Icelandair mun flytja á annað þúsund manns á milli Kaliforníu og Armeníu

Íslenska utan­rík­is­þjón­ustan aðstoð­aði við sér­stakt verk­efni á vegum Loft­leiða Icelandic.

Icelandair mun á næst­unni flytja á annað þús­und armenskra og banda­rískra rík­is­borg­ara á milli Los Angeles í Kali­forníu og Yerevan í Armeníu. Far­þeg­arnir hafa verið stranda­glópar vegna COVID-19 far­ald­urs­ins en hafa nú fengið heim­ild og tæki­færi til að snúa til síns heima.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Icelandair í dag.

Þá segir að um sé að ræða sér­verk­efni á vegum Loft­leiða Icelandic sem unnið sé í sam­vinnu við stjórn­völd í Armeníu, flutn­inga­fyr­ir­tækið Cross Line og kjör­ræð­is­mann Íslands í Armeníu. Þá hafi íslenska utan­rík­is­þjón­ustan aðstoðað við til­urð verk­efn­is­ins.

„Boeing 767 vélar Icelandair verða nýttar í verk­efnið en þær taka um 260 far­þega. Flogið er um Ísland sem liggur nokkurn veg­inn um miðja vegu milli Kali­forníu og Armeníu.

Fyrsta flugið fer frá Los Angeles laug­ar­dag­inn 11. júlí og fyrsta flug frá Yerevan fer mánu­dag­inn 13. júlí. Fjöldi flug­ferða liggur ekki enn fyrir en sem fyrr telur far­þega­fjöld­inn á annað þús­und. Um milljón manns af armenskum upp­runa búa í og við Los Angeles,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Enn fremur kemur fram að þjón­ustan um borð verði í sam­ræmi við núver­andi verk­lags­reglur Icelandair. Um 9 til 12 manns verða í hverri áhöfn, öllu jafna 2 til 3 flug­menn, sex flug­freyjur- og þjónar og einn flug­virki.

Kærkomin viðbót

Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair Group, segir í til­kynn­ing­unni að með því að nýta reynslu, þekk­ingu og alla inn­viði Icelandair Group hafi starfs­fólk Loft­leiða Icelandic, í sam­starfi við ýmsar deildir sam­stæð­unnar, sýnt mikla útsjón­ar­semi þegar kemur að sér­verk­efnum í leiguflugi.

„Þessi flug eru kær­komin við­bót við frakt­flug frá Kína til Evrópu og Norður Ameríku sem Icelandair Group hefur sinnt á und­an­förnum vikum. Verkefni sem þessi færa félag­inu auknar tekjur og skapa störf fyrir starfs­fólk þar sem und­ir­bún­ingur og skipu­lag fer fram hér á landi. Þetta er gott dæmi um þann sveigj­an­leika sem Icelandair Group og dótt­ur­fé­lög þess búa yfir til að taka að sér verk­efni sem þessi með skömmum fyr­ir­vara,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár