Viðreisn blæs til prófkjörs í Reykjavík – þess fyrsta í sögu flokksins

Viðreisn hefur ákveðið að halda próf­kjör fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar. Fólk þarf að hafa verið skráð í Viðreisn þremur dögum fyrir próf­kjörið til að hafa atkvæð­is­rétt.

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir er oddviti Viðreisnar í Reykjavík.
Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir er odd­viti Við­reisnar í Reykja­vík. Mynd: Bára Huld Beck

Félags­fundur Reykja­vík­ur­ráðs Við­reisnar ákvað í gær­kvöldi að próf­kjör yrði haldið til að velja á lista Við­reisnar fyrir kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar í Reykja­vík. Þetta er í fyrsta sinn sem ákveðið er að listar Við­reisnar skuli ráð­ast með próf­kjöri en ekki upp­still­ingu, sem hefur verið meg­in­regla Við­reisnar til þessa.

Ekki er búið að ákveða hvenær próf­kjör flokks­ins á að fara fram, en sam­kvæmt því sem fram kemur í frétta­til­kynn­ingu þarf að aug­lýsa það með að minnsta kosti 30 daga fyr­ir­vara. Framboð þurfa að ber­ast að minnsta kosti 15 dögum fyrir próf­kjör.

Allir félags­menn í Viðreisn sem skráðir hafa verið í flokk­inn í að minnsta kosti þrjá daga og búsettir eru í Reykja­vík geta tekið þátt í próf­kjör­inu. Að því loknu mun upp­still­ing­ar­nefnd ganga frá til­lögum sínum um fram­boðs­lista í sam­ræmi við nið­ur­stöður próf­kjörs­ins, en þó skal tryggja jöfn kynja­hlut­föll með fléttu­lista, þannig að ein­stak­lingar af sama kyni verði ekki í sam­liggj­andi sætum.

Um 2.700 manns voru skráð í Viðreisn á lands­vísu skömmu fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar síð­asta haust, sam­kvæmt svari flokks­ins til Kjarnans. Í svar­inu var sér­stak­lega tekið fram að flokk­ur­inn hefði aldrei nokkru sinni haldið próf­kjör, sem venju­lega laða nýja félaga inn á flokks­skránna.

Benedikt Jóhann­es­son fyrr­ver­andi for­maður Við­reisnar rit­aði í ára­móta­grein sinni í Kjarnann að hann teldi próf­kjör bestu leið­ina til þess að velja fólk til for­ystu innan stjórn­mála­flokka, þó vissu­lega væri það „mein­gallað fyr­ir­komu­lag“.

Baráttan um borgina í startholunum

Sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar fara fram 14. maí og flokk­arnir sem ætla sér að bjóða fram í höf­uð­borg­inni eru sumir byrj­aðir að láta glitta í hvernig þeir ætli að haga próf­kjörs­bar­átt­unni – og sums staðar er hún raunar þegar farin af stað með til­kynn­ingum um fram­boð.

[adspot]

Rétt eins og Viðreisn verður Sam­fylk­ingin með próf­kjör, sem reyndar er kallað flokksval á þeim bænum. Það fer fram dag­ana 12.-13. febr­úar og verður opið félögum í Sam­fylk­ing­unni og skráðum stuðn­ings­mönnum flokks­ins í Reykja­vík.

Hjá Sjálf­stæð­is­flokknum er þess enn beðið að end­an­leg ákvörðun verði tekin um að halda annað hvort leið­toga­próf­kjör eins og árið 2018 eða opið próf­kjör þar sem almennir flokks­fé­lagar fái að hafa sitt að segja um annað og meira en ein­ungis það hver leiðir list­ann. Sú ákvörðun er í höndum full­trúa­ráðs flokks­ins.

Píratar ætla sér að halda próf­kjör í febr­úar og ætla má að Vinstri græn geri það einnig. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, sem ekki á full­trúa í borg­ar­stjórn í dag, ætlar sér hins vegar að stilla upp lista.

Lítið hefur heyrst úr ranni ann­arra flokka sem eiga full­trúa í borg­ar­stjórn, Mið­flokks­ins, Flokks fólks­ins og Sós­í­alista­flokks­ins.

Oddvitar og einu borg­ar­full­trúar þess­ara þriggja flokka lýstu því þó allar yfir í sam­tali við Vísi í gær að þær hefðu hug á að sækj­ast á ný eftir sæti á fram­boðs­listum flokk­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár