nafnið „Project Scantra­vel“. Það verk­efni varð síðan að félagi sem fékk nafnið Northern Tra­vel Hold­ing og var notað til að kaupa Sterl­ing af FL Group í því sem talið eru vera einn stærstu sýnd­ar­við­skipti fyr­ir­hrunsár­anna.

21. des­em­ber 2006

Stjórn FL Group veitir Hann­esi Smára­syni heim­ild til að stofna Northern Tra­vel Hold­ing og sölu á Sterl­ing.

26. des­em­ber 2006

Northern Tra­vel Hold­ing stofn­að. Á sama tíma er gengið frá sölu FL Group og Fons á Sterl­ing, flug­fé­lag­inu Astra­eus, Iceland Express, Heklu Tra­vel og Ticket inn í hið nýstofn­aða félag. Eig­endur Northern Tra­vel Hold­ing voru FL Group og Fons, þeir sömu og seldu eign­irnar inn í það. Auk þess var fjár­fest­inga­fé­lagið Sund sagt eiga 22 pró­sent hlut. Það sem kom þó ekki fram var að Sund var með sölu­rétt á þeim hlut til Baugs, stærsta eig­anda FL Group. Sam­kvæmt því sam­komu­lagi átti Baugur að kaupa hlut­inn aftur af Sund fyrir 26. ágúst 2007 á 2,75 millj­arða króna. Vegna þátt­töku sinnar í þessum snún­ingi fékk Sund ehf. greitt tæpan hálfan millj­arð króna í þókn­ana­greiðsl­ur.

Des­em­ber 2007

Sam­komu­lag Baugs og Sunds um kaup- og sölu­rétt á hlutum í Northern Tra­vel Hold­ing var fram­lengt fram í des­em­ber. Þegar kom að því að efna það var Northern Tra­vel Hold­ing látið „kaupa“ hlut Sunds í stað Baugs. Þannig losn­aði Baugur úr þeirri snöru.

16. sept­em­ber 2008

Fons kaupir 34 pró­sent hlut FL Group, sem þá hafði tekið upp nafnið Stoð­ir, í Northern Tra­vel Hold­ing. Greitt var fyrir með hald­lausum kröfum á Northern Tra­vel Hold­ing. Kaup­verðið var því ekk­ert.

29. októ­ber 2008

Sterl­ing gjald­þrota og þús­undir far­þega félags­ins verða stranda­glópar víðs vegar um heim­inn.

11. nóv­em­ber 2008

Skatta­yf­ir­völd gera hús­leit í höf­uð­stöðvum FL Group.

14. sept­em­ber 2009

Northern Tra­vel Hold­ing úrskurðað gjald­þrota. Þrotabú Fons, sem var þá líka farið á haus­inn, var langstærsti kröfu­haf­inn með 15 millj­arða króna kröfu. Engar eignir voru í búinu.

Jan­úar 2011

Hannes Smára­son yfir­heyrður af efna­hags­brota­deild rík­is­lögeglu­stjóra vegna rann­sóknar á Sterl­ing-við­skipt­um. Ragn­hildur Geirs­dóttir var einnig boðuð til skýrslu­töku sem vitni. Rann­sókn þess hafði þá legið niðri um nokk­urt skeið vegna þess að þeir sem stýrðu henni höfðu flutt sig yfir til sér­staks sak­sókn­ara. Þegar efna­hags­brota­deildin var síðan sam­einuð sér­stökum sak­sókn­ara haustið 2011 flutt­ist Sterl­ing-­málið með.

Haust 2013

Kjarn­inn greinir frá því að rann­sókn á Sterl­ing-­mál­inu væri lokið og beðið væri ákvörð­unar um hvort ákært yrði eða ekki.

28. októ­ber 2013

Hannes Smára­son ákærður af emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara fyrir fjár­drátt vegna milli­færsl­unn­ar.

26. mars 2014

Hér­aðs­dómur vísar ákærunni á hendur Hann­esi Smára­syni frá.

10. apríl 2014

Hæsti­réttur fellir úr gildi úrskurð hér­aðs­dóms um að vísa mál­inu frá og kemst að þeirri nið­ur­stöðu að efn­is­með­ferð eigi að fara fram.

28. jan­úar 2015

Aðal­með­ferð hefst í máli sér­staks sak­sókn­ara gegn Hann­esi Smára­syni.

18. febrúar 2015

Hannes Smárason sýkn­aður í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur.

14. október 2016

Hæsti­réttur Íslands vísar máli gegn Hannesi Smára­syni frá vegna seina­gangs rík­is­sak­sókn­ara við að skila inn grein­ar­gerð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár