Maðurinn sem atti til mestu óeirða í sögu Svíþjóðar

Miklar óeirðir í Svíðþjóð hafa ratað í heims­press­una und­an­farna daga. Rík­is­lög­reglu­stjóri Sví­þjóðar segir þær for­dæm­is­lausar á sænskan mæli­kvarða og að lífi fjölda lög­reglu­þjóna sé stefnt í hættu. Rót óeirð­anna má hins vegar rekja til eins manns.

Rasmus Paludan lætur ekki mikið yfir sér en hefur þó stofnað til mestu óeirða Svíþjóðar.
Rasmus Paludan lætur ekki mikið yfir sér en hefur þó stofnað til mestu óeirða Sví­þjóðar. Mynd: EPA

Tugir lög­reglu­manna eru særðir eftir mikil átök í Svíþjóð und­an­farna daga sem ein­kennst hafa af óeirðum, skemmd­ar­verkum og árásum á lög­reglu. Upptök óeirð­anna má rekja til eins manns sem hefur gert það að vana sínum að brenna Kóraninn, helg­asta rit íslams­trúar, og var hann raunar dæmdur til tveggja ára ferða­banns til Sví­þjóðar árið 2020 fyrir áætl­anir til slíks. Nú hefur hann hins vegar hlotið sænskan rík­is­borg­ara­rétt og hyggst bjóða sig fram í þing­kosn­ingum í Svíþjóð. Kosn­inga­bar­átta hans er rétt að hefj­ast og mun hún einkum sam­an­standa af heim­sóknum til borga og bæja Sví­þjóðar þar sem mað­ur­inn hyggst brenna Kóraninn á hverjum við­komu­stað.

Maðurinn sem um ræðir heitir Rasmus Paludan og er upp­runa­lega frá norð­an­verðu Sjálandi í Danmörku, en faðir hans er sænskur og var það á þeim grund­velli sem hann fór fram á og fékk að end­ingu sænskan rík­is­borg­ara­rétt. Paludan er lærður lög­fræð­ingur og var meðal þeirra bestu í sínum árgangi við laga­deild Kaup­manna­hafn­ar­há­skóla. Samkvæmt föður hans þurfti hann þó að taka sér hlé frá námi um tíma þegar hann lenti í reið­hjólaslysi og þurfti meðal ann­ars að gang­ast undir heila­skurð­að­gerð. Paludan starf­aði svo sem lög­maður og seinna sem lektor við sömu laga­deild og hann nam við áður en hann stofn­aði Harð­línu­flokk­inn (d. Stram Kurs) árið 2017.

[adspot]Hestu stefnu­mál Harð­línu­flokks­ins fel­ast í and­spyrnu við inn­flytj­endur sem ekki eru af vest­rænum upp­runa og þá sér­stak­lega við inn­flytj­endur af múslima­trú. Harð­línu­flokk­ur­inn bauð fram í fimm sveit­ar­fé­lögum í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum í Danmörku það sama ár en hlaut færri en 200 atkvæði í hverju sveit­ar­fé­lagi fyrir sig sem kom í veg fyrir að fram­bjóð­endur flokks­ins fengju einu sinni sæti í nokk­urri nefnd á sveit­ar­stjórn­ar­stigi. Þá bauð flokk­ur­inn fram í tveimur af fimm umdæmum Dan­merkur án árang­urs.

Mikil athygli en takmarkaður pólitískur árangur

Þó kosn­inga­bar­átta flokks­ins hefði verið með öllu árang­urs­laus þetta ár hélt Paludan ótrauður áfram og vakti einna helst athygli á Youtube þar sem voru birt einna helst mynd­skeið frá mót­mæla­fundum Harð­línu­flokks­ins. Paludan hélt alls 53 mót­mæla­fundi árið 2018 og flestir fóru þeir fram í hverfum inn­flytj­enda, svoköll­uðum gettóum, og voru sér­stak­lega gerðir til þess að ögra múslimum. Paludan náði þar til­ætl­uðum árangri, en á mót­mæla­fundi í Nørrebro í Kaup­manna­höfn 14. apríl 2018, þar sem Paludan kastaði Kór­an­inum ítrekað í jörð­ina, varð hann loks fyrir árás skömmu eftir að fund­ur­inn hófst, auk þess sem ráð­ist var á lög­reglu af and­mót­mæl­endum. Í kjöl­farið var Harð­línu­flokknum meinað að halda fleiri mót­mæla­fundi vegna ógnar við almanna­frið og hót­ana gegn Paludan.

Árið 2019 bauð flokk­ur­inn svo fram í þing­kosn­ingum en náði ekki þeim 2% atkvæða sem þarf að lág­marki til að ná þing­sæti.

Þrátt fyrir alla ósigr­ana má engan bil­bug sjá á Paludan sem hefur haldið áfram aðgerðum sínum til þess að mót­mæla við­veru múslima í Danmörku og hefur fjöldi inn­flytj­enda verið dæmdir fyrir árásir ýmist gegn Paludan eða lög­reglu í tengslum við mót­mæla­fundi Paludan. Paludan er undir nær stöð­ugu örygg­is­eft­ir­liti lög­reglu og nam kostn­aður dönsku lög­regl­unnar vegna þessa 100 millj­ónum danskra króna árið 2019, eða nærri 2 millj­örðum íslenskra króna.Svo virð­ist hins vegar vera að Paludan ætli nú að ein­beita sér að Svíþjóð í ljósi afar tak­mark­aðs árang­urs stjórn­mála­flokks hans í Danmörku.

Glæpagengi notfæri sér hamaganginn

Svíar virð­ast hins vegar alls ekki á þeim bux­unum og hafa átök brot­ist út víða um landið vegna áforma Paludan um að brenna Kóraninn vítt og breitt um Svíðþjóð. Lög­reglan veitir leyfi fyrir fjölda­sam­komum sem þessum, og hefur sænska lög­reglan hlotið tals­verða gagn­rýni fyrir að leyfa fjölda­sam­komur Rasmusar Paludan, sem séu til þess gerðar að ögra minni­hluta­hópum, og þá sér­stak­lega múslimum með því að kveikja í Kór­an­inum. Talið er að þetta sé helsta ástæða þess að ofbeldið bein­ist í miklum mæli gegn lög­regl­unni, en þá eru einnig uppi kenn­ingar um að ótengdir glæpa­hópar nýti sér hama­gang­inn í kring um Paludan til þess að æsa til óeirða gagn­vart lög­regl­unni.

For­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar, Magda­lena And­ers­son, hefur for­dæmt atburða­rás­ina og segir óeirð­irnar nákvæm­lega það sem Paludan vilji. Aðal­mark­mið hans sé að snúa fólki gegn hverju öðru. Kosn­inga­ferð Paludan um Svíþjóð hefur verið frestað um minnst eina viku vegna óeirð­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár